Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.1965, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 30.05.1965, Side 2
Elizabeth II Bretadrottning er aðeins 39 ára gömul og hef- ur samt setið að völdum í hálft fjórt ánda ár við góðan orðstír, þó varla verði henni nokkurn tíma jafnað við nöfnu sína, Elizabeth I (1533-1603), sem ríkti í 45 ár og setti sinn sterka svip á öld þeirra Marlowes og Shake speares, enda er það tímabil einmitt kennt við hana. Elizabeth II hefur ekki til að bera hæfileika eða snilligáfu nöfnu sinn- ar, enda gerist þess tæplega þörf um nútíðardrottningu. Styrkur hennar liggur öllu fremur í því, að hún er fulltrúi þeirra sjónarmiða og hug- sjóna sem sæmilega menntað fólk af hennar eigin kynslóð elur með sér. Eins og langalangamma hennar, Victoria drottning, er hún jafnan dálítið þvinguð innan um mennta- fólk, en hins vegar ber hún gott skyn á listir eins og flestir ættmenn hennar. Hún hefur unnið sér hylli þegnanna með látlausri, þokkafullri og virðulegri framkomu. Gcorg VI faðir hennar, Mary drottn- ing amma hennar, Victoria drottning, og ýmsir forfeður hennar á 18. öld voru nokkuð stirðir í framkomu, og hefur hún erft þessa eigind að vissu marki, en það hefur gefið persónuleika hennar skýrari útlínur og aukna kjölfestu. Hún átti trúnað föður síns og var honum mjög nákomin, og sennilega hefur hann leitt henni fyrir sjónir, hve mikilvæg gætni og þagmælska er hverjum þjóð- höfðingja. Virðuleiki hennar við op- inberar athafnir er áberandi og ber því órækt vitni, að hún hefur lært til hlítar þá veigamiklu reglu þjóðhöfðingjans að láta ekki eigin duttlunga eða hvatir skyggja á hlutverk sitt. E lizabeth var aiin upp í samræmi við hefðbundnar reglur aðalsstéttanna uppúr fyrri heimsstyrjöld. Hún fæddist 21. apríl 1926 í „hjarta Mayfair“, í húsi við Burton-stræti sem var í eigu móður- foreldra hennar, Strathmores lávarðar og konu hans. Skömmu síðar tóku for- eldrar hennar, sem þá nefndust hertog- inn og hertogafrúin af York, á leigu eitt af húsunum í vesturenda Piccadilly, svæði sem á dögum Victoriu var al- mennt kallað „Rothschild Row“. Þó hús- ið væri nokkuð viðhafnarlegt og þung- lamalegt hið ytra, var það þægilegt og bjart hið innra, og að húsabaki var garð- ur þar sem telpan gat leikið sér i ró og næði við vini sína og nágranna. Árið 1931 gaf Georg V syni sínum bygging- una „Royal Lodge“ í Windsor Great Park, og í þessu fagra húsi með sínu töfrandi umhverfi átti drottningin til- vonandi glöðustu daga bernsku sinnar og æsku. Á sumrin dvaldist fjölskyldan æviniega nokkrar vikur í Skotlandi, ým ist á heimlili hertogafrúarinnar, Glamis Castle, eða í Birkhall á Balmoral-land- areigninni. Enda þótt Elizabeth væri í frum- bernsku fjarlæg hásætinu, þar eð föð- urbróðir hennar, sem síðar varð Edward VIII, var enn ókvæntur og hennar eig- m foreldrar gátu átt von á fleiri börn- um, þá hlaut hún samt í skírninni þrjú mjög svo konungleg nöfn: Elizabeth Al- exandra Mary. Þegar hún var tíu ára hafði frændi hennar afsalað sér og erf- ingjum sínum krúnunni, og Elizabeth var taiin arftaki föður síns af þorra þegnanna. Íí ernskuár drottningarinnar voru einstaklega gleðirik. Uppeldi hennar var skynsamlegt og eðlilegt. Hún var vernd- uð gcgn hvers konar ásókn biaðamanna og hvött til að lifa eins náttúrlegu lífi og aðstæður framast leyfðu. Hún varð einstaklega aðlaðandi barn, skynsöm, hæversk, alvörugefin og hljóðlát, en fjörmikil og glaðlynd í hópi leiksystk- ina og vina. Mörgum hefur verið þakkað (og sum- ir látið þakka sér) hið góða uppeldi telp unnar fyrstu árin, meðan hún var að mótast, en vitanlega eiga foreldrarnir þar langstærstan hlut að máli. Georg VI var staðráðinn í að hlífa sínum börn um við hinum harða aga, sem varpað hafði skugga á hans eigin bernsku, og hann var dóttur sinni hvetjandi og hress andi félagi í. öllu útilífi. Hann innrætti henni ást á skepnum og kenndi henni ýmis jarðyrkjustörf. Hin óvenjulega nónu tengsl milli föður og dóttur komu víða fram, og menn veittu þeim athygli. Móðir hennar var stundum gagnrýnd fyrir að tefja hana frá námi, en sann- leikurinn er sá, að hún hélt aðdáun- arverðu jafnvægi milli nauðsynlegs frjálsræðis og nauðsynlegra kennslu- stunda dóttur sinnar, sem voru bæði margar og fjölbreytilegar. Svo mikið er víst, að ekki hefði verið hægt að segja um Elizabeth það sem Victoria drottn- ing sagði einhverju sinni um sjálfa sig, að hún væri hrædd við að lenda í einka viðræðum við fólk, því þá kynni hún að koma upp um glompurnar í mennt- un sinni. Hver sem virðir fyrir sér bernsku Victoriu drottningar, barna hennar eða Georgs VI hlýtur að sjá, hví líka byltingu Georg VI og Elizabeth kona hans gerðu með því að ala dóttur sina upp á eðlilegan hátt og veita henni gleðiríka bernsku. etta uppeldi varð að sjálfsögðu miklum mun torveldara þegar Georg VI settist að völdum eftir afsögn bróð- ur sins. Aukin verkefni og margfaldar skyldur gáfu lífi fjölskyldunnar annan svip. Þegar konungsfjölskyldan fluttist til Buckingham-hallar á prinsessan að hafa sagt þegar hún sá hallargangana: „Maður verður að hafa reiðhjól til að komast um þetta hús.“ í bernsku var Elizabeth mun minna þekkt meðal alþýðu manna en búast hefði mátt við. Henni var að yfirlögðu ráði haldið bak við tjöldin, og þegar stríðið brauzt út 1939, var reynt að láta bera eins lítið á henni og kostur var. Smátt og smátt kynntist þjóðin samt persónuleika hinnar verðandi drottn- ingar. Fjórtán ára gömul talaði hún í útvarp til brezkra barna sem verið var að flytja úr landi til Norður-Ameríku, og hlustendur höfðu mikla ánægju af skýrri framsögn hennar og fallegum raddhreimi. Öll stríðsárin bjó hún af öryggisástæðum ásamt Margaret systur sinni í Windsor-kaslala og umgekkst liðsforingjana þar með eðlilegum hætti. Árlega átti hún stóran þátt í að setja á svið skemmtilega látbragðsleiki í kast- alanum. Hún varð fullveðja 18 ára göm- ul, og árið 1944 var hún staðgengill föður sfns meðan hann var í Norður- Afríku. Undir lok stríðsins gekk hun í kvennadeild hersins og hlaut þar þjálf un í vélaflutningum. að voru einkum tveir viðburðir sem vöktu at'hygli þjóðarinnar á þokka og hæfileikum hinnar ungu krónprins- essu. Annar var útvarpsræða hennar frá Suður-Afríku á 21 árs afmælinu 1947. Þá sagði hún m.a.: „Ég lýsi því yfir frammi fyrir yður öllum, að gervöll ævi mín, hvort sem hún verður löng eða stutt, mun verða helguð þjónust- unni við yður og við hina miklu kon- ungsætt.“ Hitt atvikið var heiðurssýn- ing lífvarðarins seinna á þessu sama ári, þar sem Elizabeth kom fram klædd dökkbláum einkennisbúningi og sat hest sinn tígulega, rjóð í kinnum og sælleg, en alvörugefin eins og faðir hennar sem reið á undan. Eins og títt er um ungt fólk á þessum síðustu tímum hefur Elizabeth drottn- ing átt mörg áhugamál og víða sýnt góða hæfileika. Hún talar og þýðir frönsku fyrirhafnarlaust, hefur ánæg u af lestri, leikur vel á píanó, er sérlega leikin hestakona og einstaklega góður dansari. Hún hefur lengi haft mikinu áhuga á veðreiðum og er sérfræðingur í hestakynjum. Hún hefur einnig gott vit 4 leiklist. A, því . « V„» Elizabeth ástfangin af hertoganum af Edinborg, sem þá hét Philip prins af Grikklandi, meðan hún var enn á æskuskeiði. Löngu áður en þau trúlof- uðust hafði hún mynd af honum í her- berginu hjá sér, en fyrir fortölur vin- konu sinnar, sem óttaðist umtal, skmti hún þeirri mynd fyrir aðra sem tekin var af Philip í stríðinu, þar sem andiit hans var falið af miklu og þrúðu alskeggi. Brúðkaupið — eða a.m.k. trú- lofunin — hefði átt sér stað miklu fyrr en raun varð á, ef ekki hefði komið til óróleiki no-kkurra ráðgjafa konungs vegna sambandsins við Grikkland. Það var krónprinsessunni mikið áhygg u- efni, að þetta viðkvæma einkamál var óútldjáð, þegar hún lagði upp í förina til Suður-Afríku 1947. Elizabeth og Philip voru gefin saman 20. r.óvember 1947. Á árunum 1948 og 1949, eftir að kunnugt varð um alvar- leg veikindi konungsins, urðu ungu hjónin að takast á hendur margvís]e"ar opinberar skyldur, m.a. mikilvæga opin- bera heimsókn til Parísar snemma sum- ars 1948. Elzta barn þeirra, Charles, fæddist 15. nóvember 1948, og tæpum tveim árum síðar eignuðust þau dóttur, Anne prinsessu. Árið 1960 eignuðust þau annan son, Andrew, og fjórða b-”-n- ið, Edward, fæddist fyrir hálfu öðru ári. E lizabeth hafði skamman undm- búningstíma undir hið ábyrgðarmikla lífsstarf sem beið hennar. Frá 1951, þeg- ar heilsu konungsins tók snögglega að hraka, varð hún æ bundnari af skyld- um þjóðhöfðingjans. Eftir mjög vel heppnaða för til Kanada og Handarílvj- anna haustið 1951 (sem Sir Winst-sn Churehill fór sérstökum viðurkenning- Framhald á bls. 6. Framkv.stj.: Siglns Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason trá Vieur. Matthías Johannessen. Eyjólfur KonráS Jónsson. Auglýsingar: Arnl Garðar Krlstlnsson. Ritstjórn: Aöalstræti 6. Sím) 22480. Utgefandi: H.f. Arvakur. Reykjavlk. 2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. tbl. 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.