Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1965, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1965, Qupperneq 5
Eífir Siglaug THE EMPEROR CHARL.ES V. The Growth and Destiny of a Man and of a World-Empire. Karl Brandi. Trans- lated from the German by C.V.Wedg- wood. Jonathan Cape 1965. 19/6. Fáir þjóðhöfðingjar hafa ríkt yfir jafn víðáttumiklu landsvæði og á jafn umbrotasömum tímum og Karl keisari V. Og enn færri evrópsltir landstjórnarmenn hai'a markað jafn mikið sögu Evrópu oí’ þar með heimssöguna og hann. Hann fæddist 24. febrúar 1500 í Gent. Sonur Filippusar hins fagra af Habs- borgaraætt og Jóhönnu af Kastilíu. Faðir Karls deyr 1506 og hann er aiinn upp með Margréti föðursystur sinni í Mechelen. Hún var fræg bæði fyrir gáfur og glæsileika og var um þetta leyti falin stjórn Niðurlanda af föður sínum, Maximilian. Hún var þá ekkja í annað skipti. Ástæðan fyrir því að henni var falið uppeldi prins- ins var sú, að móðir hans, Jóhanna af Kastilíu, bilaðist á geðsmunum við fráfall manns síns 1506. Geðbilunar hafði nokkuð gætt í ætt hennar og þessar erfðu veilur komu snemma fram hjá henni. Þegar hún missir elginmann sinn, neitaði hún að láta grafa hann og vitjaði kistu hans og lét opna hana, til þess að fullvissa sig um að hann lægi þar. Þetta gekk svo til í nokkra mánuði, þar til faðir hennar fékk hana til að láta grafa líkið. Hún hvarf síðar til Spánar og er úr sögunni. Prinsinn elzt upp með föðursys+ur sinni við hirð, sem var verðugur arftaki hirðar Karls djarfa hertoga af Búrgund, sem var faðir Maríu drottningar Maxi- n ilians I. En með þeirri giftingu hefjast Habsborgarar til stóraukinna áhiifa í Evrópu. Rústirnar af Habsborgarkastala standa skammt frá borginni Baden í Sviss. Ættin hefst til áhrifa í Þýzk-róm- verska ríkinu með Rúdólfi af Habsborg. Þeir aettmenn eignast lönd og ítök i Dón- árlöndum og Bæheimi og UngverjalandL E n þegar frá líður skiptast lönd þeirra upp við erfðir. Friðrik keisari III varð að skipta erföalöndum Habsborgara með Sigismundi af Týról og hann missir Austurríki þegar Matthías Corvinus kon- ungur á Ungverjalandi tekur Vín 1485 og heldur borginni til 1490. Matthías Corvinus var einn frægasti bókasafnari í Evrópu á sinni tíð og átti eitt vandaðasta handritasafn álfunnar, en fúlsaði við prentuðum bókum. Afi Karls prins var Maximilian sonur Frið- riks III. Framavonir hans voru smáar við þessar erfiðu aðstæður, en það breyttist skyndilega þegar hann kvæntist Maríu af Búrgund, sem þá var talin bezti og auðugasti kvenkostur Evrópu. Faðir hennar Karl djarfi vax ekki voldugur þjóöhöföingi, lönd hans lágu dreift, en settartengsl hans við Frakklandskonunga og blómleg verzlun í löndum hans og geysilegur auður í góðmálmi og dýrgrip- um voru styrkur hans. Búrgundarhirð var sú fágaðasta í Evrópu og þar blúmstraði hin riddaralega kui'teisi og Bryn'eifsson siðfágun. Hertogarnir ráða auðugustu verzlunarstöðum Evrópu, vefnaðariðjan jók enn auð þeirra og í lönd-um þeirra stóð evrópsk list hæst á þessum árum. Hertogarnir efldu því verzlun og iðnað í ríkjum sínum. Bókaskreyting stóð hæst í ríkjum hertoganna, mörg glæst- ustu baenabókahandritin eru þaðan. Mál- aralist stendur á háu stigi í þessum lönd- um, þar er fyrst tekið að mála á tré. Síð- ustu riddarasögubókmenntirnar eru samdar í Búrgundarríki. Og þar var stofnuð „Regla hins heilaga reyfis“ af Filippusi góða 1430. Þetta ríki var sam- evrópskt, þetta var ekki þjóðríki, hér voru margar þjóðir undir einni stjórn. Franska var mál hirðarinnar og það var móðurmál Karls V. Hann talaði gjarnan frönsku og ítölsku og er sagður hafa sagt um þýzkuna, að á því máli mætti helzt sneypa hunda. Hann elzt upp í al- þjóðlegu andrúmslofti. Þjóðerni manna skipti ekki máli í Búrgund. Þær persón- ur sem móta hann í æsku eru: föður- systir hans, Adrian frá Utrecht og Chievres. A drian frá Utrecht var guðfræðing ur og mótaði trúarskoðanir prinsins en þær höfðu meiri áhrif á hegðun hans fyrr og síðar en aimennt var um þjóð- höfðingja þessara tima. Stjórnmál og trú- arbrögð voru oftast óaðskiljanleg með landstjórnarmönnum siðskiptatímanna. Karl V var trúaður og hann efaðist aldrei um að eigin örlög og örlög ríkis hans væru í hendi Guðs. Hann braskaði aldrei með trúarbrögð, eins og vildi brenna við með þjóðhöfðingjum þessara tíma. Trúarbrögð og riddaraleg kurteisi, hugsjón riddaramenntunar, mótuðu hann hvað mest í æsku og hvort tveggja var arfur frá Búrgund. Prinsinn hlaut góða menntun að þeirrar tíðar hætti, en hann var meira gefinn fyrir veiðar og íþróttir en bóklestur. Hann var ágætur veiðimaður og talinn með fremstu ridd- urum Evrópu. Hann hafði gott lag á hest- um, svo gott að það vakti aðdáun um alla Evrópu. Hann hlaut uppeldi sem hæfði verðandi hertoga í Búrgund. Hann verður fullveðja og tekur við erfðaríki sínu, Búrgund, 1515. En honum var ætlað meira hlutskipti. 1516 deyr afi hans, Ferdinand af Aragóníu, og arfleiðir dótt- Framhald á bls. 14 KARL KEISARI V. ra Hestamennsha er orðin eitt helzta támstundagaman fjölmargra Reylc- víkinga, oq hefur áhuqi á þessari f hollu íþrótt farið ört vaxandi síö- ustu árin, enda má seqja að enqin útiskemmtun eiqi betur við íslenskt tíðarfar en útreiðar. Þœr má stunda í öllum veðrum, oq auk þess hcnta þœr öllum aldursflokkum jafnt. Það er skemmtileq þverstœða, að höfuðborqin skuli vera orðin ein helsta miðstöð hestamennsku í landinu. Úti á landsbyggðinni halcta fáir bœndur hesta nema rétt til fjallferða á haustin, oq eru þeir brúkunarlausir mestan liluta árs. Hestamannafélöq hafa á síðustu ár- um víða veriö stofnuð í sveitum, ekki síst fyrir ötula framqönqu eld- huqans Gunnars Bjarnasonar, oq qeqna þau að sjálfsöqðu veiqamiklu hlutverki, sem ekki verður ofmetið. En hitt fer varla milli mála, að það verða Reykjavík oq nœrsveitir hennar sem eiqa munu drýqstan þátt í að forða íslenska hestinum frá útslokknun. Hestamennska er tizkufyrirbrigði í Reykjavík nú um sinn, oq er ekkert nema gott um það að seqja, þó hinu verði ekki heitað að tímabundin tískufyrirbœri draqa þann ó þœgilega dilk á eftir sér, að verðlaq er syennt uyy veqna mikillar eftir- spurnar, sem leiðir til þess að eðli■ leq hlutföll raskast. Þess munu ófá dœmi að nýríkir qlóyar úr Reykja- vik hafi qreitt bœndum offjár fyrir miðlunqshesta, oq fyrir bragðið eiqnast reyndir hestamenn ekki qæðinqa nema fyrir morð fjár. Þessi þróun er óheyyileq, einkan- leqa þar sem yeninqarnir eru ekki ævinleqa í vösum bestu hestamann- anna, en qeqn tískunni verður ekki syornað fremur en gegn fálli krón- unnar! Svo er eftir að sjá hve líf- seiq þessi tíska verður. Hitt er lönqu orðin brýn nauð- syn, að hrossarœkt á íslandi verði tekin fastari tökum en verið hefur. A öðrum sviðum kynbóta hafa há- t lœrðii vísindamenn látið að sér kveða um árabil, en hrossarækt hefur að mestu verið í höndum lítt menntaðra áhuqamanna. Hér er vissuleqa þörf róttœkra breytinga. Við þurfwm að eiqnast vísirubalega menntaða hrossarœktarsérfræðinqa, oq við verðum fyrir hvern mun að kveða niður þá landlœgu siðvenju, að hrossarœki só metnaðar- oq til- i finninqamál einstákra manna, sveita eða landshluta. Tilraunir meö kynbœtur hrossa verður aö qera á stranqvísindalequn hátt, oq þá ber framar öllu að qœta þess, að i ekkert af Mnum fjölbreytilegu eiq- inleikum íslenska hestsins fari for- qörðum. Rækt við einn eiqinieika má ekki vera á kostnað annarru eig- inleika eöa réttara saqt: stefna ber að því að hreinrœkta hina ýmsu eiq- inleika hvern fyrir siq, þanniq að við eiqnumst sem fjölskrúðuqust hrossakyn, bœði stóra hlauyaqarya oq litla, liyra oq létta qæðinqa. Þetta verkefni þolir enqa bið, oq } hér œttu hestamanrvafélög landsins , að eiqa frumkvœðið. s-a-m. 24. tbl. 1965 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.