Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1965, Page 15

Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1965, Page 15
I Moskvu, án þess að vera stöðvaður hvað eftir annað af Rússum, sem buðu honum að kaupa af honum dollara. Eftir aftök- urnar kemur þetta mjög sjaldan fyrir, og mér hefur verið tjáð, að svartamark- aðurinn sovézki sé orðinn talsverr. (hræddur við dollarabrask. En þar sem hagskýrslur eru ekki til — Oig allar sov- ézkar hagskýrslur sem nokkuð er að marka vantar — geta engir nema ör- fáir embættismenn Sovétríkjanna metið til fulls árangurinn af herförinni. Hvaða áhrif hinar nýju sovéttillraun- ir í markaðsmálum (að gefa fyrirtækj- um frjálst að útvega og selja vörur sín- ar, til þess að hafa sem mest upp úr þeim) muni hafa á auðgunarglæpi og dauðadóma verður auðvitað ekki sagt með neinni vissu. Þó er ástæða til að búast við, að nýja skipulagið muni draga úr auðgunarglæpum. Að minnsta kosti ætti sá mannfjöldi að minnka, sem tekur þátt í hverjum glæp, því að þegar eftirlitið ofan frá minnkar, hafa for- stöðumenn fyrirtækja minni þörf á að múta embættismönnum ríkisins. Og ef hið nýja frelsi og áherzlan á ágóða gefa nægilega útrás fyrir fram- takssemi í verzlun, í samræmi við eftir- spurn neytenda, geta auðgunarglæpir farið minnkandi á ýmsan þýðingar- meiri hátt. Fjárdráttur, mútur, þjófnað- Ur á eignum þjóðarinnar, ruglingur á skipulaginu og spilling á sósíölsku sið- ferði — allt þetta getur breytzt að all- verulegu leyti í kapphlaupi um sósíalísk- an ágóða, en það hugtak er nú hafið upp í æðra og dýrðlegra veldi. En það eru hugsarileg framtíðaráhrif hins nýja hag- skipulags, sem gefa bezta vonina um, að dauðarefsing fyrir auðgunarglæpi verði afnumin. Sú staðreynd, að ágóðaskipu- lagið hjálpar til þess að afnema hina lanigvinnu neyzluvöruþurrð, getur af- numið sjálfa orsök svikanna og prett- anna. Því að — eins og vestrænir menn fengu að reyna í heimsstyrjöldinni síð- ari — þá er það vöruþurrðin miklu fremur en ásetningur, sem veldur svartamarkaði og samtökum um að stela eignum frá ríkinu, sér til einkaábata. Eða eins og Aristóteles orðaði það: „Fá- tæktin er móðir byltinga og glæpa“. Afnemið þurrðina og um leið er afnum- in orsökin til auðgunarglæpa. Svona hljóðar það að minnsta kosti í orði kveðnu. En enn sem komið er hef- ur ekki verið til neitt marx-leninískt þjóðfélag með nóg af neyzluvörum til að sanna kenninguna. SVIPMYND Framhald af bls. 2. um hagsmunum, en það voru þingmenn- irnir ekki. Forsetinn átti að hafa áhrif á og blátt áfram beina öllum stofnunum ríkisins í þá átt sem þjóðin vildi. Þessir forsetar voru eldlegir erindrekar þjóð- arinnar. E isenhower leit allt öðrum augum á hlutverk forsetans. Skilningur hans var bæði óhefðbundinn og fjarri veruleikan- um. Hann túlkaði stjórnarskrána eins og samanlögð reynsla fyrirrennara hans, stórra og smárra, væri ekV-i fyrir hendi. Hann hélt að stjórnarskráin tæki yfir allt hið flókna og blæbrigðaríka skipu- lagskerfi ríkisins, og svo fór að hann hegðaði sér eins og samvizkusamur kon- ungur í þingræðisríki. Fyrir bragðið var öll stjórn hans einstaklega hæggeng. Hann neitaði að taka þátt í stjórnmála- þrasinu. Þess vegna átti hann oft í mikl- um brösum við þingið. Bandaríkjaþing er ekki eins og þjóðþing Vestur-Evrópu, fullvalda og alrátt í ríkinu. Það er ein- ungis ein af þremur greinum ríkisvalds- ins. Það er löggjafarþing en jafnframt vettvangur mjög sundurleitra staðbund- inna hagsmuna í flóknu sambandsríki. Það er samspil þingsins og forsetans sem leiðir af sér stjórnarstefnuna á hverj- um tíma. Hvað eftir' annað lagði Eisenhower fram frumvörp, og lét síðan ráðast hvaða afstöðu þingið tæki. Hann neitaði að berjast fyrir þeim málum sem lágu hon- um á hjarta. Sárasjaldan örvaði hann vini sína eða refsaði flokksmönnum sem brugðust honum. Allt var þetta gert í góðri trú. Ein afleiðing þessa var óskiljanlegt umburðarlyndi hans við McCarthy öldungadeildarþingmann og aðra þá sem báru fyrrverandi vin hans og yfirboðara, Marshall hershöfðingja, óhróðri. Hann átti til að beita sér, en gerði það sjaldan, þannig að stjórnin hafði margar raddir, en ekki eina. Hann virðist hafa litið á embætti sitt eins og foringi herráðs. „Herráð" hans var honum mjög eftir- látt. Stjórn hans í Hvíta húsinu var ekki eins glæst og hjá Roosevelt eða eins manneskjuleg eins og hjá Truman, en hún vann eins og vel smurð vél. Eitt meginhlutverk samstarfsmanna hans, einkanlega eftir hjartaslögin 1955 og 1956, var að vernda hann fyrir of- reynslu, „mata“ hann á upplýsingum sem búið var að vinna úr, hlífa honum við andlegri áreynslu eða erfiðum á- kvörðunum. f rauninni átti aðeins utan- ríkisráðherrann, Jolin Foster Dulles, frjálsan aðgang að honum. Hann var umkringdur varðhundum og haf'ði ekk- ert samband við stjórnmálamenrv að sem var kannski ískyggileg- ast við þetta ástand var sú árátta að horf ast ekki í augu við óþægilegar stað- reyndir og koma sér undan að taka erf- iðar ákvarðanir. Vígorðin komu ístaðinn fyrir staðreyndirnar. Hann var varaður við örum tækniframförum Rússa, en honum var meira í mun að tryggja sér tiltrú þjóðarinnar; fjárlög án halla. Hann hafði vanizt velgengni og vildi ekki hugsa um annað. Eisenhower naut óvenjumikils trausts og var lofaður fyrir mannvit og heiðar- leik í ríkara mæli en flestir aðrir. Þesa vegna krafðist það mikils framtaks og sjálfsþekkingar að takast á hendur hið erfiða embætti forsetans, þar sem oft verður að taka snöggar og óvinsælar ákvarðanir. Hann sýndi stundum áræði, þegar hann var öruggur um hlutverk sitt og Tétt, eins og t.d. í kynþáttadeil- um Suðurríkjanna. Þegar Súez-vandina var um garð genginn tók hann afdráttar- lausa afstöðu, en meðan á honum stóð var hann hikandi. E ftir að Eisenhower hafði tvívegis fengið vægt hjartaslag bauð hann sig fram við forsetakosningarnar 1956 og vann aftur sigur yfir Stevenson með 35,6 milljónum atkvæða gegn 26 milljón- um. í janúar 1957 lagði hann fram „Eis- enhower-kenninguna" sem tryggði hon- um fulltingi til að veita löndunum við austanvert Miðjarðarhaf efnahagslega og hernaðarlega hjálp. Ein afleiðing hennar var að Bandarikjamenn skárusfe í leikinn i Líbanon 1958. í forsetatíð hans var SEATO-bandalagið í Suðaust- ur-Asíu stofnað, endurhervæðing Vestur Þýzkalands hafin og teknir upp samn- ingar við Sovétríkin um eftirlit með kjarnorkuvopnatilraunum og takmörk- un á hervæðingu. Arið 1957 tók hann þátt í Bermuda-ráðstefnunni og var viðstaddur hinn misheppnaða fund leið- toga stórveldanna í París 1960. Eftir að Eisenhower lét af forsetaem- bætti í árslok 1960 hefur hann einungis haft óbein afskipti af stjórnmálum og þá einkanlega í sambandi við framboð Repúblikana við forsetakosningarnar í fyrra. Þótti hann þá sýna svipað hik og gætni eins og oft áður, og hefur ekki vaxið af þeim afskiptum. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 15 24. tbl. 1965

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.