Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1966, Page 2
Alheimssjónvarpið er á næstu
grösum — og það er óum-
flýjanlegt, hvort sem okkur líkar
betur eða verr“, sagði höfundur
greinarinnar „'Sj ónvarpsbyltingin
er framundan“, David Sarnoff, hers-
höfðingi í bandaríska hernum og
stjórnarformaður RCA (Radio Cor-
poration of America) á fundi með
blaðamönnum, þegar hann átti 75
ára afmæli fyrir skömmu. „Það er
ekki nóg með að allir jarðarbúar
geti bráðlega séð myndvarpssend-
ingar hvaðanæva að af hnettinum,
heldur geta þjóðir heims innan
fimm til tíu ára, ef þær tíma að
eyða peningum til þess, útbúið sér-
hvern mann litlu sjónvarpstals-
sendi- og móttökutæki, sem gerir
honum kleift að ræðast augliti til
augliti við hvern sem er á hnett-
inum. Þetta eru engir hugarórar;
ég veit nákvæmlega, hvað ég er að
segja. Þetta hefur kosti í för með
sér. Mennirnir ættu að færast nær
hver öðrum og skilja hver annan
betur. En þetta hefur líka hættu í
sér fólgna. Auðveldara verður en
nokkru sinni fyrr að nálgast mann-
veruna með áróðri andstæðingsins.
Engin hugsanleg leið er til þess, að
koma megi í veg fyrir, að hver
einstaklingur í veröldinni taki við
sendingum hvaðanæva sem er,
ekki fremur en nú er kleift að
hindra, að menn hlusti á útvarps-
sendingar frá öðrum löndum, ef
þeir eiga sæmilegt móttökutæki og
kunna að lagfæra það eftir þörf-
um, ef einræðisstjórn í ættlandi
mannsins kynni að reka truflunar-
stöðvar. Ég vona innilega, að mér
auðnist að lifa svo lengi, að ég
verði þátttakandi í þessari stór-
kostlegu byltingu, sem mun ger-
breyta lífi alls mannkynsins. Hins
vegar neita ég því ekki, að ég kvíði
jafnmikið fyrir byltingunni og ég
hlakka til hennar. En við komumst
ekki undan henni“.
Þ egar David Sarnoff tekur til
máls um fjarskiptamál, er hlustað á
hann af sérfræðingum um víða ver-
öld. Næstum því í sextíu ár, síðan hann
var innan við tvítugsaldur, hefur hann
verið viðurkenndur á alþjóðamæli-
kvarða sem helzti frumkvöðull, hugs-
uður, uppfinningamaður og spámaður
á sviði fjarskiptatækni og fjölmiðlun-
ar. Einkaleyfi hans á ómissandi upp-
götvunum, sem eru snar þáttur í dag-
legu lífi okkar, eru hér um bil ótelj-
andi, og hann nýtur þess sjaldgæfa heið-
DAVID SARNOFF
urs að hafa séð alla spádóma sína ræt-
ast. Á fyrri árum þóttu framtíðarhug-
leiðingar hans oft svo fjarstæðukenndar,
að fyrirtæki og fjáraflamenn neituðu að
leggja fram fé til þess að hrinda þeim
í framkvæmd, en þau og þeir, sem
veðjuðu á framsýni hans, hafa ekki
þurft að sjá eftir því. Allt það fé hef-
ur skilað sér með margföldum ágcða.
Fyrir nokkrum árum var hann kosinn
„eini sannsöguli sp>ámaðurinn“ á al-
þjóðaþingi útvarpsmanna. Einna ein-
kennilegast þótti, að hann hafði gizk-
að svo að segja nákvæmlega á það
árið 1927, hve margir menn mundu
hafa atvinnu af útvarpi í Bandaríkj-
unum árið 1957. Snilligáfa þessa fram-
herja á sviði útvarps, sjónvarps og
geimsendinga er nú viðurkennd um
heim allan. Bandaríkjamenn telja, að
enginn einn maður hafi haft meiri
áhrif á daglegt líf manna nú á dögum
en Sarnoff, þegar Edison er undan
skilinn, og eiga þeir þar við uppgötv-
anir hans og kenningar á sviði útvarps
og sjónvarps, síma og annarra fjar-
skiptatækja, gervihnattatækni og raf-
eindasmávéla. Lyndon B. Johnson, for-
seti Bandaríkjanna lét nýlega svo um
mælt, að enginn væri glæsilegra dæmi
um hinn ameríska anda en Sarnoff,
hvernxg hann hefði orðið að slíkum
áhrifamanni í vísindum og tækni frá
því að vera bláfátækur innflytjandi.
Gyðingadrengurinn, sem fæddist í al-
geru 'miðaldaþjóðfélagi austur í Hvíta-
Rússlandi, þar sem lifað var eftir kenn-
ingum spámanna gamla tesamentsins,
hefur nú í meira en hálfa öld verið
fremstur í flokki þeirra, sem boða hina
nýju og ótrúlegu tækniöld, er þegar
er hafin að nokkru leyti. Níu ára gam-
all kom hann til Bandaríkjanna, þar
sem fjölskylda hans lifði í einangruðu
gyðingahverfi í New York, sem iá alveg
utan við meginstrauma hins mikla,
bandaríska þjóðlífs, svo að það kost-
aði Sarnoff eins mikið átak að brjót-
ast út úr innilokuðum innflytjendaheim-
inum í „Lower East Side“ á Manhatt-
an og það kostaði fjölskyldu hans að
flytjast vestur.
D,
tryggnl, enda þóttu þær fjarstæðukennd
ar flestar og ótrúlegar. Inn í þetta lok-
aða samfélag bárust því lítil utanað-
komandi áhrif, og væri um þau að
ræða, beittu þorpsöldungarnir sér gegn
þeim af festu, því að þau væru hættu-
leg menningu hinnar guðs útvöldu þjóð-
ar. Zarinn veitti hverju slíku gyðinga-
samfélagi („shtetl") algera sjálfstjórn
í eigin málum, að undanskilinni skatt-
lagningu og herkvaðningu. Sýnagógan,
guðshúsið, var miðstöð samfélagsins, og
bæði í andlegum og veraldlegum efn-
um hafði rabbí-inn, presturinn, æðstu
völd, Kona hans, sem kölluð var reb-
etsin, var sjálfkrafa æðst meðal kvenna
Lögregluþjónar voru óþarfir, því að
mjög sterkt almenningsálit og öflug
samkennd íbúanna sá um að lögum
guðs og manna og vilja rabbísins var
fylgt í einu og öllu. Mannvirðingar og
þjóðfélagsstaða var ekki' miðuð við
auð eða afl einstaklingsins, heldur
menntun hans og manngæzku.
M.
L óðir Davíðs Sarnoffs var af
Pribin-ættinni, sem var í miklu áliti.
Þótt fjölskyldan byggi í hiörlegu húsi
og hefði verið sárfátæk í marga ættliði,
töldust til hennar margir rabbínar, fórn-
ardýraslátrarar (,,shoktim“) og prédik-
arai-, sem voru vel að sér í helgum fræð-
um og guðræknir. Afi Davíðs, Shmuel
(Samúel) gamli Pribin var einna mest-
ur lærdómsmaður þarna um slóðir.
Hann lagði stund á að auka þekkingu
sína alla ævi þekkingarinnar vegna, því
að aldrei vann hann sér inn svo mikið
sem einn kópeka. Kona hans, Rivke
(Rebekka), sem var hörkudugleg, varð
því að sjá fyrir fjölskyldunni, sem
stöðugt bættist við, meðan Shmuel rýndi
í forn helgirit og baðst fyrir. Öllum
þótti þetta sjálfsagt, og ekki sízt Rivke
gömlu. Hún gekk þorp úr þorpi, sumar
og vetur, og seldi brauðhnúða með
kjötmauki og sýi'ópsdrykki á markaðs-
torgum. Samt hafði hún tíma til að
elda mat, þvo og sauma heima fyrir.
Börnin urðu níu, einn sonur og — átt-
föld ógæfa — átta dætur. Shmuel tók
þessu öllu með ró, og stolt fjölskyld-
unnar varð hann, er hann hlaut virð-
ingarsæti við eystri vegg sýnagógunnar
og var stundum beðinn um að stíga í
stólinn, þar sem hann hélt ágætar sabb-
ats-ræður. Til Shmuels og Rivke má
rekja mörg einkenni hinna fjölmörgu
afkomenda þeirra: lærdóm og fræða-
áhuga hans, og hagnýtar gáfur og óbil-
andi dugnað hennar.
E
'avid Sarnoff fæddist í Uzlian,
afskekktu gyðingaþorpi í Minsk-héraði
í Hvíta Rússlandi 27. febrúar 1891. Þetta
var fornfálegt samfélag bláfátækra en
heittrúaðra gyðinga, eins og Sholem
Aleiohem (Sholom Aleikhem eða Schol-
om-Alejchem) hefur lýst þeim meist-
aralega í sögum sínum. Þorpið var á
svæði, sem zar-stjórnin hafði úthlutað
annars flokks borgurum sínum, Gyð-
ingunum. Þeir drógu fram lífið á heima-
iðnaði, smáiðju á litlum verkstæðum
og lítilfjörlegu prangi við fólkið í ná-
grannabyggðunum. Fólkið lifði alger-
lega utan við heiminn umhverfis það,
trúði því varla, að sjórinn væri til,
nema af því að minnzt var á hafið í
helgiritum þess, og hafði aldrei séð
skip eða eimlest. Öllum sögum utan
úr heimi var tekið með varúð og tor-
lzta dóttirin, Leah (Lea), giftist
ómenntuðum og heilsutæpum húsamál-
ara, Abraham Sarnoff, og 1891 fæddist
fyrsti sonur þeirra, David. Um þessar
mundir var Nýi heimurinn, Ameríka,
farinn að verka eins og segull á gyð-
ingana í ghettóum Austur-Evrópu,
Fyrstu mennirnir, sem fóru vestur frá
Uzlian og nágrenni, voru ungir og ó-
kvæntir menn. Þeir skrifuðu bréf heim
til sín, sem voru lesin upp á samkund-
um og höfðu mikil áhrif. Mörg bréf-
anna voru reyndar stíluð til heilla
þorpa. í þeim mátti lesa, að í Ameríku
væri næg vinna, nógur matur handa
öllum, skýjakljúfar og eimlestir, eu
engir kósakkar. Merkilegast þótti þó,
Framhald á bls. S
Framkv.stJ.:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Ritstjórn
Utgefandi
Sigfas Jónsson.
Siguröur Bjarnason fr& Vtgur
Matthías Johannessen.
Eyjólfur KonráS Jðnssón.
Arm GarSar Kristtnsson.
Aðalstrætl B. Siml 22480.
fi.t. Arvakur. ReyKJavlK.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
5. júní 1966