Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1966, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1966, Blaðsíða 4
HANNES JÓNSSON: Breiðfirzki presturinn og bræðurnir þrír „MT essvegna, bændur góðir, berið þið vel á, því það er eins með grösin og mennina, að þau hafa tilhneigingu til að hefja sig upp úr skítnum", sagði Ingimundur Guðmundsson búfræðing- ur. Hann var Húnvetningur, sem stríddi gegn straumnum, stiklaði fossa, og hopaði hvergi. Svona er íslendingseðlið. Menn eru að lifa upp reynslu ættanna, eru fram- hald þess sem var. Meðvitimdin er að visu óljós, en þó örugg. Ef foreldrinu tekst ekki að ná upp á tindinn, er treyst á, að afkvæminu takist betur, nái takmarkinu. En eðli ættanna er að sækja sífellt á brattann, láta aldrei undan síga, læra og þroskast. En svo er forsjónin, hún er vitur. „Syndir feðranna koma fram á böm- unum í þriðja og fjórða lið“, sögðu Gyð- ingar. í>að var og er vitur þjóð. Ef foreldrið hefir gert einhverja vitleysu, sem kölluð er synd, verður það að skilja, að vitleysan er vitleysa. Og hvað er þá viturlegra en láta reynsluna koma fram á afkvæmunum, láta þau þjást íyrir syndir feðranna, sem fylgjast með ættinni og finna sárt trl þess að hafa bakað afkomendunum böl. Við það þroskast þeir og verða vitrir, en af- kvæmið þroskast einnig við reynsluna. Hún er góður skóli. Z ón Bjarnason, sem var prestur I Vogi við Breiðafjörð, hefir verið af- komandi göfugrar ættar. Hann var kall- aður „kerlingardraugur" í skóla, fyrir einhverja vitleysu sem hann gerði. Séra Jón mun hafa verið örsnauður í skóla og var það alla ævi, og haldinn minni- máttarkennd. Þó hann væri fluggáfaður og ágætlega lærður, bar aldrei á hon- um. Og aldrei ýtti hann frá sér, þó traðkað væri á honum. En séra Jón átti metnað fyrir börn sín, þau áttu að hefja ættina til vegs og virðingar. Sonum sínum þremur kenndi hann undir skóla, og var við- brugðið, hve vel undirbúnir þeir komu. Og allir komust þeir ti'l háskólanáms og fullra mennta. Og þótt Blín, dóttir séra Jóns, væri lítt eða ekki skólageng- in, var hún svo vel undirbúin heima, að það var sótt um hana til að kenna dætrum á höfðingjasetrum og auðmanna heimilum í Dölum og Breiðafjarðareyj- um. „Magnús prestiur, Bjarni sonur og Helgi minn“, sagði séra Jón um syni sína. Hann hefir þekkt innræti og hneigðir þeirra. Séra Magnús var skap- aður fjármálamaður, lagði ofurkapp á að verða auðugur og hefja sig þannig upr úr fátækt og umkomuleysi. Það ofurkapp líkaði séra Jóni ekki. Bjarni frá Vogi var glæsimenni og allt vel gefið, nema fjármálavit. Séra Jón var stoltur af Bjama sem stjómmála- manni, ræðuskörungi, rithöfundi og skáldi. En vænst þótti séra Jóni um Helga frá Vogi; hann var svo góður og í rauninni alltaf elskulegt barn, þó hann væri vel gáfaður og hámenntað- ur. E n fátæktin i Vogi var mikil. Þó ljónsungar yxu þar upp, var oft knappt til matar og klæða. En aldrei var leit- að til annarra eða ágengni sýnd. Séra Jón varð að vera smali sjálfur og þoldi það í auðmýkt eins og annað umkomu- leysi. Eitt sinn ,er hann kom heim úr smalamennsku, var Bjarni ferðbúinn, vel klæddur, ætlaði í heimsókn að Kvennabrekku. „Það er naumast að þú ert stásslegur, sonur“, sagði séra Jón. „Já, ég ætla að sýna höfðingjunum þar efra, að smalinn í Vogi á myndarlega syni“, svaraði Bjarni. En þegar bændurnir þurftu að skrifa skýrslu var leitað til séra Jóns. Eitt sinn þurfti að skrifa skýrslu um hey- birgðir. Gamli presturinn lá í rúmi sínu vegna kuldans í hrörlegum bæjar- húsunum, sem ekki var hægt að hita upp. Presturinn bað þá að koma með ritföngin til sín í rúmið, en þá var blekið frosið, svo að hann varð að þíða það milli rekkjuvoðanna. mt að eru nær 60 ár síðan tveir synir séra Jóns kenndu mér í Verzlun- arskólanum. Ég var feiminn, heimskur og illa undirbúinn. En Helgi frá Vogi var svo góður, að feimnin fór úr mér og ég var ekkert hræddur við hann. Hann var hryggur þegar ég sagði vit- leysur, sem oft var. Mér þykir innilega vænt um hann enn, en ég man ekkert eftir vitleysunum, sem ég sagði hjá Helga. En svo varð Helgi veikur um tíma; hann var heilsuhrlaður og dó ungur, og þá kenndi Bjarni frá Vogi okkur fyrir Helga. Hann skammaði mig ekki fyrir vitleysurnar, en napurt háðsglottið man ég enn; það var ekki betra en hrísvönd- ur. Og vitleysurnar man ég enn. Bjami frá Vogi var kennari, sem vildi kenna og gerði háar kröfur til skilnings. Bjarni frá Vogi var glæsimenni svo af bar að málsnilld, og málfegurð. Svo er sagt um Sigurð Fáfnisbana, að hann talaði í hendingum slétt mál og fagurt, svo hverjum þótti það rétt, sem hann sagði. Sama mátti segja um Bjarna frá Vogi; Dalamönnum þótti það eitt rétt og satt, sem hann sagði. Skörungsskapur Bjarna frá Vogi kom okkur vel í viðskiptunum við Dani. Það hefði meira verið sveigt undan, hefði Bjama ekki notið við. Framkoma Bjarna frá Vogi var sú sama við smæl- ingja og stórhöfðingja. Hann var í raun- inni jafnaðarmaður og sjálfstæðismaður um leið, eins og fjöldi íslendinga er. En Bjarni gat ekki þolað heimsku. „Þú ætlar líklega að verða fjár- málaglópur eins og hann faðir þinn, drengur minn“, sagði Bjarni við ungan son sinn, um leið og hann rétti honum tvær krónur fyrir forláta barnabyssu. Þetta var í búðinni hjá mér. Bjarni hafði ekki fjármálavit og vissi það vel. Séra Magnús Bl. Jónsson frá Valla- nesi hitti ég ekki fyrr en hann var orðinn háaldraður. Ég var sendur með skuldabréf, sem hann átti að borga. Hann var þá farinn að heilsu og sagði mér kurteislega, að sonur sinn sæi um þetta fyrir sig. Séra Magnús var fallegt gamalmenni, svipurinn góðmannlegur, og hefir áreiðanlega ekki verið vondur maður, þó auðsöfnun á langri ævi hafi orðið honum hugðarmál. Menn, sem fengu lán hjá honum, töluðu yfirleitt hlýlega um hann í mín eyru, sögðu að hann gengi ekki fast eftir skilum, ef honum var sagt frá erfiðleikum. Þó er enn talað iila um séra Magnús og það af þeim, sem hvorki sáu hann né reyndu. O vona er viðhorf mitt og sjónar- mið til feðganna frá Vogi við Breiða- fjörð. Mér hafa alltaf funaizt örlög þeirra hugstæð. Að vísu sá ég séra Jón aldrei, en heyrði oft sagt frá hon- um, oftast í nöprum tón. En háöldruð breiðfirzk vinkona mín, greind og marg- fróð, hefir sagt mér frá heimilinu í Vogi, sem hún þekkti vel. Hún dáist enr að glæsimennsku og málsnilld Bjama frá VogL mikill prestur. Síðast mun séra Jón hafa verið á vegum Bjarna sonar síns, þakkiátur öllum sem sýndu honum góð- viid, alltaf sama hlédræga og hógværa prúðmennið. Séra Jón þekkti vel eigin smæð og fánýti jarðneskrar speki. Hann befir verið vel undirbúinn undir nám og þroska eilífðarinnar. 0 Séra Jón Bjarnason. Lífsstarf sitt, prestsþjónustuna, mun séra Jón ekki hafa stundað lakar en aðrir stéttarbræður hans. En hann hafði ekki löngun til að hreykja sér upp yfir fjöldann eða blekkja sóknarbörnin með málskrúði. Því þótti hann ekki tilkomu- rlög feðganna frá Vogi eru einn þáttur lífsins, hins „Guðdómlega gleði- ieiks“, þar sem skiptast á hlátur og gratur, gleði og sorg. Og allt er það gert í ákveðnum tilgangi, til að kenna ættinni og þroska hana. Forsjónin er vitur og góður kennari. Það er sam- eiginlegt við of mikinn auð og mikla örbirgð, að einn þátturinn í skapgerð mannsins ofþroskast, en aðrir eðlisþætt- ir verða þá um leið vanþroska. Séra Magnús Bl. Jónsson lagði ofur- kapp á auðsöfnun. Þó hann væri vafa- laust góður maður að upplagi, nutu aðrir eðliaþættir hans, hið góða og fagra, ekki þess þroska sem þeim bar. Þetta verður hann að skilja, og af- komendum hans verður falið að sann- færa hann um það. Bjarni frá Vogi lagði ofurkapp á stjórnmálalegt vald. Hann vissi, að mælska og málsnilld er öruggasta leið- in til að ná valdi yfir öðrum, enda var hann að upplagi skáld og dáði feg- urð. En einnig hjá honum urðu aðrir betri eðlisþættir vanþroska. Það er hjá Helga frá Vogi einum, grasafræðingnum góðkunna, sem hið gullvæga meðalhóf er. Hann var allt- af góður, iðkaði gæði, en sóttist ekki eftir valdi. Hann hefir verið léttstígur á eilífðarbrautinni, og blómin hafa bros- að við honum. Eilífðin er vafa'laust endalaust nám, manninum fer sífellt fram við göfgandi gæði og fegurð. Áður var talið að æðsti unaður væri í sjöunda himni. En geta himnarnir ekki eins verið sjötíu sinnum sjö, eins og maður á oft að fyrirgefa mótgerðir? Guð er vitur og réttlátur, Kristur er mildur og góður. Og einhverntíma kemst óvinurinn í neðra að því, að illskan er hreinasta vitleysa. En líklega verður anzi langt þangað til. Hér byrtist gömul Ijósmynd af færeyskum kútter, sem er að sigla heim frá Grænlandsmiðum. Kútterarnir gömlu gátu verið fallegir undir seglum og ekki sízt, ef þeir voru á fullu skriði. 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS. 21, ágúst 1960

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.