Lesbók Morgunblaðsins - 26.11.1967, Síða 3
Jökull Jakobsson:
Metúsalem! Slafraðu ekki svona í
þig grautn'um! Manni verður bumb-
ult! Svei mér þá! Metúsalem!
Metúsalem hélt áfram að slafra í
sig grautnum, það slettist upp á nef
á honum og rann ofan á hökuna.
Metúsalem!
Metúsalem hélt áfram að slafra og
ráðskonan gekk að honum snúðugt,
tók af honum skeiðina og bankaði
léttilega á handarbakið á honum
eins og gert er við ódæla krakka,
svo hristi hún úr skeiðinni ofan í
diskinn og skóf síðan grautarslett-
urnar framan úr Metúsalem. >að var
'heldur vonleysislegt verk, því graut-
urinn sat fastur í skeggbroddunum.
Metúsalem þó!
Hún fór í grautinn með skeiðina,
bar hann síðan að munninum á
Metúsalem, hann opnaði munninn svo
að hakan næstuim því nam við brjóst
ið.
Ekki svona mikið Metúsalem. Þá
lekur þetta úr þér aftur.
Hún lyfti aðeins undir hökuna á
Metúsalem.
Svona, nú ertu góða barnið. Akkú-
rat svona, já. Ég vissi þú getur ver-
ið svo penn.
Hún maltaði hann á nokkrum
skeiðum og þurrkaði svo fra-man úr
honum með pentudúk.
Reyndu nú sjálfur. Og þú rétt ræð-
ur því hvort þú setur graut ofan í
Fötin! Hann Guðjón sem á von á
dóttur sinni og tengdasyni rétt á
efitir!
Hún sagði Fötin með stóru etffi.
Metúsalem hélt áfram að slafra í
sig grautnum, ráðskonan gekk í
kringum borðið og fylgdist með hinu
fólkinu.
Hvað er þetta Fía mín, ætlarðu
virkilega ekkert að láta ofan í þig?
Þetta gengur ekki . Ekki ertu hrædd
um línurnar manneskja! Þær geta
ekki betri verið-
Nei Metúsalem þó! Ég skil ekk-
ert í þér!
Hún hljóp til og tók utan um úln-
liðinn á honum, stýrðj hendinni aftur
ofan i diskinn og losaði skeiðina úr
greipinni.
Ég vissi það hlaut að enda með
því að þú settir ofan í Fötin!
Hún tók hníf af borðinu og skóf
með ýtrustu varfærni ofurlitla slettu
sem ihafði sest á jakkaiboðunginn.
Metúsalem þú sem varst svo mik-
ill séntílmaður!
Hún brá sér í skápinn í horninu
og kom aftur með sitóran smekk úr
plasti og hnýtti honum rækilega ut-
an um hálsinn á Metúsalem. Smekk-
urinn náði alveg niður á læri.
Svona slafraðu nú!
Hún gekk enn einn hring um borð-
ið.
Fia mín, mér líst ekkert á þig.
Þú snertir ekki á matnum.
Svo settist hún út í horni þar
sem hún átti kaffibolla og sígarettu
og hélt áfram að fletta Tímanum:
Jæja, þá á að krýna Íranskeisara
í dag! Haldiði það verði fjör ha?
Þú ættir að vera komin þangað
Sigga. Það held ég þú gætjr tekið
sporið! Það eru 27000 demanývr í há-
sætinu hans, rúbínar og srrwragðar
segja þeir hér. Haldiði bara það sé!
Og kórónan keisaradrottningarinnar,
hún er með þrjá stóra og 36 litla
smaragða, 499 demanta, 36 rúlbína og
105 perlur, ég skal segja ykkur! Ja,
Sigga þetta væri nú eitfchvað fyrir
þig. Sjálfsagt hafa þeir gömlu dans-
ana í kvöld, heldurðu manneskja. Svo
eru komnir sérfræðingar frá Frakk-
landi til að stjórna flugeldasýningu.
Metúsalem!
Skeiðin hafði dottið úr höndun-
um á Metúsalem og hann
horfði fram fyrir sig, 'hann riðaði
í sætinu og horfði einkennilegu
augnaráði fram fyrir sig. Ráðskon-
an sprafct á fætur og stikaði til Métú-
salems, þreif sfeeiðina úr bjöltu hans
og setti hana í diskimn, M'etúsalem
hreyfði hvorki legg né lið.
Metúsalem! Ég skil ekki í þér!
Nú munaði litlu þú setitir ofan í
Fötin!
Hún þurrkaði úr plastsmekknum
með pentudúknum.
Ég skil ekki í þér MetÚ9alem. Þú
9em ert búinn að fiá heimsókn mað-
ur. Svei mér, ég held að hefði átt
að láta klæða þig úr Fötunum fyrir
matinn.
Hún maJtaði Metúsalem á nokkr-
um skeiðum í viðbót. Þurrkaði svo
framan úr 'honum.
Guðjón! Þú átt ekki að sleikja
hnífinn. Hvað er ég oft búin að
segja þér! Svona já maður, láttu
bnífinn á borðið!
Hún gekk enn einn hring í kring-
um borðið, settist síðan í skotið sitt
og hélt áfram að drekba kaffið og
fletta Tímanum:
Og svo á að dubba keisarasoninn
upp í krónprins, haldiði bara! Hann
er bara sjö ára skinnið. Ja mikið
er á barnið lagt, segi ég nú bara.
Nú heyrðist langur ropi frá Metú-
salem.
Metúsalem!
Ráðskonan skellti kaffibollanum
harkalega á undirskálina.
Þú færð enga 'heimsókn ef þú
hegðar þér svona.
Metúsalem ropaði á ný. Svo rang-
hvolfdi hann augunum, riðaði í stóln-
um, skeiðin féli úr höndum hans á ný.
Loks féll hann fram fyrir sig með
andlitið ofan í diskinn.
Hún hringdi bjöllunni og eftir fá-
einar mínútur kom gangastúlkan og
rétt á eftir eldabuskan og þær gátu
lagt Metúsalem á bekk í hliðarstof-
unni. Læknirinn kom líka von bráð-
ar, þá höfðu þær losað um háls-
málið á skyrtunni og læknirinn
hlustaði hann dálitla stund. hristi
síðan 'höfuðið. Ráðskonan gekk aft-
ur fram í matstofuna.
Jæja, ef allir eru orðnir saddir
þá skuliði ganga ósköp pent fram
í setustofu. Það er útvarpsmessa á
eftir. Fía mín, þú kannt að opna
útvarpið.
Hún hjálpaði Guðjóni á fætur og
studdi hann fram ganginn, eftir það
var hann sjálfbjarga, hann gat ’hald-
ið sér í handriðið sem fest var við
veggina.
Einn tveir þrír . . . svona já. Bráð-
um kemur fólkið þitt Guðjón minn.
Svo gekk hún aftur í hliðarstof-
uina. Hjúkrunarkonan var komin.
Læknirinn var að láta niður. Það
var búið að veita Metúsalem ná
bjargirnar. Ráðskonan þurrkaði
framain úr honum ímyndaða grautar-
slettu með pentudúknum.
Svo skuliði klæða hann strax úr,
stúlkur mínar, svo Guðjón geti feng-
ið fötim. Hann á von á fólkinu sínu
rétt á eftir.
26. nóvember
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3