Lesbók Morgunblaðsins - 25.02.1968, Blaðsíða 11
til SigtíÉia eða Gripsholm.
— Sástu þarna margt merkilegt?
— Við skoðuðum gömlu Uppsali, hof
og hanga, Ynglingahanga. Þar er Óðins-
hús, gamalt timburhús. Þar er seldur
Uppsalamjöðurinn frægi. Hann er sterk
ur. Ufltpskriftin fannst skráð á skinn
í hofrústum. Ég drakk þrjár flöskur.
— Hann er munntamur, hann fæst
hvergi í heiminum utan Óðinshúss, og
enginn fær að fara með dreggjar út.
Trúlega er þetta mungáttð gamla, Óð-
insmjöð kalla þeir það, og hafa mikla
leynd yfir brugginu.
— Þú hefur komið þarna í söfn?
— Já, þar sá ég hluti, sem mér varð
starsýnt á: Codex Argentum, silfurhand
ritið. Það kom frá Prag í 30 ára stríð-
inu, fyrsta þýðing biblíunnar utanRóm
aveldis, er á gotnesku, talið ómetan-
legt að verðgildi, ritað á skinn, sem
strengt er á tréspjöld. Svo var það
Uppsalabók af Sæmundar-Eddu. Hún
er komin héðan, kannske frá Jóni Egg-
ertssyni úr Möðruvallaklaustri, hann
fór með svo mörg handrit, — mér þykir
það líklegast.
Ég kom í Uppsalaháskóla. Yfir dyr-
unum þar standa þessi spöku orð: Att
tanka fritt ar stort — att tanka ratt
ar störra. — Við sátum þarna veizlu.
Þar sem íslendingarnir skyldu sitja, var
enginn íslenzkur fáni, en ég sá fána
annarra þjóða á borðunum. Þó komupp
í mér þjóðarmetnaðurinn, og ég neit-
aði að setjast niður, nema úr þessu
væri bætt. Gekk í einhverju þrefi og
loks var forstjóri staðarins sóttur. Bað
hann afsökunar og sagði, að ekki væru
til nema tveir íslenzkir fánar, en þeir
væru á neðri hæðinni og þangað fórum
við. Eftir það var allt í lagi.
— Ég kynntist þarna finnskum kenn-
ara, sem sagði mér margt um árásar-
hugmyndir Rússa. Og eftir heimkom-
una skrifaði ég grein í Vísi, langa grein
sem birtist í tveimur blöðum. Þau seld-
ust bæði upp, — en ég var stimplaður
nasisti fyrir vikið.
Þegar svo af innrásinni varð, 1939
— var séra Sigurður einn ræðumanna.
Hann hafði ásakað mig áður fyrir heila-
spunann í blaðinu, en nú afsakaði hann
sig gagnvart mér. Allt þetta hafði ég
vegna finnska kennarans, sem ég kynnt
ist fyrir að mögla yfir fánanum. — En
hún var lesin greinin mín. Ég var víst
nokkuð harðorður, — en hann hafði
sagt mér þetta allt. En ólgan var mikil
í Reykjavík, þegar Rússar réðust á
Finna. Og útaf þessu öllu var ráðizt
á mig í Bankastræti og átti að berja
mig, það var manntötur, sem var víst
keypt til þess. Hann var atvinnulaus.
Ég talaði við hann seinna, og ég gat
útvegað honum vinnu og varð allt mein
laust milli okkar eftir það.
Og nú stendur Jón upp, segist ekki
mega tefja lengur að sinni. Hann er
nokkuð stirðlegur í hreyfingum og á
erfitt með fyrstu skrefin.
— Þetta er gigtin, nú er hún að segja
til sín. Þegar ég var strákur vann ég
mikið á blautum engjum, það var ó-
hollt að standa í forinni. Við vorum
þar oft einir, faðir minn og ég. Hann
of gamall, en ég of ungur. Nú er það
að segja til sín. Þá fræddi hann mig
um marga hluti. Hann var slæmur þessi
tjarnarheyskapur, og nú er vosbúðin
að koma fram í fótunum.
— Já, enginn flýr elli, segi ég um
leið og Jón er kominn út í dyrnar,
en endaðu nú spjallið að þessu sinni
með því að segja mér eitthvað yfir-
skilvitlegt.
Jón hlær. — Ég var búinn að segja
þér frá því, þegar ég var nærri búinn
að drepa mig í Hvítá. Það var eitthvað
fimm mínútum fyrr, — þá var eins og
hvíslað að mér: Farðu og náðu í sjó-
hattinn. Ég átti gulan sjóhatt og hljóp
inn og sótti hann og lét á hausinn,
þótt engin rök mæltu með því, enda
þurrt veður. Og ég var með hann, þegar
ég fékk höggið í hausinn, annars hefði
ég drepist.
— Og hattinn geymi ég enn.
ROMMEL
Framhald af bls. 9
svo til óhindraður fyrst framan af en
lenti síðan í æðislegum bardögum.
Þegar Rommel sá að ósigurinn nálg-
aðist en að stjórn óvinahersins virtist
eitthvað laus í reipunum, greip hann
að vanda til djarflegra aðgerða. Hann
tefldi fram flestöllum bryndrekum sín-
um í stórfelldri atlögu við baksveitir
Breta til þess að reyna að knýja þá
til undanhalds. Þegar skriðdrekar hans
birtust með miklum gný í röðum ó-
vopnaðra brezkra birgðaflutningavagna
varð uppi fótur og fit meðal óttasleg-
inna ökumanna hinna ”hörundsárari“
farartækja og flýði hver sem betur gat
yfir eyðimörkina.
Áttunda ' herdeildin gæti vel hafa
gefizt upp í viðureigninni hefði ekki
brezki yfirhershöfðinginn, Auchinleck,
flogið þangað og tekið við stjórninni
Hann neitaði að láta skjóta sér skelk
í bringu og hélt uppi álaginu á Þjóð-
verja og ftali.
Þrátt fyrir lélegra skipulag og her-
búnað varð lokaútkoman greinilegur
sigur Breta: Þeir misstu 18.000 menn
í valinn en felldu, særðu eða tóku til
fanga 60.000 úr liði óvinanna, þar af
21.000 Þjóðverja
Það er nokkuð kaldhæðnisleg stað-
reynd, að í árás Rommels á baksveitir
Breta voru skriðdrekar hans aðeins í
mílu fjarlægð frá tveimur aðal birgða
stöðvum þeirra. Eyðilegging birgðastöv
anna hefði verið mikilvægur sigur fyr
ir öxulveldin en Þjóðverjar vissu ekki
af þeim þarna, svo vel voru þær fald
ar.
í janúar 1942 hörfaði Rommel til
E1 Agheila og voru þá tveir þriðju
hlutar hers hans eyddir. Af skriðdrek
unum 412 voru aðeins 26 eftir, af 1000
flugvélum höfðu 800 týnzt. Sjálfur
hafði hann nærri jþví verið tekinn til
fanga og hafði undirforingi í aðalstöðv-
unum bjargað við málum fyrir hann.
Tíu dögum síðar, þann 21. janúar
gerði hann árás. Skriðdreksveit hans
hafði verið styrkt og var tala þeirra
nú hundrað en varnarlið hafði hann
ekkert. Þetta var enn eitt hættuspil.
“Takið með ykkur þriggja daga matar
skammt og fylgið mér,” var skipun
hans. í þetta skipti vann hann leikinn.
Tækni, undrun og heppni áttu sinn
þátt í því en Rommel freistaði gæf-
unnar eins lengi og hann gat og óð
gegnum brezka brynsveit áfram til E1
Gazala og Bir Hacheim. Hann var aftur
kominn þangað sem hann var áður en
áttunda herdeildin hóf árásir sínar.
Enn hafði hann heppnina með sér.
Á sama tíma og Þjóðverjar endurnýj-
uðu liðssveitir sínar var brezka liðs-
aukanum dreift til Austurlanda fjær,
þar sem Japanir gengu berserksgang.
Þann 27. maí lagði Rommel enn til at
lögu. Enn byggði hann á dirfskuaðgerð
um, svo djarflegum að um eitt skeið
var Afríkuherdeildin umkringd og
nærri lömuð vegna eldsneytisskorts.
En dirfskan borgaði sig enn og bryn-
sveit Breta var eyðilögð. Brezka fót-
gönguliðið hafði engin vopn sem dugðu
gegn skriðdrekunum og leiðin til Egypt
alands lá opin. Tobruk féll 21. júní -
og stjórn Churchills var nærri fallin
með henni.
Nærri vistalaus og með tylft skrið
dreka sem enn voru gangfærir, kom
Rommel að síðustu varnarlínu Breta,
um dagleið frá Alexandríu.
Línan lá frá hafinu nærri E1 Alamein
um 35 mílur til suðurs að hinni miklu
Qattara lægð þar sem mjúkur sandur-
inn var ófær yfirferðar. Hliðaratlög-
um varð ekki beitt og Þjóðverjarnir
urðu að gera árásina beint af augum.
Þeim mistókst. Um miðjan júlí höfðu
báðir aðilar sezt að meðfram nokkurn-
veginn fastri víglínu.
Rommel byggði upp, fékk liðstyrk
og reyndi aftur. f þetta sinn brauzt
hann gegnum jarðsprengjusvæði við
suðurenda víglínunnar, beygði síðan
til norðurs og ætlaði að króa Breta
inni. f stað þess rakst hann á niður-
grafna brezka skriðdreka, bakverði
við miðbik varnarlínunnar hjá Alem el
Halfa hryggnum. Þar var Rommel
aftur hrundið þann 1. september. í
þetta sinn var mótherji hans Bernard
L. Montgomery undirherforingi (síðar
Montgomery markgreifi af Alamein)
sem nýverið hafði tekið við stjórn átt-
undu herdeildarinnar.
Rommel var nú sjúkur maður -
sennilega ekki síður af sálarlegri en
líkamlegri þreytu. Hann fór heim til
Þýzkalands í sjúkraleyfi og sá þá for-
ingjann í nýju ljósi. Hitler var einnig
að niðurlotum kominn. Styrjöldin var
nú að byrja að breyta um stefnu og
honum hefur án efa verið það ljóst.
Hið fyrra öryggi foringjans hafði vik-
ið fyrir sefasýki, hann gaf út óráðs-
kenndar fyrirskipanir, sem aðeins
gátu orðið Þýzkalandi og herjum þess
til falls. Það var augljóst hverjum
þeim sem augu hafði, að maðurinn
hafði ekki hugsun á öðru en sinni eig-
in dýrðlegu ”forlagabraut“. Hitler fann
ekki til neinnar hollustu gagnvart fólk
Framhald á bls. 12
Móttekið drottningarbragð
Hvítt: Polugafevsky (Sóvétríkin)
Svart: Szabo (Ungverjaland)
Budapest 1965
1. d4 d5
2. c4 dxc4
3. Rf3 Rf6
4. Rc3 a6
5. e4 b5
6. e5 Rd5
7. a4 Bb7
8. e6
Á þennan hátt reynir hvítur að
hindra eðlilega þróun svörtu mann-
anna.
8. — fxe6
9. Rg5! Rxc3
10. bxc3 Dd5
. Be2
Hvítur fórnar þriðja peðinu.
11. -— Dxg2
12. Hfl Bd5
13. Bf4 b4
14. Bg4
Svartur virðist standa illa. Ef nú t.d.
14. - Bb7 15. Bh3 Dc6 16.
Bxe6 og hvítur hefur margvíslegar hót-
anir. En Szabo finnur hugvitsamleggt
framhald.
14. — h6!!
15. Bh3 Dxg5!
16. Bxg5 hxg5
17. Bg4 Rc6
18. cxb4 Rxb4
Svartur hefur tvo menn og þrjú peð
að auki fyrir drottninguna og menn
hans standa allir mjög virkir.
19. Be2 Hh4!
Hótar 20,- Hxd4
20. Hcl He4
21. Hc3 Rd3t
22. Hxd3 cxd3
23. Dxd3 e5
Hvítur bauð jafntefli sem svartur
þáði. Skemmtilega skák!
Einhver glæsilegasti skákmeistari
sem komið hefur fram hin síðustu ár
er Bandaríkjamaðurinn Robert Fischer.
Hver stórsigurinn hefur rekið annan
bæði í heimalandi hans og alþjóðlegum
mótum og hann hefur orðið geysi - vin-
sæll, ekki sízt fyrir það hvernig hann
vinnur skákirnar. Taflmennska hans er
hnitmiðuð og hvöss og honum tekst oft
að ljúka skákum sínum fljótlega með
snjöllum leikfléttum. En hann hefur
einnig yfir að ráða frábærri tækni í
endatafli, sem oft hefur riðið bagga-
muninn í keppni við sterka andstæð-
inga. En skapgerð hans virðist ekki
vera að sama skapi heilsteypt, því hon-
um hefur ekki tekizt að beizla svo geð
sitt að vel hafi farið á milli hans og
þeirra er haft hafa samvinnu við hann
á skákmótum. Til að bæta gráu ofan á
svart hefur hann, líkt og landi hans
Reshevsky, blandað trúmálum inn í
skákmál sín. Reshevsky er ortodoks
Gyðingur, en Fischer telur sig Aðvent-
ista. Þessvegna telja þeir sig ekki geta
teflt á föstudögum og ekki fyrr en
klukkan 7 á laugardagskvöldum. Af
þessu hefur að sjálfsögðu leitt hin
mestu vandræði fyrir stjórnendur skák
móta, þar sem þeir eru á meðal kepp-
enda, eins og frægt var er Fischer
varð að hætta þátttöku í síðasta milli-
svæðamóti í Túniz í Afríku vegna deilu
við skákstjórnina. En nóg um það, nú
skulum við kynnast ofurlítið handbragði
þessa snillings við skákborðið.
Sikileyjarvörn
Hvítt: Fischer
Svart: Dhely (Ungverjalandi)
Tefld í Krusevo í Júgóslavíu 1967.
1. e4 c5
2. Rf3 d6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 Rc6
6. Bc4
laust og bjó sér ákveðið kerfi í h
um hann.
6. — e6
7. Bb3
Að hörfa þannig strax var e
Fischers hugmynd.
7. — a6
8. f4 Da5
9. o-o Rxd4
10. Dxd4 d5
Þessi leikur í þessari stöðu hefur oft
verið nefndur Fischers - leikur, því
hann beitir honum undantekningar-
Svartur átti kost á drottningarskipt-
um 10. — Dc5, en Ficher hefur ekki
óttazt það með talsvert rýmri og betri
stöðu eftir 11. Dxc5.
11. Be3 Rxe4
12. Rxe4 dxe4
13. f5!
Þessi leikur hefur komið Dhely á ó-
vart. Ef 13. — exf5 14. Ba4f b5
15. Dd5! Hb8 16. De5f og öllu
er lokið.
13. - Db4
Svartur hefur nú skipt um skoðun og
býður nú drottninarkaup, en —
14. fxe6 Bxe6
15. Bxe6 fxe6
16. Hxf8 !!
Fischer er á öðru máli. Hann hefur
komið auga á snjalla leikfléttu.
16. — Dxf8
17. Da4f! Gefið
Ef kóngurinn fer nú til 17. — Kd8
leiðir 18. Bb4f! til máts. Ef 17. - bð
18. Dxe4 Hd8 19. Dc6f 20. Hdl De7
21. Bg5!
25. febrúar 1968
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H