Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.1968, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.1968, Page 1
□ □ jcmí^xc Oi J Tilihlökkunin var óumræðileg og ég aðeins á f jórtánda ári. Fyrstu göngur unglinga eru ætíð við- burður og ekki síst þegar þæx eru um 'leið mikilsháttar göngur. Að vera kominn í þá tá að teljast gjaldgengur gangnamaður. Ja, hver er annars enn kominn til að segja það og sanna? Þeistareykj aland er á miðri Reykja- heiði. Þar eru Þeistareykiir, sem af og til var býli áður fyrr, óra leið frá öðrum bæjum og jafn lanigt til fjögurra kirknai Iiúsavíkurkirkju, Gairðskirkju í Kelduhverfi, Reykjahlíðarkirkju og Grenjaðarstaðarkirkju, sem var sóknar- kirkjan. Jæja, þar förum við þá, tveir sitrákl- ingar jafnaldrar frá Sandsbæjum, Sandi og Sílalæk. Ég var nokkuð stór og sterkur eftir aldri, hinn mikið minni vexti. Ég á afa-Rauð og Friðjón Jónas- son á Skjóna gamla minnir mig. Mal- pokarnir hossast og dingla, því við höfum gaman af að láta skokka austur göturnar. Og áður en dregur að dagsetri. í Þverárhlöðu verðum við að komast meðan ratbjart er. Hvorugur hefiur far- ið þessa leið áður. Ég vil engae þreyta með masi um hlöðuvistina, enda búinn að gleyma öli- um orðaskiptum nema heilsun gangna- foringjans, er við birtumst í bagga- gatiinu: — Jæja, sagði hann, eiga þetta að heita gangnamenn og fuliltrúar stór- bændanna á Sandsbæjum? Og þetta er sent upp á reginfjöll, þar sem alJira veðra er von. Hvað haldið þið nú dreng- ir mínir að verði úr ykkur þar ef illviðri gerir, þoku eða stórhríð? Bkki vil ég fuilyrða að þetta sé orð- rétt, en svona var meiningin. Báðum mun okkur Friðjóni hafa orðið svipað við, því nógur var metn- aðurinn, að ég ekki segi stórmennsk- an. Gangnaforinginn var Gísli í Prest- hvammi Sigurbjörnsson, þaulvanur stjórnari í Þeistareykjalandi, maður um miðjan aldur, orðskár og oft neiðarleg- ur í ávörpum og tiisvörum, svo að af bar. Ég neita því ekki að mér fundust þetta kaidaæ viðtökur, svona að óreyndu, og tilhlökkun okkar beggja mun hafa snúist upp í bjargfasitan á- setning að duga nú eða drepast eila, þegar tii aivörunnar kæmi austur þar. Upp risum við rúmlega tveim tím- um á undan fyrstu skímu eftir engan svefn í hlöðunni, þó heyið væri þurrt og gott, hjá Árna. Heilsan gangnaforingj ans sauð í okk- ur, að minnsta kosti mér. Leiðin lá um Geldingadai að Sælu- húsmúia fyrsta sprettinn. Þarna mjökuðumst við áfram í blek- myrkri grýtta götuna og ríðum þö slembing þar sem greiðfærast er. Að Sæluhúsmúla eigum við að vera kotrmn ir þegar sauðljóst verður. Sau'ðljóst? Já, þegar sauðkind verð- ur greind í fáeinna faðma fjarlægð. Þá er dagur að renna. Jú. Rétt hafði Gísli reiknað. Tæplega sauðljóst þegar að Múlanum kom. Varla get.ur heitið að þarna fái hest- ur naslað. En þó stigum við af baki. Það var ára- og aldavani. Svo hópuð- umst við saman á Sæluhústóttinni, sem er á hæð. Það var líka vani. Sæluhúsið var fallið fyrir fimmtíu árum eða hundrað. Nafnið er fallegt en. varla hefur byggingin verið mjög sæluleg að mati okkar, sem böðum í rósunum. Liðlega eins mannslengd. Afdrep þó í óveðrum á miðri leið mill Kelduhverfis og Reykjahverfis. Það er lakur skúti, sem ekki er betri en úti. Hér byrjum við að skipta okkur,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.