Lesbók Morgunblaðsins - 22.06.1969, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 22.06.1969, Side 3
BÖKMENNTIR OG LISTIR rpM'Æ' t' |>3J' ifpa^ [fntt-u SjjaafjiaC f Konuríki koma og Móðu- harðindin við sögu. Húsfreyjan á Fjalli, sem er bújörð í hálf- gildings afdal, erfði jörðina eft- ir foreldra sína, og á þessari afskekktu jörð höfðu forfeð' hennar búið frá því fyrir Móðu- harðindi Húr sótti bónda sinn í þéttbýlið og heillaði hann svo, að þegar sagan hefzt, hefur hann unað þarna í fimmtán ár, að mestu án möglunar, að því er lesandanum skilst. En þegar sag an hefst, hefur verið hart vor og störfin erfið, sífelldar á- hyggjur og vökur við umsýslu lambfjár. Og þó að nú sé á Fjalli nýtízkulegt og vandað hús. rafmagn, miðstöð og flest þatgindi nútírr.ans og vegarsam- band komið við umheiminn, hefur hann haft mjög á orði, sagðist ekki þora að yfirgefa börnin. Bóndi hennar vissi, hvað skyldan bauð — og ekki skorti hann viljann, en hvað um mátt- inn?. . .Hann fór. Konan kvaddi hann með þessum orðum: „Þú hefur þetta af Ég finn það. Ég veit það Við erum að hafa okkur fram úr þessu með guðs hjálp.“ Síðan segir svo: „Þessi orð héldu honum uppréttum á sex daga ferðrdagi yfir breiða heiði, tvö fjöll og þrjú vatrrs- föll. Dagleiðirnar gátu ekki orðið langar. Hann þekkti það, sagði amm.a mín og hún fór aldrei með flripur, konan sú. „Og svo?“ spurði nútímabónd- inn. , Eldsnemma á páskadags- morgun fór hún á móti honur upp á Skarð. Það var eins og henmi væri vísað á staðinn. Þá voru kraftar hans þrotnir. Hann var setztur að. Hún hálfbar han:i síðasta spölinn — ogkorn ið. Sumir segja, að hann hafi skriðið 3einasta spölinn.“.Allt bjargaðist. .Og höfundur lætur nútímakoniuna segja, þar sem hún stendui við gluggann og horfir út í gróðradýrð vors- ins: „Hver væri unaður vor- batans. ef aldiei kæmi harður vetur fcins og sá, sem nú er loksins umliðinn?" Ekki þarf lcsandinn að vera í vafa nm, hvað vakir fyrir höf- undinum með þessari sögu, og Sandur í Aðaldal. hennar, en undraðist æ síðan þá dirfsku sína að fara út til húsbónda síns, sem er að leiða fyrstu kindina, sjálfan forystu- sauðinn, undir hnífinn, og bi'ðja hann um frestun niðurskurðar- ins fram yfir páska. Sögumað- urinn segir, að aldrei muni hann gleyma augnaráði hús- bónda síns, þegar hann leit á hann þessu sinni. Og ef til vill olli undrun hans því, að ofð FORNARDYGOÐIR CUÐMUNDUR C. HACALÍN Niðurlag 2. hluta að þau selji jörðinia og flytji á brott þykir spauglaust að láta fjötra sig þarna uppi í af- dal ævilangt við hóflaust strit og ærnai áhyggjur. . En svo hefur tíðin baínað, horfur orð- ið allgóðar og vökum og áhyggj um aflétt. Konunni, sem er jafn- greind og hún er glæsileg og mikillar gerðar, þykir samt all- ur varinn góður, sakir þeirrar veilu, sem hún hefur komið auga á í manndómsmeiði bónda síns, cg þegar henni virðist sér lega vel henta, segir hún hon- um sögu, sem amma hennar sagði henni og gerðist á bú- skaparárum þeirrar formóður hennar, sem var húsfreyja á Fjalli í Móðuhcrðindunum. Þar var þá þannig ástatt vi-ku fyrir párka, að fénaður allur vai fallinn, utan þrír hestar, sem svo var af dregið, að e.igin.r, þeirra var ferðafær. Hjónin höfðu um skeið lifað á steiktum skóræflum, fjallagrös- um og sölvum, er þau höfðu að sér dregið utan af fjörum, en kornhnefi hafði verið treind- ur handa börnunum tveim, öðru á þriðja ári, hinu á fimmta. Þá bar svo við, að boð komu um það, að vinur þeirra hjóna við Eyrarverzlun hefði geymt þeirn hálfa aðra skeppu af korni — eða því sem næst 26 lítra. Hjónin bæði vonu orðin merg- sogin af langvarandi skorti, en í kaupstaðinn var hálfönnur dagleið gangandi manni, þótt fullfrískur væri Konan kvað upp úr um það, að hún treysti sér sjálfri til fararinnar, en vel er hún segð En veila er það, að hann tvískiptir frá- sögninni um Dauðavorið árið 1784 Sagan Staðnin'guir gerist hið svokallaða Skurðarvor. Það kom yfir þjóðina réttum þremur ald- arfjórðungum síðar en Dauða- vorið. í sögunni segir frá þeim, stórbóndanum Þorbrandi á Eyri og konu hans, Gunnhildi. Skurð arvorið lenti hinn annars for- sjáli og stórbrotni bóndi í hey- þroti. Það er öldunigur, sem hjá honiuim var vinniumaður, er söguna segir. Hún hefst á laug- ardagsmorgni fyrir páska. Þá ríkti mikil þögn á heimilinu, unz húsbóndinn rauf hana og sagði: „Pilitar minir, óg verð að biðja ykkur að koma með mér í húsin. Við skerum féð.“ Vinnu- mennirnir voru fjórir. Þrír stóðu þegar upp og fóru með bónda, en sögumaðurinn dokaði við. Það átti að skera 300 fjár, þar af 150 sauði. Gunnhildur hús- freyja kemur til sögumannsins og segir, að nú hafi bóndi henn- ar verið þögull og ekki sofið dúr í fimm sólarhringa og hún engu fengið áorkað um, að hann frestaði niðurskurði fjár- ins. Húsfreyja raælir síðan: „Það er hægt að afbera ósigur fyr- ir ofureflinu. En að ganga í lið með því, hjálpa ofureflinu til að yfirbuga sjáflan sig, það er lítillækkandi, það er óafmá- anlegt. Það afber hann ekki. Allt annað kann hann að geta afborið..“ Og nú biður hún vinnumanninn að leggja sér lið. Og. vimnumaðurinn, sem heitir Sigurbjörn, lætur að orðum Sigurbjarnar dugðu. Fresturinn dugði líka. Þegar sögumaður- inn skýrir frá því, að húsfreyj- an hafi komið til hans og sagt honum, að nú væri Þorbramd- ur sofnaður og öllu óhætt, bæt- ir hann við: „Svo brosir hún í fyrsta sinni, síðan á þorra um veturinn. Enginn veit framar, hvemig hún brosti. Nei. Enn fer um mig hlýindabylgja, þeg- ar ég hugsa um það. Það var eins og sólskin í heilu himin- hvolfi.“ Og svo kemur þá sag- an af því, hvernig Gunnhildur launaði. Ekkert lágkúrulegt var við það, enda Þorbrandi ljúft að láta að vilja hennar. Þau tóku óbeðin allt fé sögumanins- ins, þegar hann sem bóndi lenti í heyþroti. Það var slegið upp fyrir það jötum í bæjardyrun- um og göngunum á Eyri!........ Þetta er vel skrifuð saga, stór- mannleg og þó sennileg. Be myrkrið er að síga yfir. Hús- bóndinn hefur farið að sækja eld og nú bíða hans í kulda og myrkri ung húsfreyja, faðir hennar og öldruð vinnukona, sem á sök á því, að eldurinn dó í hlóðunum — og loks tvö ung og þó alvitkuð börn hjón- anna, en kornabarn sefur í rúmi foreldra sinna. En þrátt fyrir veðurógnina og hjátrúaræði hinmar sakbitnu eldakonu, sem skellir skuldinni af gáleysi sínu á þann vonda og hans þjóna, er húsfreyjan róleg. Hún treyst ir á þrek og hugrekki bónda síns, og faðir hennar styrkir hana í þeirri trú, að horaum fat- ist ekki að rata, og rök hanis eru rök reynslu hans sjálfs og kynna hans af skapgerð, at- hyglisgáfu og karlmennsku tengdasonarins. Og þótt kvöld- vakan líði og langt firam á nótt, án þess að húsfaðirinn komi, glatar hin imiga hústfreyja ekki ró sinni. Og loks dettur hún út af, og síðan sefur hún, unz hún hlýtur laun stillingar sinn- ar og trúnaðartrausts. Bóndi hennar kem.uir ókalinn — og honiuim hetfur tekiizt að vernda „blessaða glóðina". í þessari sögu er brugðið upp skýrri og forvitnilegri þjóð- lífsmynd, og að minnsta kosti þau þrjú, húsfreyjan, faðir hennar og vinnukonan eru dreg in allskýrum dráttum. Hins veg- ar hefur lesandinn lítil kynni af húsbóndanum, hinum hug- rakka og gætna þrekmanni, en ekki fellur mér orðalagið á þeim setningum, sem hann seg- ir við konu sína, þá er húo hefur spurt hann, hvernig hann hafi getað fundið bæinn. Mér finnst sú nakta tilfinningasemi, sem þar kemur fram, ekki í samræmi við þær hugmyndir, sem lesandinn hefur um hann fengið af umtali feðginanna og af því afreki, sem hann hefur unnið. Þá dregur það nokkuð úr veruleikablæ sögunnar, að höfundur segir hana ekki um- búðalaust sem sögulega stað- reynd, heldur kynnir lesandan- um hana sem draum manns, er lagzt hefur til svefns í tóftar- broti hins löngu eydda kotbæj- air, sofið þar réttar sextán mín- útur með undir höfði annan stein þeirra hlóða, er geymdu eldinn, sem þar logaði ýmist glatt eða var vandlega byrgð- ur ösku undir fornlegri fel- hellu. Þá eru eftir fimm sögur, sem engar fjalla um hörmungar þjóð arinnar á liðnum öldum. í þrem þeirra deilir skáldið á sýndar- mennsku og oflæti nýs tíma, í einni á fláttskap og siðleysi undir yfirborði örlætis og glæsi mennsku. í orlofi eru á ferð um landið nýrík hjón, sem áður hafa búið í sveit. í för með þeim eru dætur þeirra, Gógó og Bibí. Þaiu gista á bæ, sem verið hefur fjöl- mennt stórbýli, en nú búa þar aðeins tveir Jónar, faðir og son- ur. Hjónin eru náðarsamlega lítillát, — þau sakna svo sem blessaðrar sveitarinnar, — æ, já, já. Dæturnar, sem eru raun- ar engir kjörgripir siðmenning- ariranar, eru attiLlegar við Jón yngri, og þær eru þannig bún- ar og snyrtar og svo holdgirni- legar, að kvensemin logar upp í Jónka, sem höfundur skilur loks við í glæsibíl hjónanna við hlið Gógóar, drekkandi með henni af stút. Sagan er lipurt skrifuð, en í henni svo sem falskur tónn, er eins og það í höfundinum, sem gefur öllum hinum sögunum gildi, hafi ver- ið „í orlofi“, þegar hann skrif- aði hana. c Oagan Næturstaður fjallar um lærðan, sigldan og glæsi- búinn ofláta, sem sætkenndur lýsir því yfir í brúðkaupsveizlu í sveit, að íslenzk erfðamenn- ing og trú á forsjón sé hverj- um manni — og raunar þjóð- Jessuð glóðin er ekki saga baráttunnar við harðindin, en þó við ærið erfiðar aðstæður, meiri einangrun en algengust var, jafnvel á þeirri tíð, sem sagan gerist á, og við lítinn kost allra lífsgæða og ömurlegt um- komu- og öryggisleysi, ef eitt- hvað bar út af, eins og til dæm- is það, að eldurinn dæi í hlóð- unum í hörkutíð á hörðum vetri. Og það er einmitt þetta, sem gerzt hefur á kotbænum Vegg, sem stendur inni í dal — svo langt frá næsta byggðu bóli, að þangað er nærfellt þriggja tíma gangur á auðri jörð. En nú sér hvergi á dökkan díl. Það er og hvassviðri og kafaldsbylur og ODDUR BJORNSSON KONSERT I fyrradag var stofnað féiag músikvina í kópavogi framkvæmdastjóri tyrannos aurus í kvöld verður konsert klukkan hálf-níu við ósa koparfljótsins (sem rennur í áttina til tunglsins) kór- söngur sporðasláttur spangól og fleira stjórnin 22. júxiií 1969 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.