Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1970, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1970, Blaðsíða 1
Klaus Rifbjerg ANNA (ég) ANNA Höfundur hinnar nýkjörnu verðlaunabókar segir frá því hvernig hún varð til E g verð að viðurkenna, að ég hef frestað þessu fram á síð ustu stund. Ég hef nefnilega ekki vitað mitt rjúkandi ráð. Maður er beðinn að skýra frá því, hvernig ein af bókunum manns varð til. Maðuir verður við þessum tilmælum, af því að maður er góður í sér, og líka vegna þess að maður trúir því, að útbreiðsla listar sé í þágu uppfræðslunnar og líka vegna þess að það hefur visst gildi að hitta lesendur sína öðru hvoru augliti til auglitis. En svo gleymir maður því í lengri tíma, hvað það er eiginlega, sem maður hefur lofað að gera. Og spurningunni: Hvernig varð „Anna (ég) Anna til?“ er tæpast hægt að svara. Satt að segja veit ég það ekki, en ég skal reyna að rifja þetta upp. Eiginlega vildi ég helzt svara þessu á þá leið, að mað- ur byrji efst í vinstra horn- inu á pappírsörk og hætti svo um það bil 200 síðum aftar. Ef heppnin er með. En þetta er auðvitað allt of slétt og felld afgreiðsla á málinu. Maður verður að varast að láta sem þetta sé enginn vandi, því að þá er það auðvitað engin list. Ég vil heldur ekki loka aug- unum fyrir því að skriftir, sjálfur verknaðurinn að skrifa, feli í sér eitthvað dularfullt og óskiljanlegt. Manni líður illa áður en maður sezt við skrif- borðið, en þegar skriftirnar eru komnar í gang, þá er full- nægingin, hvað mig sjálfan snertir, fólgin í verknaðinum. Ég byrja aldrei að semja áður en ég byrja að skrifa, og á þeim tíma sem líður milli skrifta, hef ég alls enga hug- mynd um, hvort ég muni geta skrifað nokkuð meira eða ekki, hvort ég hafi þegar skrifað mírua síðustu setningu eða eigi eitthvað enn í pokahorninu. Gagnrýnendur, sem eru eins konar „frumlesendur", gera sér oft hugmyndir um, hvernig höfundur fari að því að skrifa, og þeir skirrast yfirleitt ekki við að gefa honum góð ráð. Oft fær maður að heyra það, að þeir höfundar, sem hreinskrifa oftast, strika út, byrja upp á nýtt, og verja árum og dögum í sama verkið, séu mestir og endingarbeztir, að það séu þeir, sem munu lifa. Afkasta- miklir höfundar, það eru þeir sem oftast fá skömm í hattinn. Eitthvað er ekki eins og það á að vera. Hann hlýtur að svindla. f>að er eitthvað bogið við fólk sem lætur svona mik- ið frá sér fara. Menn líða önn fyrir sköpunargáfu slíks höfundar. Getur það virki- lega endað nema á einn veg, þegar maðurinn skrifar tvær, jafnvel þrjár bækur á ári? Hin slæma samvizka skólaáranna fylgir okkur lífið út, og oft hef ég sjálfur fengið samvizkubit, þegar ég hef lesið það í blöð- unum, að ég sóaði gáfum mín- um, að nú ætti ég að fara að sjá að mér og semja ekki svona mikið. Ánægðir í bragði benda þeir á, að nú sé tími krafta- verka og ævintýra liðinn, hann hlýtur að fara að þroskast, manngarmurinn, og skilja, að listsköpun er alvarlegup hlut- ur. Að baki öllu þessu grein- ir maður lævísa ósk gagnrýn- enda um að maður ætti helzt að hætta algerlega að skrifa. Þá hefðu þeir að minnsta kosti sannanir fyrir því, að hin góðu ráð þeirra hefðu komið að not- um. Þegar ég hef hagað mér verulega illa og skrifað „of mikið“, þá fer ég að hugsa um Simenon og Mozart. Á sinni stuttu ævi tókst Mozart aldrei að sannfæra velunnara sína, gagnrýnendur eða áheyrendur um að hann væri snillingur, sem semdi ekki „of mikið“. Simenon var öllu heppnari. Hann er nefnilega búinn að lifa svo lengi og semja svo mik- ið og svo mörg góð verk, að hann hefuir sýnt fram á, að þetta er hægt, að það er raun- verulega hægt að vera óeðli- lega aflcastamikill án þess að slaka á kröfum um gæði. Mað- ur virðist því eiga um tvennt að velja: annað hvort að deyja ungur og óhamingjusamur eins og flestir danskir rithöfundar (og komast kannski aldrei að því, að maður var snillingur) eða þráast við og halda áfram að skrifa í þeirri von, að þetta muni fara vel. Sem stenduir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.