Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1970, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1970, Blaðsíða 8
Maðurinn, sem leikur stórmenni allra tíma Heston heima hjá sér. Hann hýr sig vel undir hlutverk sín og lærði m.a. að mála freskur áður en hann lék Michelangelo. Heston er lipur teiknari. Hér er pennateikning af myndatöku- manni eftir hann. ungar koparslegnar dyrn- ar opnast og þarna er Móses — í fögrum klaaðum. Fyrir millj ónir manna í fimm heimsálfum 6r maðurinn sem býr í baróns- heimili í nútímastíl á barmi Coldwater-glj úfranna á Bever- lyhæðum ímynd margra mikil- menna sögunnar, ofurmenna og snillinga undangenginna 3,500 ára. Hann er hið hetjulega andlit E1 Cid, hið særða andlit Ben Húr, hin skeggjuðu andlit Jó- hannesar skírara og Michel- angelo, hin meinlætafullu andlit Sir Thomas More og Charles Gordon hershöfðingja, og hin kunnuglegu andlit forsetanna Jefferson og Jackson. En Charlton Heston er eins nýtízkulegur og Jagúarinn af E-gerð, sem stendur í hinum enda garðsins. Heston vísar leiðina inn í há- hvelfda setustofuna með stein- arninum og spegilfagra útsýn til fjallanna og gljúfranna á aðra hlið en sundlaugina á hina. Hann dregur djúpt and- ann eftir tveggja mílna hlaup- ið sitt, sem er föst venja fimm daga vikunnar. Þ-etta er sá Heston sem hefur aldrei verið kvikmyndaður, nú tímamaðurinn í sínum eigin kast ala. Andlitsfarðinn er horfinn. Brynjurnar og búningarnir hafa verið lagðir til hliðar. Hérna er hann aðeins hann sjálfur með konu sinni Lydiu, fjórtán ára gömlum syni sínum, Frazer, og lítilli dóttur sinni, Holly Anne. Hendur sem hafa sveiflað sverði, spjóti, veldis- sprota og exi halda núna á kaffikönnu. — Eins og allir leikarar, þá er ég samsafn margra hlut- verka, segir hann fyrst. — En það er gæfa mín að safn mitt er fullt af stykkjum og hlutverk- um um mjög marga eftirtektar verða menn. — Lítið þangað og þér mun- uð sjá að ég er leikari, segir hann og bendir á hillur með kvikmyndahandritum og grísk um hairmleikjum í leðurbandi. Málverk og bækur eru allt í kringum hann, þar á meðal dýr mætt safn bóka Hemingways í frumútgáfu. Hann fær sér meira kaffi og heldur áfram. — Mikilmennið gerir okkur órólega, af því að okkur er ljóst, að hann er okkur meiri. Tilraunir eru gerðar til að gera lítið úr mikilmennskunni — okkur er sagt, að Washing- ton hafi notað tennur úr tré, að Miehelangelo hafi reynt kyn- villu — það er reynt að setja þá á bekk með hárgreiðslu- mönnum þeirra. — En ég trúi á mikla menn. öll mesitu afrek í heiminum hafa verið unnin af mikilmenn- um. Við hinir getum haft ómet- anlegt gagn af því að rannsaka sögu þeirra. Þeir gefa okkur tækifæri til að teygja ofurlitið úr okkur. Það hefur verið gæfa mín að þurfa að kynnast hugs- anagangi þeirra. Hinn framúrskarandi áriangur Hestons sem leikara gæti eins vel átt rætur sínar að rekja til þeirra nákvæmu rannsókna, sem hann leggur í hlutverk sín, eins og meðfæddra leikhæfi- leika hans. Cecil B. de Mille sálugi, sem fékk Heston aðalhlutverkið í Boðorðunum tíu (ennþá í þriðja sæti á eftir Gone with the Wind og The Sound of Music) mimntist þess einu sinni að „fyrir allar stórar upptökur var Heston vanu,r að fara í gönguferð, aleinn í búningi sín um, og sökkva sér niður í eigin hugsanir. Ég spurði hann aldrei hvað hann væri að hugsa á slík um stundum, en þegar hann kom til baka og gekk gegnum Arabahópinn, sem var í auka- hlutverkum, hvíldu augu allra á honum og þeir muldruðu full ir lotningar, — Moussa! Mo- ussa! Fyrir þeim, sem allir voru Múhameðstrúar, þá var hann spámaðurinn Móses. í hita egypzku eyðimerkur- innar, þar sem Boðorðin voru kvikmynduð, minntist annar meðlimur kvikmyndafélagsins þess að Heston „vildi ræða um skapgerð Moses við hvern þann, sem vildi hlusta, á meðan við hinir höfðum áhyggjur af því hvar í fjandanum við gætum náð í kaldan bjór.“ Þegar Heston var að búa sig undir að leika Michelangelo í kvikmyndinni „Sæla og kvöl“ eftir sögu Irving Stone, þá las hann (eins og Stone hafði áður gert) mikinn fjölda af einka- bréfum listamannsins. Hann kynnti sér einnig tækni freskó- málara, svo að þegar hann lá á bakinu á smíðapallinum, þá leit hann ekki út eins og hann væri að gena við rúmfjaðrir. Þegar Stone sá Heston klifra niður úr eftirlíkingunni af Sistine-kap- ellunni með málningarslettur á andlitinu, þá hrópaði hann: — Þessi maður er Michelangelo í orðsins fyllstu merkingu.11 En Heston neitar Því. — Allir leikarar vilja ímynda sér, að þeir geti í raun og veru orðið sú pensóna, sem þeir eru að leika. En ég er hræddur um, að það geti aldrei orðið. Ég verð þó að játa, að þegar ég ligg undir þakinu í eftirlíkingunni af Sistinie-kapellunni og kalk- ið drýpur niður á skeggið, þá finnst mér ég vera líkari Michel angelo en nokkur annar jarðar búi. Hann þagnar og hugur hans reikar til baka. — Þegar maður tekur á sig gervi manna eins og Thomas More, Gordon herahöfð ingja, Jefferson, Móses eða Cid — þótt aðeins sé um stundar- sakir — þá líður manni eins og maður sé inni í gríðarstónri bronze-styttu og teygi sig ör- væntingarfullur í allair áttii- til að reyna að fylla út í hana. Heston langaði alltaf til að vera leikari. — Það er vissu- lega allt mitt líf. Það er eins og að anda. Það er mér nauðsyn. Það er eitthvað, sem ég geiri aldrei nóg af — og ef þið spyrj ið hvaða mynd mín sé bezt, þá verður svarið: Sú næsta. Að verða betri leikari á hug minn allan. Mér finnSt ekki leiðinlegt að leika, en það er ekki heldur skemmtilegt. Leikritið getur verið eins erfitt eins og að reyna að greiða úr gaddavírsflækju. þegar þú heyrir ekkert nema þína eigin rödd. Það er ótta- legt, hræðilegt. Allir atvinnu- listamenn, og sérstaklega kvik myndaleikarar, verða að gera hænri kröfur til sjálfra sín en nokkur annar gerir eða er fær um að gera. Þú átt í eilífri baráttu við sjálfan þig til að komast nær settu marki. Ég býst við, að það séu aðeins áhugamenn, sem leika ánægj- unnar vegna. Leit Hestons að fullkomnun hófst, þegar hann var fimm ára og lék sitt fyrsta hlutverk með skólafélögum sínum, þrettán að tölu, í einni kennslustofu í litl- um barnaskóla í Norður- Michigan. Skírnarnafn hans var Charlton CaJter (Charlton var föðuimafn móður hans) og hann er fæddur árið 1923 í Evanston, Illinois. Foreldrar hans skildu seinna, og þegar móðir hanis giftist aftur tók hann upp nafn stjúpföður síns (Heston). Fjölskyldan átti heima í skógarhéruðum Michi- gan. — Þar undi ég mér vel og geri enn, einkum á vetuma. Hinn afarstóri Alsatian-hund- utr við fætur hans lítuir upp við hinn auðheyrða ákafa í rödd hans. Launin fyrir fyrsta stórhlutverkið notaði hann til að kaupa 1400 ekra landssvæði innan við 50 mílur frá bernsku heimili sinu. Hann fer þangað með fjölskyldu sína, hvenær sem tækifæri gefst. Snemma á unglingsárum sín- um fór hann aftur til Evanston og Heston minnist þess að hafa verið „aukagemlingur" og seg- ist hafa verið mjög óhamingju- samur. Hann var lítill eftir aldri, en eftir 16 ára aldur varð hann fljótt fullvaxta. Hann hóf að leika fyrir alvöru, þegar hann fór í Northwestern University, þar sem hannstarf- aði með bekkj arfélögum sínum Patriciu Neal og Balph Meek- er. Þar hitti hann aðra unga leikkonu Lydiu Clarke, smá- vaxna og ærslafulla með meitl- uð kinnbeiin og glettin augu. — Ég bað hennar einu sinni í viku, segir hann brosandi, — og loks árið 1944, um það leyti, sem ég var að fairia erlendis með flughemum, fékk ég skeyti svohljóðandi: „Hef ákveðið að taka bónorði þínu.“ Heston-hjónin héldu upp á silfurbrúðkaup sitt í síðasta mánuði. — Það er ekki alltaf auðvelt að vera gift leikara, viðurkennir Lydia, — sénstak- lega þegar hann ræðir um Dauðahafið við morgunverð- inn eða kemur gangandi inn í eldhúsið í hringabrynju. Heston heldur áfram að 8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. febrúar 1070

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.