Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1970, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 22.02.1970, Blaðsíða 11
Hanna Kristjónsdóttir LJÓÐ Ljóð, sem hvarf mér í nótt hefur skilið eftir tóm í hjarta mínu. Ég reyndi að rifja það upp, en fann aðeinis þögn, dýpri en orð fá tjáð. Nú býr þetta ljóð í þögninni og nístir mig. Björn Stefánsson Landsins heill er hjá þeim ungu SÍÐUSTU misseri hefi ég í starfi mínu sem erindreki hjá áfeng- isvamaráði og með heimsóknum í marga skóla víðs vegar um landið, eignazt í huganum svipmynd af yfirbragði og framkomu nokkurs hóps æskufólks. Og þegar ég lit til Ibaka um nokkra áratugi og ber saman fas og framkomu ungs fólks þá og nú, virð- ist mér að unga fólkið einkennist nú meira en áður af frjáls- legri og djarfri framkomu. Og mig langar til að trúa því, að meira sjálfsöryggi samfara vaxandi möguleikum á almennri fræðslu, hjálpi mörgu ungu fólki til þess að taka skynsamlega afstöðu til ýmissa ríkjandi venja, sem reynslan hefir sannað að valda marg- háttuðu tjóni. I desembermánuði sl. sat ég aðalfund Félags áfengisvarna- nefnda Suður-Þingeyjarsýslu á Húsavík. Þar Ikom meðal annars fram í skýrslu stjómar félagsins frásögn af árangri í ritgerðar- samkeppni, sem félagið gekkst fyrir í skólum sýstunnar á Iiðnum vetri, um efnið tóbak og skaðsemi þess. Þátttaka í skólunum var mjög almenn og margar ritgerðir nemenda voru á einhvem hátt atliyglisverðar. En lesnar voru upp á fundinum þær tvær ritgerð- ir eldri og yngTi nemenda, sem stjóm félagsins dæmdi fyrstu verð- laun, og fylgja þær hér með í þeirri von, að ýmsum fleirum en mér þyki forvitnilegt að kynnast því, sem þetta unga fólk hefir að segja um sígarettureykingar. Gunnlaugur Sveinsson LJOÐ Ég og þú: tvö andstæð skaut hlaðin öllu sem má ekki segja. Raflost einnar nætur grafið í einangrunarplast daganna. Hugsamir um endurtekningu haldið aftur af vingjamlegu brosi stóreignarmanns. Samt óttast ég nálægð þína óttast að verða staðinn að verki og á milli okbar slái ærandi gneista svo við stöndum í björtu báli. Tvær þingeyskar verðlaunaritgerðir um tóbak og skaðsemi þess Gísli Haraldsson Gagnfræðaskóla Húsavíkur Þýðingarmest að byrja ekki að reykja Tóbaksjulrtin er upprunnin frá Suður-Ameríku, og tóbakið framleitt úr þurrkuðum blöðum hennar. Indíánar urðu fyrstir itil að byrja á reykingum. Nú er tóbaksjurtin iræktuð víða í heitum löndum, t.d. sérlega mik ið í sunnanverðum Bandaríkj- unum og í Kína. Ýmsum ilm- og bragðefnum er venjulega bland að í tóbakið til þess að gjöra það eftirsóknarverðara. í tóbakinu er eitt mesta eitucr, sem heitir nikotin. En auk þess er talið að fleiri efni í tóbak- inu séu hættuleg heilsu mannia. Nikotinið er talið hafa sér- staklega skaðleg áhrif á æða- og taugakerfið. Tvær slagæðar, sem kallaðar eru kransæðar næra hjartað. Hjarta mannsins og þar með líf hans á allt sitt undir þessum æðum. Lokist þær og jafnvel ekki nema önnur — er klippt á lífsþráðinn. Þessum æðum hættir miklu meira til að kalka og lokast hjá þeim, sem reykja en hinum sem reykja ekki. Talið er algengt, að æðar þessar byrji að kalka hjá mikl um reykingamönnum fljótlega eftir að þeir komast yfir þrí- tugsaldurinn, en varla fyrr en um sextugt eða sjötugt hjá þeim sem ekki reykja. Þannig verður sígarettan til þess að gjöra þá gamla, sem ættu að vera ungiir. Hver sá, sem reykir mikið, fær langvinna berkjabólgu, þ. e. bólgu í lungnapípurnar. Þessu fylgir stöðug óhreinindi fyrir brjóstinu, og hósti, sem gjörir sérstaklega vart við sig á morgnana, þegar berkjurn- ar hafa fyllzt af slími yfir nótt- ina. Þessi hósti er viðvörunar- mcrki lungnanna gegn því að búa við reykjarmökkinn. En flestir taka ekki tillit til þess ara viðvörunarmerkja sinna eig in lungna. Þeim, sem háðir eru orðnir reykingum hættir mörg- um við að auka stöðugt reyk ingar fremur en að draga úr þeim. Þegar ménn hafa reykt lengi, árum og áratugum saman, fer knabbameinshættan að gjöra vart við sig. Hættan er mest hjá þeim, sem reykit hafa einn pakka af sígarettum á dag eða meira áratugum saman. Við- kvæmni fyrir afleiðingum sígar ettureykinga er mismikil. En sá, sem byrjar að reykja um fermingu og heldur því áfram, getur átt það á hættu að veikj ast af krabbameini í lungum um fertugsaldurinn, einmitt á því skeiði ævinnar, sem flestir eru búnir að vinna sig upp, og hafa áríðandi eða mikilsverðum störfum að gegna, og eru stoð fjölskyldu sinnar. Allir, sem reykja mikið fá ljótari húð af því, ekki aðeins á fingrum, sem oft verða gulir eða brúnir af reyknum, heldur einnig í andliti, sem fær á sig grá- eða gulleitan blæ. Hver sem reykir innanhúss, óhreinkar andrúmsloftið fyrir öðrum, og margir reykinga- menn sýna þeim, sem ekki reykja litla tillitssemi. Áhrifin á fjárhaginn er stór- kostlegt við að reykja. Þegar hjón reykja bæði eins og oft á sér stað, t.d. einn pakka af sígar ettum hvort á dag, þá kostar það um þrjátíu þúsund krónur á ári. Fyrir það fé, sem getur orðið til þess að reykja í sig krabbamein, væri hægt á fáum Fraimihiald á bls. 12. Elín Hróarsdóttir Barnaskóla Reykdæla Enginn ætlar í byrjun að verða þræll tóbaksins Tóbak getur verið mjög hættulegt. í því er sterkt eiitur, sem heitir nikótín. Sá, sem neyt ir tóbaks í fyrsta sinn finnur 'glöggt fyrir eituráhrifunum. Flestir fá svima og ógleði, eða jafnvel uppsölu, en hægt er að venjast tóbakinu smám saman og þola þá miklu meira en í fyrsta skipti. Langoftast byrja unglingamir að reykja, af því að þeir sjá að pabbi eða mamma og félagamir nota tóbak og vilja þá líkjast þeim. Enginn ætlar í byrjun að verða þræll tóbaksins. Bara að reykja til þess að vera ekki mintni en hin ir eða öðru vísi. Ýmsir hætta líka, en þeir eru fleiri, sem finnst eftir að hafa reykt nokkurn tíma í svo mikið ráð- izt að hætta notkun tóbaks, að þeir treysta sér alls ekki til þess. Þeir eru vissir um það fyirirfnam, að ef þeir fái enga sígarettu, verði þeir svo skap- vondir og ómögulegir, að þeir geti ekki haldið það út. Af þess um sökufm byrja líka margir aft ur, sem næstum höfðu vanið sig af notkun tóbaks og nota þá alltaf meira og meira, unz það er orðið stórhættulegt heilsu þeirna. En allir vilja- sterkir menn geta vanið sig af tóbaksneyzlu á tiltölulega stutt um tíma, bara ef nægur vilji er fyriir hendi. Tóbakseitrið lamar ýmis líf- færi svo að þau geta ekki unn- ið störf sín eðlilega og hefur það einkum áhrif á vöxt og þroska unglinga. Allir, sem reykja eitthvað að ráði, verða mæðniir og sljóir með tímanum og margir, sérstaklega konur fá ljótan litarihátt. Sígarlettureikingair eru tald- ar ein helzta orsök lungna- kinabba og skemmda á fleiri líf færum. En lungnakrabbi er mjög hættuleg meinsemd. Það er líka dýrt að nota tóbak. Mörgum finnst það ekki skipta máli, þó þeir eyði allt að 50 krónum á dag fyrir sígarettur, en kvarta svo sáran yfir verði á ýmsum nauðsynjum. En það er ekki mest um vert að pen- ingum er þannig fleygt á glæ, því að heilsutap verður aldrei metið til peninga. En flestir, sem á annað borð eru byrjaðir að reykja, viðurkenna ekki nægilega fyrir sjálfum sér hve miklum skaða tóbakið veldur þeim. Það er því langbezta og ör- uggasta ráðið að reykja aldrei fyrstu sígarettuna. 22. febrúar 1970 iia LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.