Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Side 1

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Side 1
Helztu hrað- aksturskeppnir heimsins • Hvaða bíll er fallegastur? e Tseknilegar upplýsingar um 70 teg- undir nýrra bíla wm : . 'y*i ■ •‘iti m ii S /Tf //SaaÉSöLVSssMfl1 • tjTj ■> mmmÉÍ i Tj y. • 1P tff MÓO BÍLAR OG MENN Á dögunum ílutti kunnur, ís- lenzkur menntamaður erindi í útvarpið undir heitinu „bækur og menn“. Á sama hátt má tala um bíla og menn. Bílar eru orðn ir þáttur í lífi flestra manna, ómissandi tæki til að komast frá einum stað til annars og stundum til nokkun'ar ánægju þar að auki. Eins og menn eru ólíkir hverjir öðrum frá hendi náttúrunnar, þannig eru bílar einnig óliikir hver öðrum að útliti og skapferli. — Bílafraim- leiðsla heimsins er svo fjöl- þætt, að til eru bilar fyrir ólíkustu þarfir. Sumir eru bara einföld farartæki á fjórum hjólum. Aðrir eru í ætt við há- þróuð listaverk. Bílar virðast hafa mismunandi skapgerð; sumir heilla við fyrstu sýn, en falla við nánari kynni. Aðrir láta lítið yfir sér í fyrstu, en sanna kosti sína í daglegri notkun, þegar frá líður. Sumir eru duttlungafullir og óvarlegt að treysta þeim, sumir eru lat- ir og sumir eru viljugir. En umfram allt, eins og öll mann- anna verk, eru bílar meira og minna ófullkomnir. Af hverju sem það stafar, þá hafa menn aðra afstöðu til bíla en til annarra véla og hjálpartækja yfirleitt. Flestum mönnum stendur nákvæmlega á sama um hluti eins og kæli- skápa, eldavélar, samlagningar- vélar eða uppþvottavélar. Þó eru það allt þarfir og ágætir hlutir. En flestir líta öðruvísi á bíla. Það liggur við að sumir geti bundizt biluim, einhvers konar tilfinningaböndum. Þeir dekra við þá á alla lund, eyða tómstundum sínum í að þvo þá og bóna þá og dást að þeim. Sumir taka tryggð við ákveðna gerð og láta sér ekki koma til hugar að kaupa neitt annað.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.