Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Síða 8
HVER FINNST ÞÉR FALLEGASTUR Torfi Jónsson, auglýsinga- teiknari: Citroen DS Eini bíllinn sem 'hefur hrifið mig meira en kassabíll- inn, sem ég smiðaði á mínum yngri árum, er Citroén. Hann er að mínurn dómi listrænasti og bezt hannaði bíllinn á bílamarkaðnuim í dag. Línur hans og form hafa kveikt í mörgum auglýsingateiknurum og til dæmis hefur Aug- lýsingastofa Roberts Delpire harnnað frábærar auglýsing- ar, þar sem fonm bílsins er notað á listrænan hátt. Ég tel að fáir bílar beri jafn samræmdan heildarsvip og Citroén DS. Jón Haraldsson, arkitekt: de Tomaso Mangusta í>að kann vissul'ega að hljcnaa sem þversögn að.tala um fagra bíla við niúverandi íslenzkar aðstæður. En fagur hlutur er æ til yndis, jafnvel þótt í útlöndum sé. Af þeim bílum, sem ég hef séð, vildi ég telja fegurstan de Tomaso Mangusta, sem sá ítalski Ghia teiknaði, og fyrst kom fram 1966. Sá bíll sameinar að mínu viti hreyfingu, afl og stílfegurð í krafti einfaldleika. Gunnar Snæland, nemandi í Myndlista- og handíðaskólanum en ætlar að leggja stund á iðnhönnun: McrCeuCS BeilZ 6,3 Sel Mercedes Benz 6,3 sel, er bezt hannaði bíll sem ég veit um. I honum sameinast allir helztu kostir lúxusbíla og sportbíla. Hreinar og ,funktionelar‘ línur einkenna útlit hans jafnt að utan sem innan og engu aukadrasli er klínt á hann, jafnvel hliðar listar eru þannig gerðir og staðsettir, að þeir verja bíl inn fyrir utanaðkomandi hnjaski. Efnisval og frágang ur er svo gott, að leitun er á öðru eins. Auðvitað var fyrsta bifreiðin mín fallegust eins og fyrsta ástin, sem aldrei gleymist. Ilún var nú engin drusla, drossían sú. Smumingsþefur og eldsneytisdampar, sem af henni lögðu, voru áfengir og ærandi. Hún var upphá og mjóslegin eins og himnastiginn í Haligrímssókn. Hreyfilhljómar og vélartónar voru heillandi eins og heil sinfóníuhljómsveit. Beljandi flautan líktist tveimur sam- stilltum prímadonnum sinni úr hvorum þyngdarflokki. Hún var rimilhjóluð og hátt undir hana. Þegar vel lá á henni og hún þráði að bregða á leik, vaggaði liún sér og dillaði undirstellinu eins og seiðmögnuð mjaðmaslanga og fatafella í Sigtúni. Þá small oft bensíngjöfin óvænt á Framhald á bls. 18 Örlygur Sigurðsson, listmálari: Ford model A 1931 g MORGUNBLAÐIÐ — BÍLAR 1970 18. apríl 1970.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.