Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Qupperneq 11
Citroen Dyane 6 Allar gerð'ir af Citroén eru m-eð einhverju móti ólíkar flestum öðrum bíl- um og auðþekktar. Sökum þess að bílar eru skattlagðir eftir hestaflafjölda í Frakklandi er frönskum bílakaupendum gefinn kostur á þremur gerðum af Citroén með mjög litlum vélum. Vinnslan er eftir þvi, en þar fyrir eru ]>essir bílar a.m.k. mjög vinsælir í sínu hcimalandi. Dyane 6 er 3.87 m á lengd, breidd 150 cm, hæð 154 cm, og hæð undir lægsta punkt 15.5 cm. Þyngdin er 600 kg. Hér eru borðabremsur að aftan og framan, en gírstöng i mælaborði og 4 gírar áfram. Vélin er 33ja hestafla, tveggja strokka, loftkæld. Hámarksliraði er 110 km á klst., en viðbragðið í 100 km hraða er 37.0 sek. Umboð á íslandi hefur Sólfell. Verð: 193 þús. kr. Citroen DSpecial Stóra gerðin af Citroén hefur verið óbreytt að kalla síðan 1956. Fyrir 14 árum var talið að þessi bíll væri alllangt á undan sinni samtíð og að ýmsu leyti má telja, að hann sé það enn. Á ytra borðinu hafa þær breytingar einar verið gerðar, að ljósunum hefur verið breytt, þau eru nú innfelld og ökuljósin snúast með stýri. Þessi ódýrasta gerð stóra Citroén er 4,84 m á lengd, breidd er 179 cm og hæð 147 cm, þyngd er 1260 kg en hæð undir lægsta punkt fer eftir stillingu. Þvermál krappasta snúningslirings er 11 metrar. BíIIinn er 5 manna, fjögurra dyra, vélin að framan, fjögurra strokka, vatnskæld. Þjöppun 8:1, 90 hestafla orka og drif á framhjólum. Diskabremsur eru að framan og borðar að aftan. En bremsumar eru servoknúnar. Skipting er í stýri, ullaráklæði á sætum og aftur- rúða upphituð. Með vökvakerfi bilsins er hægt að hækka hann og lækka. Há- markshraðinn er 160 km á klst. en viðbragðið úr kyrrstöðu í 100 km hraða er 15,0 sek. Umboð á íslandi hefur Sólfell og verðið er 360 þúsund krónur. Dodge Dart Dodge er ein af undirdeildum Chrysler og Dart er bæði ódýrasta og mest selda gerðin af Dodge. Hann er einn af fáum amerískum bílum, sem eitthvað hafa selzt hér á landi á siðustu árum. Lengdin er 4.98 m, breidd 182 cm, hæð 139 cm, þyngd 1320 kg og hæð undir lægsta punkt 18 cm. Þvermál krappasta snúningshrings er 11.55 m, en dekkjastærö 695x14. Dart er 6 manna bíll, 4ra dyra. Vélin er að framan og völ um margar gerðar, 6 eða 8 strokka, allar vatns- kældar. Drif er á afturhjólum. Borðabremsur eru að framan og aftan. Miðað við 115 hestafla vél, verður hámarkshraði 150 km á klst. Viðbragð liggur ekki fyrir. Umboð á íslandi: Vökull h.f. Verð: 486 þús. kr. Fíat 850 Þessi bíll er með þeim minni, sem hinar geysistóru Fiat-verksmiðjur í Torino á Ítalíu framleiða. Minni eru Fiat 500 og Fiat 600. Fiat 850 er 3,57 m á lengd, breidd er 142 cm, hæð er 138 cm, þyngd 670 kg og hæö undir lægsta punkt 12 cm. Þvermál krappasta snúningshrings er 10,2 m. Fiat 850 er fjögurra manna, og tveggja dyra. Vélin er að aftan og drif á afturlijólum. Vélin er fjögurra strokka, vatnskæld og þjöppunarlilutfall 8:1. Hestaflatala 40. Skipting er í gólfi og borðabremsur bæði að framan og aftan. Hámarkshraðinn er 120 km á klst. og viðbragðið úr kyrrstöðu í 100 km á klst. er 35,3 sek. Umboð á íslandi hefur Davíð Sigurðsson og verðið er 179.850 kr. Daf er að tvennu leyti sérstæður bíll. Hann er eini billinn sem framleiddur er í Hollandi, og hann er eini smábíllinn sem framleiddur er sjálfskiptur í venjulegri útgáfu. Lengdin er 3,88 metrar, breidd 154 cm, hæð 138 cm, þyngdin er 785 kg og hæð undir Iægsta punkt er 17 cm. Þvermál krappasta snúnings- hrings er 9,8 m. Daf er 5 manna, tveggja dyra, dekkjastærðin 135x14, vélin að framan og drif á afturhjólum. Vélin er 4 strokka, vatnskæld, þjöppun: 8,5:1 og hestaflatala 50. Daf 55 er búinn diskabremsum að framan en borðabremsum að aftan og um leið sitt hvort bremsukerfið að framan og aftan. Bremsur eru servo- knúnar. Hámarkshraði Daf er 136 km á klst. Viðbragð úr kyrrstöðu í 100 km hraða er 23,3 sek. Umboð á íslandi hefur O. Johnson & Kaaber og verðið er kr. 238 þúsund. Fíat 125 Berlina I útliti er þessi Fiat harla venjulegur og sker sig ekki til muna úr hinni almennu hjörð, en hvað getu áhrærir, er Fiat 125 á við miklu dýrari bíla og ekki síðri en margir sportbilar i akstri. Hann er á lengd 4.22 m, brcidd 161 cm, hæð 144 cm, hæð undir lægsta punkt 18 cm, og þyngdin er 975 kg. Skipting er i gólfi og 4 gírar áfram en diskabremsur að framan og aftan, servoknúnar. Vélin er 90 hestöfl, 4ra strokka, vatnskæld. Hún er að framan en drif á aftur- hjólum. Fiat 125 er fjögurra dyra, fimm manna. Hámarkshraði er 158 km á klst. en viðbragð í 100 km hraða er 14.0 sek. Umboð á íslandi hefur Davið Sigurðsson. Verð: 285.395 krónur. % lií. apríl 1970 MORGUNBLAÐIÐ — BÍLAR 1970 \ ^

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.