Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Side 12

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Side 12
Ford Torino Torino er í milliflokki amerískra bíla, hvað stærð snertir og útlitið sver sig mjög í ætt við Mustang og verður allmjög á kostnað útsýnis, en bíllinn er í sjálfu sér fallega teiknaður. Lengd er 5,20 m, breidd 188 cm, hæð undir lægsta punkt er 15 cm og þvermál krappasta snúningshrings er 11 m. Þyngd: 1325 kg. Skipting við stýri eða í gólfi, 3 gírar áfram, eða sjálfskiptur. Bremsur: diskar að framan en borðabremsur að aftan. Sé Torino með 8 strokka, 300 hestafla vél, verður við- bragðið í 100 km hraða 10,5 sek, en hámarkshraðinn 185 km á klst. Umboð á íslandi: Fordumboðin, Sveinn Egiisson h.f. og Kr. Kristjánsson. Verð: 514 þús. kr. Ford Falcon Árum saman hefur Falcon verið meðal þeirra bíla, amerískra, sem mest hafa selzt. Hann er sterkur og nægilega rúmgóður fyrir miðlungs fjölskyldu, en þar sem lengdin er aðeins 4,68 m, þykir hann ekki alltof fyrirferðarmikill. Út- litið ber talsverðan keim af Mustang. Öll uppbygging er venjuleg. Völ er á 6 eða 8 strokka vél. Skipting við stýri, í gólfi eða sjálfskipting. Standard í Falcon er 6 strokka vél, 100 hestafla. Hámarkshraði er g'efinn upp 145—160 km á klst. en um viðbragð liggja ekki tölur fyrir. Borðabremsur eru á öllum hjólum, tvö- falt kerfi. Umboð: Fordumboðin, Sveinn Egilsson h.f. og Kr. Kristjánsson. — Verð: 474 þús. kr. Gremlin, nýr amerískur smábíil American Motors, sem framleitt hefur Ramblerbíla, hefur nú lileypt af stokkunum bíl, sem minnstur er allra amerískra bíla, og raunar aðeins örfáum sentimetrum lengri en Volkswagen. Eftir útlitinu að dæma gæti hér fremur verið nýr franskur eða ítalskur smábíll, og ef hann verður ekki látinn vaxa upp úr öllu valdi á næstu árum, er ekki að vita nema hann geti orðið Volkswagen skeinuhættur. Allavega skortir hann ekki aflið. Gremlin verður búinn 128 hest- afla, 6 strokka vél, en fáanlegur með 145 liestafla vél. Hann «r með heilu fram- sæti, en tveim nokkuð aðskildum bökum og höfuðpúðum, en fáanlegur með að- skildum stólum. Aftursætið virðist eftir myndum vera fremur þröngt, en það er hægt að leggja fram og myndast þá eitt samfellt rými, aftur í skottið, en hina stóru afurrúðu bílsins er hægt að opna upp á við og myndast á þennan hátt mjög gott farangursrými. Með stærri vélinni verður viðbragðshraði í 100 km hraða 15,3 sek. en hámarkshraði um 150 km á klst. Rambler-umboðið, Jón Loftsson, gat ekki sagt nákvæmlega til um verð, en taldi að það yrði frá 300—350 þúsund. Maverick, smábíll frá FORD Það er ekkert leyndarmál, að hinn nýi smábíll frá Ford, sem nefndur er Maverick, er fyrst og fremst settur á markaðinn til höfuðs Volkswagen. í fyrsta lagi er miðað við að Maverick kosti um 100 dollurum minna en Volkswagen í Bandaríkjunum, en livort það dugar er ekki gott að segja um. Auðvitað varð að gera Maverick stærri en Volkswagen; hann er nálægt 20 cm lengri, og fyrir bragðið gstur herbragðið mistekizt. Þar með er Maverik orðinn viðlika stór og miðlungs Evrópubíll. en a.m.k. í sínu heimalandi verður liann merkilega ódýr. Maverick verður fáanlegur með tveimur vélum, annars vegar 105 hestafla, hins vegar 120 hestafla. Báðar eru 6 strokka og vatnskældar. í útliti minnir Maverick einna h-elzt á Vauxhall Viva; sem sagt hreint ekki ólögulegur bíll, en þakið lækkar mjög aftur á við og gæti af þeim sökum verið lágt til lofts í aftur- sæti. í standardútgáfu er heill bekkur að framan, en aðskildir stólar fáanlegir. Sömuleiðis er hálf-sjálfskipting fáanleg, svipuð eins og Citroen notar. Mælar í mælaborði eru kringlóttir, og mælaborðið er að minnsta kosti talsvert íburðar- meira en í Volkswagen og þótt útsýnið aftur úr bílnum sé ef til vill eilítið skárra en í Volkswag-en sýnist það vera óþarflcga takmarkað. Samkvæmt upplýsingum frá Fordumboðunum hér, mun Maverick kosta um 410 þúsund krónur. Cortina 1300 De Luxe Ef einhver bíll verðskuldar sæmdarheitið „Bíll ársins“ hér á íslandi, þá er það helzt Cortinan, sem upp á síðkastið hefur selzt meira en nokkur annar bíll, enda með ódýrustu bílum miðað við stærð. Cortina er framleidd hjá útibúi Ford í Englandi. Lengd bílsins er 4,27 m, breidd 165 cm hæð 139 cm, þyngd 858 kg, en hæð undir lægsta punkt er 13 cm. Dekkjastærðin er 560x13 og þvermál krappasta snúningshrings er 9,10 m. Cortina er fimm manna bíll, tveggja eða fjögurra dyra. Vélin er að framan, fjögurra strokka, vatnskæld, þjöppun 9:1, drif á afturhjólum og hestöflin 61,5. Diskabremsur eru að framan, en borðar að aftan. Skipting er í gólfi. Hámarksliraðinn «r 131 km á klst., en viðbragðið frá kyrrstöðu í 100 km hraða á klst. er 19,6 sek. Umboð á íslandi hafa Sveinn Egils- son h.f. og Kr. Kristjánsson og verðið er 239 þús. krónur. Ford Zephyr Stærstu gerðirnar frá enska Ford eru Zephyr og Zodiac, þar af er sá síðar- nefndi dýrari. Þessar gerðir hafa ekki selzt til muna hér á landi, af hverju sem það stafar. Zephyr er 4.70 m á Isngd, breidd 181 cm, hæð 143 cm, þyngd 1333 kg og hæð undir lægsta punkt 15 cm. Þvermál krappasta snúningshrings er 11.5 m, og dekkjastærð 670x13. Bíllinn er 6 manna, fjögurra dyra með vél að framan og drif á afturhjólum. Vélin er 4ra strokka, vatnskæld, 118 hestöfl, en skipting í gólfi og fjórir gírar áfram. Fáanlegur er hann með sjálfskiptingu. Diskahrcmsur eru bæði að aftan og framan, tvöfalt kerfi, servoknúið. Há- markshraði er 156 km á klst. >en viðbragðið í 100 km hraða er 14.1 sek. Umboð á íslandi: Fordumboðin: Sveinn Egilsson og Kr. Kristjánsson. Verð er 365 þús. kr. 1;2 MORGUNBLAÐIÐ — BÍLAR 1970 18. apríl 1970.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.