Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Side 16

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Side 16
Renault 6 Þetta er milligerð af Renault, mitt á milli R 4 og R 16, þó nær þeim fyrr- nefnda. Bíllinn er án alls íburðar, einfaldur í sniðum og þykir góður brúkunar- hestur. Eins og í öðrum bílum af þessari gerð og raunar í öllum frönskum bílum er fjöðrunin mjög góð. Lengd er 3.85 m, breidd 154 cm, hæð 150 cm, þyngd 750 kg. Þvermál krappasta snúningshrings er 10,1 m. Renault er 6 og 5 manna, og 5 dyra, en vélin er aðeins 38 hestöfl, 4ra strokka, vatnskæld og drif á fram- hjólum. Borðabremsur eru í bak og fyrir. Skipting er í gólfi, fjórir gírar áfram. Hámarkshraðinn er 129 km á klst., og viðbragðið í 100 km hraða er 30,3 sek. Verð: 220 þúsund krónur. Hillman Hunter Hillman Hunter vakti athygli í fyrra með því að vinna hinn ierfiða| kappakstur frá London til Sidney í Ástralíu. Útlitið er hreinlegt en fremur hversdagslegt og þessi bíll er hvað verð snertir neðarlega í milliflokki. Lengdin er 4.30 m, breidd 161 cm, hæð 142 cm, þyngd 936 kg, og hæð undir lægsta punkt 17 cm. Þvermál krappasta snúningshrings er 10.2 m. Skipting er í gólfi og 4 gírar áfram en sjálfskipting fáanleg. Að framan eru diskabremsur en borða- bremsur að aftan, vökvaknúnar. Vélin er 80 hestafla, 4ra strokka, vatnskæld. Hámarkshraði er 144 km á klst. og viðbragðið í 100 km hraða er 16.2 sek. Umboð á íslandi: Egill Vilhjálmsson li.f. Verð: 270.300 krónur. Renault 12 Áður auglýsti Renault „allt að aftan“, þ.e.a.s. vél að aftan og drif á aftur- hjólum en nú er þessu öfugt farið: nú er „allt að framan“. Vélin og drif á fram- hjólum. Þessi nýi Renault er miðlungsbíll að stærð eða tæplega það, lengd 4,34 m og breidd 163 cm. Hámarkshraði er rúmlega 140 km á klst. Renault 12 f jaðrar á gormum bæði að aftan og framan. Gagnstætt því sem g-erist um marga aðra bíla, virðist þak bílsins hæst aftan til, og þar sem afturrúðan er stór, verður ágætt útsýni aftur úr. Umboð: Kristinn Guðnason h.f. Verð: 260 þús. kr. Sceptre er lúxusútgáfa af hinum venjulega Hillman. Stærðin er svo að segja nákvæmlega eins, lengd 4.31 m, breidd 163 cm, hæð 142 cm, og liæð undir lægsta punkt 17.1 cm. Dekkjastærð er 600x13, en þvermál krappasta snúnings- hrings er 10.2 m. Sceptre er innréttaður nokkuð á gamla brezka vísu; í mæla- borðinu er valhnota og margir kringlóttir mælar. Þegar litið er inn í þennan bíl, verður ljóst að hann getur aðeins verið bnezkur. Hvarvetna er að sjá góðan frágang og hreinar línur. Vélin er 94ra hestafla, 4ra strokka, vatnskæld. Skipting er í gólfi, 4 gírar áfram og sjálfskipting fáanleg. Sceptre er þó aðeins með diskabremsum að framan. Að aftan eru borðabremsur en servoknúnar. Hámarkshraði er 150 km á klst., og viðbragðið í 100 km hraða 11.9 sek. Umboð á íslandi: Egill Vilhjálmsson h.f. Verð: 368 þús. kr. Með sjálfskiptingu: 378 þús. krónur. Renault 16 SL Þetta er ein dýrasta og vandaðasta útgáfan af R-enault. Hún er fáanleg í j>rem mismunandi útgáfum með mismunandi sterkum vélum. SL er þeirra ódýrust. Þessi franski bíll hefur livarvetna vakið athygli fyrir framúrskarandi mjúka fjöðrun en vélarorkan er tæplega eftir því. Vélin er 4ra strokka, vatns- kæld og drif á framhjólum. Með 63ja hestafla vél verður viðbragðið í 100 km hraða 18.0 sek. og hámarkshraði 139 km á klst. Lengdin er 4.23 m, breidd 165 cm, liæð 145 cm, þyngd 980 kg og hæð undir lægsta punkt 11.5 cm. Þvermál krappasta snúningshrings er 10,6 m. Bíllinn er 5 manna, 4ra dyra. Að framan er hann búinn diskabremsum en borðabremsur «ru að aftan. Skipting er í gólfi en einnig er hann fáanlegur sjálfskiptur. Umboð: Kristinn Guðnason li.f. Verð: 310 þúsund. Rambler Hornet American Motors Corporation, þriðja stærsta verksmiðja Bandaríkjanna liefur ekki tekið þátt í kapplvlaupinu um hinar miklu yfirstærðir og nú hefur verið hleypt af stokkunum bíl, sem á að geta keppt við Volkswagen í Banda- ríkjunum og -e.t.v. ekki siður hinn nýja keppinaut Volkswagen frá Ford, Maverick. Þessi nýi Rambler er kallaður Hornet, og verður ódýr hér á mæli- kvarða amerískra bíla. Lengdin er 4.54 m, breidd 180 cm, liæð 130 cm, þyngd 1160 kg, hæð undir lægsta punkt 18 cm. Þvermál krappasta snúningshrings er 11.20 m, og dekkjastærð 695x14. Ilann er tveggja dyra, 5 manna. Vélin 145 ha. og 6 strokka, vatnskæld. Fáanl-sgur með stýrisskiptingu og þrem gírum áfram eða sjálfskiptingu. Borðabremsur eru bæði að aftan og framan. Hámarks- hraðinn er 150 km á klst., en viðbragðið í 100 km liraða er 14.2 sek. Uinboð á íslandi: Jón Loftsson li.f. Verð 430 þús. kr. 16 MORGUNBLAÐIÐ — BÍLAR 1970 18. apríl 1970.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.