Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Qupperneq 23
Volkswagen 1600 L
Allar gerðir Volkswagenbíla eru með vélinni a'ð' aftan og drifi á aftur-
hjólum en farangursrými að framan. Breytingar á 1970 árgerð eru þær sömu
og á Volkswagen Fastback, en að ytra útliti hefur þessi gerð verið óbreytt í
allmörg ár. Lengd er 4.37 m, breidd 164 cm, hæð 147 cm, dekkjastærð 600x15,
og hæð undir lægsta punkt 15 cm. Þvermál krappasta snúningshrings er 11.2
m og þyngd 925 kg. Skipting er í gólfi og 4 gírar áfram. Sjálfskipting er fáan-
leg. Að framan eru diskabremsur en borðabremsur að aftan. Vélin er 65 hest-
afla, 4ra strokka, loftkæld. Hámarkshraði er 138 km á klst. og viðbragð í 100
km hraða er 20.8 sek. Umboð á íslandi Hekla h.f. Verð: 280 þús krónur.
Volvo 142-144
Þegar Volvo kemur fram með nýja gerð, má óhikað spá því að ekki verðl
hróflað við útlitinu heilan áratug. Volvo 144 kom fram 1967 sem endurnýjun
á hinum vinsæla Volvo Amason og má búast við að hann verði framleiddur
enn í mörg ár óbreyttur. Smávægilegar tæknilegar breytingar eru þó gerðar
öðru hvoru og í ár er breyting á loftræstingu, höfuðpúðar á framsætum og
upphitun í afturrúðu. Volvo 142 er tveggja dyra sn Volvo 144 er 4ra dyra og
nokkuð íburðarmeiri, en boddýstærð er sú sama á þeim báðum, lengd 4.64 m,
breidd 174 cm, hæð 144 cm, hæð undir lægsta punkt 21 cm, og dekkjastærð
165x15. Volvo 142 er 1100 kg en hinn 25 kg betur. Vélarstærðir eru 90 hestöfl
og 118. Vélin er 4ra strokka, vatnskæld. Allur öryggisbúnaður er í sérflokki,
diskabremsur á öllum hjólum, servoknúnar og tvöfalt kerfi. Skipting er í
gólfi, 4 gírar áfram, en sjálfskipting fáanleg. Miðað við 90 hestafla vél er há-
markshraði 146 km á klst. en viðbragðið í 100 km hraða er 16.0 sek. Umboð á
íslandi: Gunnar Ásgeirsson. Verð: Volvo 142: 349.600 kr. Volvo 144: 387.300 kr.
Volkswagen 411
Volkswagen verksmiðjurnar í Þýzkalandi færa sig öðru hverju upp á
skaftið með stærri og dýrari útgáfur, og 411 er nýjasta og dýrasta útgáfan
þaðan. Þessi bíll er 4,52 m á lengd, breidd er 163 cm, hæð 145 cm, þyngd 1020 kg
og hæð undir lægsta punkt 14 cm. Dekkjastærð er 155x15 og þvermál krappasta
snúningshrings er 11,4 m. Volkswagen 411 er framleiddur bæði tveggja og
fjögurra dyra, en eins og í öðrum Volkswagenbílum er vélin að aftan og drif
á afturlijólum. Vélin er 4ra strokka, Ioftkæld, þjöppunarhlutfall 7,8:1 en hestöflin
76. Skipting er í gólfi og tvöfalt bremsukerfi, diskar að framan en borðar að
aftan. Viðbragðið frá 0 í 100 km á klst. er 18,5 sek. Umboð á íslandi hefur Hekla.
Verðið er 350—400 þús. krónur.
— Örlygur
Framhald af bls. 19
Ameríkana. Þessi ódýra undra-
bifreið (miðað við gæði) setti
svip sinn og mótaði heila kyn-
slóð harðsoðinna, hraðasjúkra
og ökuóðra Bandaríkjamanna.
Hún varð eiginlega eins konar
ímynd hinna liorfnu, hvellandi
og svellandi jazzára og gat
breytzt í blýspúandi morðvopn
hinna hrellandi og mellandi
bannára. Það var næstum hægt
að láta hana dansa Charleston á
sólbökuðu malbikinu, svo vel
lét hún að stjórn. Það var í
henni, sem Kaninn uppgötvaði
aftur-sætið til Amorsbragða og
Moonshine drykkju. Það var í
einni slíkri, sem mætur
borgarstjóri New York City
stjórnaði borginni sinni ein-
vörðungu í gegnum tal-
stöð í framsætinu á fleygi-
ferð innan borgarmúranna. Sá
varð aldrei rykfallin, óraunsæ
skrifstofublók, eins og alltof
margir kyrrstæðir og langstæð
ir pótentátar þjóðfélagsins. Það
var ein slík sitronmáluð Ford-
ynja, sem endaði á einu and-
artaki eins og sundurskotin og
götótt tesía undir glæpahysk-
inu Bonnie og Clyde. Það var
jafnvel álit manna fyrir vestan,
að Henry Ford hefði tryggt sér
himnaríkisvist fyrir uppfynd-
ingu sína á hinu lieimsfræga
bílamódeli sínu sem hann hóf
fyrstur manna f jöldaframleiðslu
Framhald á bls. 30
Kjörseðill 1970
Ekki vegna jþess að hann hefur nú unnið Safari-keppnir í Afríku 4 skipti í röð.
Ekki vegna þess að erlend fagtímarit hafa dæmt hann beztan í sínum yerðflokki!
Heldur vegna þess hvernighann hefur reynzt við íslenzkar aðstæður og vegna
liins liáa encíursöluverðs. Leitaðu álits hvaða Peugeot eiganda sem er.
KOSNING PEUGEOT ER ÞVÍ TRYGGÐ !
18. apríl 1970.
MORGUNBLAÐIÐ — BÍLAR 1970 23