Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Síða 25

Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Síða 25
Peugeot 204 Peugeot 504 Peugeot 404 Valiant er nokkurs konar Fólksvagnsútgáfa frá Chrysler-verksmiðjunum ogf sökum v-erðlagsins er hann einn af fáum amerískum bílum, sem eitthvað hef- ur verið seldur hér á landi að undanförnu. Hann er traustur og rúmgóður og allt sem heitir íburður liefur verið af honum sneitt. Lengdin er 4.79 m, breidd 182 cm, hæð 139 cm, þyngd 1220 kg, og hæð undir lægsta punkt 18 cm. bvermál krappasta beygjuhrings er 11.5 m, og dekkjastærð 695x14. Valiant telst venju- lega 6 manna bíll, en minnsta fáanlega vélin er 115 ha., 6 strokka og vatnskæid. Hún er að framan og drif á afturhjólum. Skipting er við stýri, þrír gírar áfram, en sjálfskipting fáanleg. Hámarkshraði er 140 til 150 km á klst., en viðbragðið í 100 km hraða er 14.1 sek. Umboð á íslandi: Vökull h.f. Verð: 465 þús kr. Auk þess er framleidd tveggja dyra gerð, Valiant Duster, sem kostar 440 þús. kr. Hér er á ferðinni ný útgáfa af Peugeot, miðlungsbill að stærð með fram- hjóladrifi. í rauninni er þetta lítið eitt breytt útgáfa af Peugeot 204 með 10 hestöflum sterkari vél. Hún er 70 hestafla, 4ra strokka, vatnskæld. Að framan eru diskabremsur, en borðabreinsur að aftan, servoknúnar. Lengdin er 4,14 m, breidd 157 cm, hæð 141 cm, þyngd 870 kg og 12 cm undir lægsta punkt. Hámarks- hraði cr 150 km á klst. og viðbragð í 100 km hraða er 15,6 sek. Umboð á íslandi hefur Hafrafell. Verð: 310 þús. kr. Hollenzka tækniritið Autovisies kaus í fyrra Peugeot 504 sem bíl ársins, en það var einmitt í fyrra, sem þessi nýi Peugeot sá dagsins ljós. Útlitið hefur Pininfarina hinn ítalski teiknað og sver það sig í ættina, en að öðru leyti er þessi dýrasta útgáfa af Peugeot í beinu framhaldi af öðrum bílum verksmiðjunnar, aðeins betur búinn að flestu leyti. Hann er álíka mjúkur og hljóðlátur og 404, en íburðarmeiri og rúmbetri. Lengdin er 4.49 m, breídd 169 cm, hæð 146 cm, þyngd 1150 kg, og hæð undir lægsta punkt er 16 cm. Þvermál krappasta snúningshrings er 10.9 m. Diskabremsur eru bæði í bak og fyrir, servoknúnar. Sjálfstæð fjöðrun er á öllum lijólum og dekkjastærð 175x14. Peugeot 504 er með aðskildum stólum og höfuðpúðamir dregnir upp úr bök- unum þegar þui-fa þykir. Hann er 5 manna, vélin að framan og drif á aftur- hjólum. Vélin er 87 hestafla, 4ra strokka, vatnskæld. Fáanlegur er hann með beinni innspýtingu, einnig sjálfskiptur. Hámarkshraði er 158 km á klst. og viðbragð í 100 km hraða er 15.4 sek. Umboð hefur Ilafrafell. Verð: 390 þús. kr. Plymouth Valiant Af gerðum Peugeot-verksmiðjanna í Frakklandi er 204 ódýrust og í saman- hurði við keppinautana hefur þessi bíll það einkum sér til ágætis, að hann er með framhjóladrifi og sérlega mjúkri fjöðrun. Lengdin er 3.99 m, breidd 156 cm, hæð 140 cm, þyngd 835 kg, og hæð undir lægsta punkt 14 cm. Peugeot 204 er búinn 60 hestafla vél, 4ra strokka, vatnskældri. Skipting er við stýri og 4 gírar áfram. Að framan eru diskabremsur, borðabremsur að aftan, servo- knúnar. Hámarkshraði er 140 km á klst., og viðbragðið í 100 km liraða er 18.8 sek. Umboð á íslandi, Hafrafell. Verð: 275 þús. kr. Peugeot 304 Berline Peug«ot 404 er nú orðinn 10 ára gamall í þeim klæðum, sem hann er nú, og nýtur jafnvel vaxandi vinsælda. Einkum þykir hann framúrskarandi fyrir hljóðan gang og mýkt. Breytingar á árgerð 1970 eru mjög litlar; ögn grennri stuðari að aftan og að framan, krómhringir utan um framljós og svo hefur bakkljósi verið bætt við. Lengdin er 4.45 m, breidd 162 cm, hæð 145 cm, þyngd 1050 kg og hæð undir lægsta punkt 15 cm. Þvermál krappasta snúningshrings er 10,8 m. Diskabremsur eru að framan en borðar að aftan, servoknúnar. Peugeot 404 er 4ra dyra, 5 manna, vélin að framan og drif á afturhjólum. Vélin er 80 hestafla, 4ra strokka, vatnskæld. Hámarksliraði er 155 km á klst. cn viðbragðið í 100 km hraða er 17.7 sek. Umboð hefur Ilafrafell. Verð: 327 þús. kr. ' Plymouth Fury Plymouth Fury er einn hinna stóru amerísku, sem fáir aðrir en leigubíl- stjórar kaupa nú orðið hér. Þar vestra er Fury einn mesti seldi bíllinn frá Chrysler. Lengdin er 5.46 m, breidd 2.02 m, hæð 141 cm, þyngd 1770 kg og liæð undir lægsta punkt 19 cm. Þvermál krappasta beygjuhrings er 13 m, en dekkja- stærð 825x15. Fury er með venjulegri uppbyggingu á allan hátt, hann er 6 manna, 4ra dyra, vélin að framan og drif á afturhjólum. Völ er á nokkrum vélastærðum, sem allar eru vatnskældar, en miðað við 6 strokka 145 ha. vél verður liámarkshraðinn 155 km á klst. og viðbragðið 0—100 km á klst. verður 14,4 sek. Umboð: Vökull h.f. Verð: 562 þús. kr. 18. apríl 1970 MORGUNBLAÐEB — BÍLAR 1970 25

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.