Lesbók Morgunblaðsins - 18.04.1970, Side 28
Land Rover
Landrover hefur um áraraðir sannað ágæti sitt á íslandi, bæði sem land-
búnaðarbifreið og: torfærubifreið. Útlitið hefur lítið breytzt með árunum, en
fáanlegar eru tvær lengdir og hér verður miðað við hina styttri, sem algengari
er. Landrover er 7 manna bíll, fáanlegur bæði með dieselvél og bensínvél. Báð-
ar eru fjögurra strokka. Lengri gerðin af Landrover er einnig fáanleg með 6
strokka vél. Bensínvélin er 81 bestafl, og hámarkshraði 105 km á klst. Lengd
er 3.62 m, breidd 168 cm, hæð 197 cm, þyngd 1523 kg, og hæð undir lægsta
punkt 23.3 cm. Þvermál krappasta snúningshrings er 11.6 m og dekkjastærð
750x16. Skipting er í gólfi og aðskildir stólar að framan, drif á öllum hjólum.
Umboð á íslandi hefur Hekla h.f. Verð með diselvél: 368 þús. kr., með bensínvél:
334 þús. kr.
Bifreið yðarer
vel tryggð hiá ohkur
Við viljum benda bilreiðaeigendum á eltirtaldar
OÁbyrgðartrygging
Bónuskerfið hefur sparað bifreiða
eigendum milljónir króna frá því að
Samvinnutryggíngar beittu sér fyrir þeirri
nýjung. Gætnir ökumenn fá nú allt að 60%
afslátt af iðgjaldi og eftir 10 tjónlaus ár er
11. árið iðgjaldsfrítt.
©Kaskótrygging
Iðgjaldaafsláttur er allt að 40%, ef
bifreið er tjóniaus í eitt ár. — Auk
þess lækka iðgjöld verulega, ef sjálfs-
ábyrgð, kr. 2.000.00—10.000,00, er tekin í
hverju tjóni.
©Half-Kaskó
er ný trygging fyrir allar tegundir og
gerðir bifreiða. Iðgjöld eru sérlega
lág eða frá kr. 850,00 á ári.
OÖF-trygging
Þetta er dánar- og örorkutrygging
fyrir ökumenn og farþega. Bætur
eru frá kr. 100.000,00—600.000,00 og iðgjald
kr. 250,00 á ári.
gniinln^.
Iryggingar og þjónuslu hjá Samvinnulryggingum:
©Akstur í útlöndum
Viðskiptamenn Samvinnutrygginga
geta fengið alþjóðlegt tryggingar-
skírteini „Green Card“, ef þeir ætla utan
með bifreiðir, án aukagjalds.
©10 ára öruggur akstur
Þeir sem tryggt hafa bifreið í 10 ár
hjá Samvinnutryggingum og aldrei
lent í bótaskyldu tjóni, hljóta heiðursmerki
og eru gjaldfríir ellefta árið. .Hafa samtals
á þriðja þúsund bifreiðaeigendur hlotið
þessi verðlaun. 1. mai sl. fengu 225 bifreiða-
eigendur frítt iðgjald og námu brúttóiðgjöld
þeirra kr. 1.148.100,00.
©Tekjuafgangur
Unnt hefur verið að greiða tekju-
afgang af bifreiðatryggingum sex
sinnum á. liðnum árum. Samtals nemur
greiddur tekjuafgangur kr. 68.133.236,00 frá
því 1949.
®Þegar tjón verður
Aft kapp er lagt á fljótt og sann-
gjarnt uppgjör tjóna. Samvinnu-
tryggingar hafa færa eftirlitsmenn, sem
leiðbeina um viðgerðir og endurbætur.
Tryggið bifreið yðar þar sem öruggast og
hagkvæmast er að tryggja.
SAlMVirvrMJTRYGGirVGAR
ÁRMÚLA 3, SÍMI 38500
Dag- viku- og
mánaöargjald
RAUÐARARSTIG 31
28 MORGUNBLAÐIÐ — BÍLAR 1970
18. apríl 1970.