Lesbók Morgunblaðsins - 30.08.1970, Síða 9
Hjónin Ólöf Einarsdóttir og: Janies Stevens á barnnin.
Á ORBEON BAR
Orbeon Bar stendur á horni
King Edwards Str. og Clee-
thorp Rd. og þar ráða ríkjum
hjónin Ólöf Einarsdóttir og
James Stevens og stjórna af
festu og myndugleik. Barinn er
I eigu Bruggsamsteypunnar
brezku, sem á nálega allar bjór
stofur orðið. Þarna er öllum vel
tekið svo lengi sem þeir haga
sér kurteislega. Bjórstofurnar,
sem eru þrjár i húsinu eru litið
sóttar af sjómönnum — enda
þótt Orbeon bar liggi mjög
vel við dokkunum því að kon-
um, sem augljóslega hafa at-
vinnu af skyndiþjónustu við
sjómenn, er stuggað burtu.
Ólöf Einarsdóttir er œttuð úr
Reykjavik, dóttir Einars Dag-
finnssonar þekkts sjómanns,
sem nú er nýlátinn. Hún kynnt
ist manni sínum hér á striðs-
árunum og fluttist út til hans
1947. James var vélstjóri, en
aflaði sér siðan réttinda til að
stjórna bjórstofum, og hefur
gert það hin síðari ár.
Þau hjón eiga einn dreng
barna, Einar að nafni og er
hann í menntaskóla. 1 fyrra
samdi hann mikla prófritgerð í
skóla sínum um þróun Reykja-
víkur og hlaut hún lof kenn-
ara og hyggur Einar á fram-
haldsnám. Ólöf Einarsdóttir er
mikil dugnaðarkona, og aðstoð-
ar mann sinn dyggilega við
reksturinn.
Hún býr til einn öndvegis-
rétt — chicken & chips -— og
kjúklingarnir hennar eru raun
verulegir kjúklingar — hef ég
ekki nema tvívegis etið þennan
rétt hér á veitingahúsi, en það
þykir mér sýnt af kynnum min
um við kjúklingana hennar Ólaf
ar, að eitthvað sé bogið við
kjúklingarækt okkar. Það er
ekki nóg að hafa hin og önnur
erlend nöfn á matseðlunum, ef
rétturinn á síðan ekkert skylt
við það sem nafnið bendir til.
1 Orbeon Bar eru þrjár bjór-
stofur, og er ein fyrir almenn-
ing en dokkukarlarnir hafa
lagt hana undir sig, önnur er
svonefnd „karlastofa", og er
hún einvörðungu fyrir karla,
þar er sjónvarp, og á báðum
þessum stofum er litið borið i
húsbúnað, aðeins skinnklæddir
setbekkir, svo sem venja er á
almennum bjórstofum. Þriðja
bjórstofan er „mixed lounge“,
eða setustofa bæði fyrir karla
og konur og er hún vel búin
húsgögnum, stoppuðum og með
áklæði og öll hin snyrtilegasta.
Þar er að vísu sjónvarp en
það er aldrei opnað, heldur vill
fólkið hafa frið til að rabba
saman yfir bjórkollum sínum.
Bjórinn á Orbeon Bar er alveg
sérstaklega góður og þar er
mikið þambað á öllum stofun-
um eða um tvær heiltunnur á
dag.
Enska bruggið er mjög heil-
næmur drykkur, rikur af víta-
mínum og næringu. Flösku eða
boxabjór, hvort sem hann er
enskur, þýzkur, hollenzkur eða
danskur finnst mér ekki neitt i
líkingu jafn ljúffengur og
enski ámubjórinn. Þessi gulllit
aði vökvi, sem glitrar í glærri
pottkrúsinni og freyðir frá
miðri krús og kúfurinn uppaf
er mikið augnayndi auk heil-
næmisins.
Við, sem búum hér framúrleg
ir og fölir við sólarleysi og
sagðir þrekminnstir og tauga-
veiklaðastir allra þjóða, ættum
ekki að neita okkur um þenn-
an B-vítamínríka drykk og
leggja heldur af horngrýtis
kaffiþambið.
Fólk, sem ekkert þekkir til
drykkjuskapar, ruglar saman
áfengisdrykkju og bjór-
drykkju. Það getur vel verið
að unglingar gætu drukkið sig
fulla af bjór, þeir geta drukk-
ið sig fulla af öllu, jafnvel
magnyl og kóki, en það nenn-
ir enginn fullorðinn maður að
standa í drykkjuskap af því
tagi. Hann þyrfti að leggjast
undir kranann á ámunni með
slöngu í klósettið. Það á
við um bjórinn, eins og svo
margt annað, að það sem hollt
er líkama fullþroska manns,
getur verið óhollt unglingi í
vexti likt og barninu er hollt
að drekka mjólkurbland úr
pela en fullorðinn maður gæti
ekki lifað á þeim drykk. Ung-
lingur hefur líka vafalaust
betra af mjólk en bjór, en ég
held að þvi sé jafn vafalaust
öfugt farið með fullorðna
manninn. Mér finnst það alltaf
ganga úr hófi fram, þegar á
að fara að miða alla hegð-
an íullorðinna manna við það
sem óþroska unglingum kunni
að vera hollt eða óhollt. 1 Eng-
landi og ég held alls staðar I
bjórlöndum er bannað að af-
greiða unglingum innan 18 ára
aldurs bjór.
Bjórinn myndi lækna hér
margan manninn, sem nú þjá-
ist af magakvillum og tauga-
veiklan, vegna kaffidrykkju
og skorts á B-vitamíni. Ég sé
ekki betur og þar eru
fleiri mér samdóma, en allar
okkar nágrannaþjóðir séu
hraustlegri útlits en við, þrátt
fyrir að við búum í heilnæm-
asta landinu. Til þessa liggja
margar ástæður — hitaveita o.
fl. og ég held að bjórleysið sé
ein ástæðan.
Ég hef aldrei fyrr haft neinn
áhuga á bjórsulli hérlendis
enda litil kynni haft af bjór,
nema endrum og eins, ef ég hef
hrokkið út fyrir pollinn, en í
þessari Grímsbæjarför minni
drakk ég bjór daglega og mik-
ið af honum, helzt til mikið
fyrsta daginn, ég varð ekki
drukkinn, heldur fékk ég mar-
t'röð um nóttina, sem ekki er
mér eiginlegt. Ég er nú reynd-
ar ekki viss um að þetta hafi
verið bjórnum að kenna, held-
ur hafi verið drepinn maður í
rúminu sem ég svaf í og það
með einhverjum hryllilegum
hætti. Ég get þó ekki sýknað
bjórinn, þar sem ég drakk ein-
hver ókjör af honum, enda kom
inn eins og þerriblað ofan af
mínu bjórlausa landi, en þegar
frá leið varð mér gott af bjóm
um og ég þekki margt fólk, sem
ég er sannfærður um að bjór-
drykkja gæti læknað af ýmsum
kvillum.
Prófið það andbjórmenn góð
ir, að fá ykkur bjórkollu og
brauðsneið í stað kaffis og
kakna og vottið síðan af
hverju ykkur verður betra.
TOMASAR-
HAGI
ATHU GASEMD
FRÁ
HELGA P. BRIEM
1 Lesbók Morgunblaðsins þann 12.
júli ritar Valdimar Ki’istinsson góða
grein er hann nefnir: Vegir um hálend-
ið. Bendir hann þar á að þörf sé góðs
áningarstaðar á Sprengisandi og segir
um það:
„Nýi Jökuldalur (með þessu móti er
hægt að komast hjá deilum um nafn-
giftina) virðist kjörinn i þessu sam-
bandi."
Heldur virðist mér þetta nafn fátæk-
legt, enda eigum við marga Jökuldali.
Þess ber og að gæta að þessi dalur
hefir fengið nafnið Tómasarhagi, fyrir
meira en hundrað árum síðan, þegar
Jónas okkar Hallgrimsson orti hið litla
en skínandi fallega kvæði sitt.
Fins og menn vita kannaði Tómas
Sæmundsson nýjar leiðir, er hann fór
suður Sprengisand til Fljótshlíðar, með
konu sinni árið 1835. Þá höfðu menn
ekki þorað að fara Sprengisand af ótta
við útilegumenn, líklega í nokkur hundr
uð ár. Þegar skall á blindbylur villtist
hann, enda hafði hann enga leiðarlýs-
ingu. Hestarnir rötuðu samt á eina hag-
ann sem þarna var og er.
Þóttu mönnum það góðar fréttir að
Sprengisandur var fær og að jafnvel
hafi fundizt áningarstaður. Séra Jón á
Grenjaðarstað skrifaði Tómasi þann 18.
janúar 1836 og segir þar: „Yður er alla
æfi héðan af að þakka fund og upp-
götvun hins nýja vegar yfir Sprengi-
sand, er kveikja má nýja communi-
cation milli Sunnlendinga og Norð-
lendinga ásamt störum hagráða þeirra
viðskiptum, sér í lagi Þingeyinga og
Rangvellinga sín á millum."
Það hefir eitthvað skolazt til í mönn-
um hvar Tómasarhagi væri. Á korti
Björns Gunnlaugssonar er hann settur
fyrir norðan Tungnafellsjökul, en þar
eru berar móbergsklappir og ekki sting
andi strá. Þetta eru glöp, því Björn
lýsir landslagi hárrétt, þar sem er fell
þétt við jökulinn með þröngu skarði á
milli, en þar opnast dalurinn.
Á korti herforingjaráðsins er Tómas-
arhagi merktur nokkra kílómetra fyr-
ir vestan Tungnafellsjökul. I fjarska
lítur út fyrir að þarna sé hagi, en þetta
eru grænar mosaþembur en ekki hagi og
nerangur, svo að þarna væri naumast
hægt að hemja hesta.
Tómasarhagi er því sá litli dalur, sem
nefndur er Jökuldalur á kortinu
og grasflesjan við dalsmynnið. Dalurinn
er nokkuð bogadreginn og er þar skjól
fyrir öllum áttum, enda er hann djúp-
ur og hlíðar hans svo brattar að hest-
ar mundu varla fara upp þær að sjálfs-
dáðum. Þar er hestahagi sæmilegur og
dalnum lokað með bungulaga jökulöldu
þar sem gott er að tjalda og þá jafn-
framt að líta eftir að hestar leiti ekki
úr dalnum.
Ég tel því engan vafa á því að þessi
blettur hafi veriö áningarstaður Tómas-
ar, og færi vel á að nefna hann áfram
Tómasarhaga.
Eftirfairandi spil er gott dæmi unn
hve maruðsyralegt það er að wamiarspil-
arar skilji hvwn amman.
Noröur
A Á-D-8-7-6-2
V D-G-4
+ K-D
* 10-8
Vestur
A 10-5-3
V 5-2
+ 10-8-7-4-3-2
* 7-2
Austur
A K-4
y K-io
+ 9-6-5
* Á-K-D-G
5-3
Suður
A G-9
V Á-9-8-7-6-3
♦ Á-G
A 9-6-4
Saigmir genigu þain/nd!g:
Norður — Austur — Suður — Vcstur
1 Spaði 2 LaiuÆ 2 Hjörtu Pass
3 Hjörtu Paiss 4 Hjörbu AKlir paisB
Vestur lét í byrjum út l'aiutfa 7, Austiur
drap með gosa, tók laufa-iás og lét því
næst út laiuifa 3. Auistur siá, að gæiti
hainn (kiomið því til Oleiðax, að saignhalfi
yrði að nota anrniað hiátroimpamma í
borði til að tronnpa laiuif, þá ætti hamn
(Auistuir) vísan Slaig á tromp.
Vestuir var vefl. á verði og trompaði
með hjarta 5 og saignlhafi vairð að trompa
yfiir með gosa. Síðar í spilinu fékik
Auisbur slaigi á spaða cvg tromp, og þar
sem hainm hafði áður feogið 2 slaigi tap-
aðist spilið.
Auigljóst er, að trompi Vestur laufið
með hjarta 2, þá vimnur sagnlhafi spilið.
Hanin getur trompað yfir mieð hjarta 4
og nær síðan tromp kónig og 10 aif
Austri.
30. ágúisit 1970
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 9