Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1971, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.1971, Blaðsíða 4
 víkur og stolið þar blómkáls- höfði og rófum og tekið undan nokkrum kartöflugrösum, ágæt is grænmeti, nema hvað rófurn ar voru dálítið trénaðar. Eftir því sem Óli komst næst hafði kokkurinn slæðzt í þetta hús fyrir tveimur árum að selja líftryggingu. Honum hafði ver- ið boðið upp á glas og strax kunnað svona Ijómandi vel við sig og orðið innlyksa. Filipus sá að hér var snyrtimenni á ferð og þess vegna var hann settur i matseldina. Óli hafði líka sitt embætti í þessu húsi, en það var að varpa mönnum á dyr, ef þeir gerðust baldnir eða gjömmuðu frammí, þegar Filipus var að segja mönnum undan og ofan um líf- ið. 1 Umferðarmiðstöðina voru annars allir velkomnir. Þar komu fylliraftar i lörfum, ungt fólk að puða i ástársorg, fylli raftar með hvítt um hálsinn, soltnir vesalingar, giftir menn í þann véginn að skilja, smáþjóf ar að koma af Litla Hrauni og búa sig undir að fara þangað aftur. Kynvillingur kom líka stundum og var gjaman með blátt auga eða blóðrisa í and- liti, en það spurði hann enginn af hverju. Einu sinni hafði slæðzt þarna inn dómari, en það var fyrir misgáning, hafði ætlað í næsta hús. Þó stóð hann við smástund, svona til þéss að sýna að hann væri mannlegur og að dómarastarfið væri ekki nema eins og hvert annað skitverk, sem einhver yrði að taka að sér. Og hann skálaði við smáþjófinn, sem hann myndi kannski dæma næsta dag eða hinn. Svona var hópurinn sundur- leitur, en mestir aufúsugestir voru peningamenn. Þeim fylgdi skemmtileg atburðarás. Hjólið tók aftur að snúast, óðara var komin kjötsúpa í pottinn og leigubilar voru hafðir í förum eftir áfengi og öðrum nauð- veskinu og Filipus hafði glöggt auga fyrir siiku. Við þá sagði hann ef til vill. „Þetta grey,“ sagði hann, „þetta grey er að faja á sjó- inn, en vantar fyrir stakk og stígvélum." Og væru þeir sadd ir og svolítið meyrir, eftir að hafa gert allt vitlau3t heima fyrir létu þeir oft eitthvað af hendi rakna. Þannig fengna peninga tók Filipus ávallt í sina vörzlu og það voru lögð meiriháttar plön fram í tímann og þegar gullkálfurinn var far inn sína leið, voru peningarnir drukknir út. Annars var það alveg rétt, Óli ætlaði á togara. Það var einungis tímaspursmál hvenær úr því yrði. Hann var orðinn langþreyttur á þessu svalli, já úrvinda og það var ekki nema um tvennt að velja, drykkju- mannaspítali eða togari. En hvernig hafði hann dott- ið svona herfilega í það, tveggja mánaða stanzlaust fylliri? Stundum þegar hann lá vakandi seinni part nætur eða á morgnana, rtfjaðist það upp fyrir honum. . . Jú, það hafði byrjað með smá fingurmeini. Hann hafði langað að breyta svo lítið til, hætta á sjónum um tíma og ráðið sig sem glugga- pússara. Nema hvað einn dag- inn var hann að klifra upp í stiga við Reykjavíkurapótek og fékk þá flís í löngutöng, agnar lítil flís og hann náði henni fljótt úr. 1 fyrstu virtist þetta ekki ætla að verða neitt, en um kvöldið var puttinn orðinn rauður og svo kom ígerð. „Hafðu hægt um þig i nokkra daga,“ hafði læknirinn á slysa stofunni sagt, þegar hann var búinn að binda um fingurinn, „taktu þér fri frá vinnu." Og hvað var þá hægt að gera nema drekka brennivín? Ekki gat hann legið uppi á dívan alla daga og mælt göturnar ófullur, þá list kunni hann ekki. Auk þess átti hann dálít SJÓSTAKKURINN Það var einn sunnudagsmorg- un, að Óli hafði vaknað við pískur frammi á gangi. Húsa- leigan fyrir júlímánuð var ógreidd, og hjónin, sem leigðu honum voru eitthvað að ræða það mál sín í milli. „Láttyjiann hafa það óþveg- ið,“ haTf'ii hann heyrt konuna segja og svo var tekið í hurðar húninn. En dyrnar voru læstar. „Við vitum, að þú ert þama inni,“ sagði kallinn. „Já, ég sé þig í gegnum skrá- argatið," sagði konan og Óli breiddi sængina upp fyrir höf- uð. „Ef þú borgar ekki húsaleig una í dag, látum við lögregl- una fjarlægja þig,“ sagði kall- inn, „þig og allar þínar brenni vínsflöskur." en Óli hafði enga peninga átt og þetta var á fyrstu hæð og seinni partinn þennan sama dag, laumaði hann sér út um gluggann. Flöskurn- ar skildi hann eftir. Konan gat kannski notað þær undir saft í haust, þó auðvitað ekki allar, því að enginn er svo duglegur að fara í berjamó. Svona hafði þetta verið og nú var Óli kominn á bísann, það var ekki um að villast. Þessa dagana, fékk hann að liggja á gólfinu i „Umferðarmið stöðinni" svonefndu, tveggja hæða timburhúsi, uppi á Berg- staðastræti, járnklæddu að utan og dálítið óræktarflag fyrir framan, njóli og arfi, en ekk- ert gras. Hann lá þar í svefn- poka og það var svo sem altt í iagi, nema hvað gólfið var hart og sundum á nóttunni var ókunnugt fólk að detta um hann. Svo var ryk á gólfinu og í svefnpoka er lítið svigrúm til þess að hnerra. 1 „Umferðarmiðstöðinni“ réð húsum Filipus, en hann var i senn yogi, fylliraftur og and- ans mann. Hann hafði ekki gert handartak í sjö ár og var upp með sér af því. Auk hans var þama að staðaldri kokkur inn, en Óli þekkti ekki hans rétta nafn, enda kallaði Fílipus hann aldrei annað en kokkinn. „Hvar er kokkurinn minn?“ öskraði hann stundum svo hátt, að rykið á gólfinu þyrlaðist upp og gluggarnir hristust i faisinu. Þegar búið var að hafa uppi á honum, sagði Filipus, og var þá allt annað en blíður á manninn, „ég hef ekki fengið neinn hádegismat," sagði hann, „er ekki eldhúsið þín deild?" Og ef enginn matur var til, hristist kokkurinn líka eins og gluggarnir, því að hann bar óttablandna virðingu fyrir Fili pusi og ekki dró úr óttanum, ef Filipus var mjög svangur. Fór hann þá ýmist út á götu og sníkti aura eða hann gerði sér ferð niður að höfn og fékk þar gefins fisk. Að sögn hafði hann í fyrrahaust farið alla leið suður í Skólagarða Reykja þurftum. „Bibb“, leigubíll fyr- ir utan. „Bang“. . tappi úr flösku. Þetta voru oftar en ekki . . . flóttamenn. „Konan skilur mig ekki,“ sögðu þeir kannski eða þeir áttu fyrirtæki, sem var undir hamrinum. Þeir voru aldrei glaðir, en peninga höfðu þeir umleikis og ef þeir gerðust hnuggnir um of, tók Filipus þá afsiðis og reyndi að porra þá upp, oftast með ljóðum eftir einhvern Ómar gamla Kaiam, sem hann nefndi svo. Óli mundi sérstaklega eftir einni ljóð- linu og gullkálfarnir dvöldu kannski í einn, tvo sólarhringa og þá voru ekki drukknir nein ir kardemommudropar eða brennsluspritt. Kokkurinn var hundrekinn og á þönum í matn um og gullkálfurinn fékk að velja sér beztu kjötbitana og hann fékk hreint glas, til þess að drekka úr. Sumir voru með marga þúsund krónu seðla i ið af peningum og þetta var um hásumar og það voru marg ir, sem vildu drekka með hon- um. Fyrstu dagana rússaði hann um i prívatbiium, en það var of dýrt spaug til lengdar og þá settist hann á bekki með félögum sínum eða þeir fóru suður í Hljómskálagarð og lögð ust þar í grasið. Nóg er hægt að gera þegar maður er fullur og veðrið er gott. Þetta voru áhyggjulausir dagar og hann var guðsfeginn að þurfa ekki að hanga uppi í stiga og pússa glugga. Honum hafði aldrei fallið það starf, þetta að horfa á fólk í gegnum rúður, sjá það hreyfa munninn og vita ekki um hvað það var að spjalla sin í milli, vélritunarstelpur að flissa, alvöruþrungnir menn að ræða saman kringum stórt borð og hann með tusku í hendi og hálfvitinn, yfirmaður hans fyr- ir neðan og hélt við stigann. Þá sjaildan sá drumbur opnaði 4 LJSSBÓK MORGUNBLAÐSINS 10. janúar 1971

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.