Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1972, Blaðsíða 15
Of fáar kvikmyndir
með góða popptónlist
LANGT er nú síðan hér hefur verið sýnd kvikmynd, sem hefur
verið byg-gð upp á tónlist. „Kynslóðabilið“ var ágæt og þar var
mikið af góðri tórulist þó að ekki vœri hún aða’atriðið í myndinni.
1 „Percy" var allþokkaleg tónlist flutt af Kinks og svo má ekki
gleyma „ZabriisJde Poinit“ en þar voru það hinir frábæru Pink
Floyd sem sáu um tónlistarflutninginn. En þó að þessar myndir
hafi verið ágætar tónlistarlega séð (og reyndar líka að öðru leyti)
þá er þó ekki nógu vel að þessum málum staðið frá hendd kvik-
myndahúsanna. Nokkrar myndir eru í gangi erlendis þar sem
flutt er mjög góð popptónlist en ekkert hefur heyrzt um að
þær séu væntanlegar hingað. Má þar sem dæmi nefna „Let it be“,
e<n sú mynd sýnir Bítlana sálugu að starfi í upptökusainum og
er eftir því sem ég hef fregmað mjög athyglisverð; „Gimme
Shelter", sem er frá hinum sögufrægu hljómleikum Roliing
Stones í Altarmont; og sdðast en ekki sízt myndina frá hljóm-
leikunum fyrir Bangladesh, sem haldnir voru í Madison Square
Garden á siðastliðnu sumri, Einnig mættu kvikmyndahúsin taka
tii athugunar að endursýna ýmsar myndir, t.d. „Woodstock" og
„Yellow Submarime“, það væri að minnsta kosti sárabót. Við
fáum alltof sjaldan tækifæri til að hlýða' á góðar erlendar
(og innlendar líka) hljómsveitir á tónleikum hérlendis, þannig
að það er allavega betra en ekkert að verða vitni að slíku þó
ekki sé nema í kvikmynd. Ég skora sem sagt á þá sem sjá um
pantanir á kvikmyndum, að hugsa nú einu sinni til allra þeirra
sem hafa garnan af kvikmyndum þar sem flutt er popptónlist
að reyna að fá einhverjar slikar hingað. Það verður vel þegið.
ój.
Ólafur Jónsson
Guðni Ölversson
KINKS
Eftir að Kinks héldu liina
nilsheppnuðu tónleika sína
liér fyrir u.þ.b. einu og hálfu
ári heliir sama og ekkert
heyrzt frá þeim. Gamlir og
rótgrónir aðdáendur gáfu
loks npp síðustu vonina
og sögðu liljónisvcitina búna
að vera.
En em Kinks búnir að vera?
Ef daMtia niá eftir fréttiun
frá Ameríku er þar langt í
frá. I»eir hafa að undanförnn
lialdið þar nokkra hljóm-
leika við góðar undirtektir.
En þegar maður sér nöfn
laganna er mesta lirifningu
vekja er ekki liægt að
verjast brosi: „Sunny
Afternoon“, „Lola“ og öll
liin gömlu góðu eru þar efst
á blaði. Hér er seini sagt um
sama efnið að ræða og olli
svo niikluni vonbrigðum á
hljómieikiinum liér.
Hver er svo skýringin?
Einfaldlega sú, að Kinks
hafa aldrei náð verulegum
vinsiiddum í Ameríku fyr
en nú. Allt í einu koma þeir
með mjög gott efni fyrir
Kánana sem hafa aldrei
kynnzt því áður og verða
yfir sig hrifnir. lín við, sem
ólumst upp við þessi lög
fussum og hugsum: Þetta
Iieyrir nú fortíðinni til. En
engu að siður er gott að
Kinks skuli geta gert ein-
hverjum til hæfis.
F.vrir jólin kom svo út ný
stór plata er ber lieitið
„Muswell Hillibies“ og er sú
ágæt, þó að lítið fari fyrir
frumlegheitunum. Vafalitið
er bezta lagið þar „ÍÍOtli
Century Man“, sem er eins
og mest allt efni þeirra
sainið af Ray Davies. Hann
er án efa ©nn í dag einn af
beztn lagahöfnndum í popp-
inu, en Kinks eru bara ekki
nógu góðir tóniistarmenn til
að vekja hrifningu fólks.
Svo niá benda þeim er kunna
að meta þessi „gomlu góðu“
á tuttugu laga plötu seni
kom líka út rétt fyrir jólin,
en á henni er að finna nijög
gott samsafn <af vinsælustu
lögum Kinks frá síðasta
áratug.
Hvað sem öðru Iíður ]>á eru
þeir í Kinks ánægðir, bæði
nieð nýju plöluna og nýja
útgáfufyrirtækið sitt, KCA,
og það er fyrir mestu.
ój.
Lagast
slæmi puttinn?
Óþarfi mun að kynna hljómsveitina Bad-
finger hér, það muna flestir eftir fýluferð
þeirra i Laugardaishöíllina í haust og einnig
eftir lögunum þeirra, „Come and get it“ og
„No matter what“. Þeir hafa nýlega sent frá
sér stóra plötu, hina þriðjm í röðinhi og kall
ast sú „Straight up“. Hinar tvær, „Magic
Christian" og „No Dice“, hafa litium sem
engum vinsældum náð þótt þar sé að finna
mörg ágæt lög svo sem „Carry on“ en það
fluttu þeir i myndinni „M.C.“ eins ag marg-
ir sjálfisaigt muna. Ástæðan fyrir þessari
sölutregðu er sú, að þeir voru stimplaðir með
þessu leiöinlega enska orði „ooimmercial" og
það þykir af og frá að kaupa stórar plötur
með slíkum hljómsveitum. En nýja platan á
að snúa þessu öllu til betri vegar. Ég hef
frétt að hún sé ágæt og ef dæma má eftir
einia laginu sem enn hefur heyrat hér, „Day
after Day“, þá er þetta ekki svo afleitt.
Þetta er einfalt og áheyrilegí lag og hefur
að vonum náð töluverðum vinsældum. Lömg
um heíur verið sagt að Badfinger séu vasa-
útgáfa af Bítíumuim oig þetta lag styi'kir þá
skoðun enn. Ekki er langt að sækja áhrifin
í þetta sinn því það var George Harrisom
sem sá um upptökuna og ekki fer á milli
mála hvaða gítarleikara þeir stæla þarna,
svo gremilegt er Harrison-„sándið“.
Kosfurinn við hljómsveitina er að þeir
þekkja sin takmörk. Þeir eru etókert sér-
stakir tónlisfiarmenn og gæta sín sem betur
fer á því að flytja ekki efni sem er þeim
ofviða. Það sem þeir gera, það gera þeir vel,
svo langt sem það nær og því eiga Badlfing-
er skilið að á þá sé hlýtt.
ój.
Islenzk
úrvalshl j ómsveit
Ekki væri annað en van-
þakklæti niikið að segja
að NÁTTÍÍBA gleddi mann
ekki með leik sínuni.
Þriðjudaginn 29. 2. gafst
niér tækifæri til að hlýða á
leik þeirra félaga. Saimast að
segja varð ég mjög undrandi
er ég heyrði í þeim fyrst. Sú
undrun breyttist þó bráðlega
í gleði niikla. Ótrúlegt er að
heyra hvað liljómsveitin get-
u r, eftir ekki lengra sam-
starf. NÁTTtJRA er bezta
hljómsveit sem ég hef heyrt í,
í iangan tima, og þori cg að
fullyrða að liún er sú bezta
um þessar mtindir.
Meðlimir hljómsveitarinnar
eru allir fyrsta flokks Iiljóð-
færaleikarar. Allir vita um á-
gæti Shady, liún er fráhær
og verður það vonandi um
langan tíma. Einna hrifnast-
ur varð ég þó af bassaleik
Sigurðar, en hann virðist
aldrei betri en nú. Betra
„bassasound“ hef ég ekki
heyrt liérlendis. Ólafur
tronminleikari er í mikilli
framför og mátti hann vel
við þvi. Trommleikur hans er
nú mun sterkari en áður.
Björgvin er alltaf saimir við
sig og á hann fáa eða enga
sína lika hér á landi. .lóhann
er góður, en ekki farinn að
njóta sín sem skyldi, enn sem
komlð er. Áskell er all-
skenmitilegur með liongó-
trommurnar, en nýtur sin
ekki á dansleikjiim. Þar er
hann eins og pimtstrá.
Ef NÁTTÚRA heldur á
fram á söinu braut, getiun við
allsökviðin hugsað um fram-
tíð íslenzkrar poppmcnning-
ar. .
NÁTTÚRA! Við híðum eftir
piötu.
go.
9. aprii 1972
LESBÖK MORGUNÐLAÐSÍNS 15