Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1973, Blaðsíða 2
Ir*
>. 1 ir»r jj' i
Til hægri á sjávarbakkanum
stendur Kúldshús, sem flutt
varfrá Flatey í Helgafellssveit
og þaðan í Stykkishólm.
0
Egilsstaðir, tvílyft timburhús
f rá 1868. í því er enn búið.
Oft hefur verið á það bent með
réttu, að landnámsmenn hafi haft
gott auga fyrir fögrum bæjarstæð-
um. Þegar breyttar aðstæður svo
sem vegir, hafa orðið til þess að
bæir voru færðir, hefur eins oft
komið í ljós, að upprunalega
bæjarstæðið hafði fleiri kosti.
Þessir forfeður okkar voru líka
svo fundvísir á hljómfögur og
frumleg bæjanöfn, að þar
stöndumst við þeim áreiðanlega
ekki snúning. En það er önnur
saga, sem ekki verður rakin hér.
Þegar kaupstaðir tóku að
myndast með sjávarsíðunni, réðu
lendingarskilyrði mestu þar um.
önnur atriði, svo sem útsýni og
náttúrufegurð, hafa naumast
verið tekin með í þann reikning.
Hins vegar hefur á nokkrum stöð-
um hitzt svo blessunarlega á, að
saman fór fagurt bæjarstæði og
góð lendingarskilyrði. Þannig
háttaði til dæmis til f Reykjavík, á
Akureyri, Borgarnesi og síðast en
ekki sízt í Stykkishólmi. Mér
finnst vafasamt, að náttúran hafi
á öðrum stöðum hérlendis skapað
ákjósanlegri skiiyrði fyrir veru-
lega fallegan bæ.
Til að rökstyðja þessa skoðun
með fáeinum orðum má nefna, að
bæjarstæðið er mátulega hæðótt
til' þess að byggðin getur varla
orðið flatneskjuleg. Hafnarsvæð-
ið með eyjuna úti fyrir er framúr-
skarandi fallegt, auk þess sem
vogar skerast inn í landið milli
klapparásanna. Það minnir á
tangana og eyjarnar í Stokkhólmi,
sem mjög þykja prýða þá borg. En
I stað tilbreytingarlausra háhýsa,
sem Svíar hafa byggt á sfnum
Stokkhólmstöngum, getur að líta í
Stykkishólmi ólíkt manneskju-
legri byggð: Lítil hús, klædd
bárujárni, garða með rabarbara
og rænfangi, þvottasnúrum og
kannski árabát f vörinni.
En þetta er ugglaust ekki alveg
sambærilegt; annars vegar upp-
bygging stórborgar samkvæmt
nýjustu kröfum, — hins vegar
gömul rómantík og leyfar liðins
tima. I Stykkishólmi er líka á
ferðinni uppbygging samkvæmt
kröfum tímans; þar ræður stein-
steypan ferðinni. Samt er ennþá
talsvert mikið af litlum báru-
járnshúsum, sem bjóða af sér
slíkan þokka, að þess vegna meðal
annars er ánægjulegt að ganga
um Stykkishólm. Sum eru byggð á
svó litlum grunni, að undrum
sætir. Eftir núgildandi mæli-
kvarða getur naumast verið öllu
meira en eitt herbergi á hæðinni.
En það er kannski önnur hæð
ofan á, eða herbergi í risinu. Það
er heldur ekki verið að flenna
gluggana út um allt. En þeir eru
samt augu og sál hússins, karm-
arnir málaðir í sama lit og þakið
og hinir hefðbundnu blómstur-
pottar á sínum stað bak við
gluggatjöldin.
Sums staðar hefur ef til vill í
tímans rás verið byggður örlítill
skúr fyrir forstofuna, — ellegar
smávegis viðbygging, þegar fjöl-
skyldan var búin að sprengja
rammann. Það er einkenni húsa
af þessu tagi, að slíkar viðbygg-
ingar fara vel og eru í sátt við
hejldina. Mörg þessara smáhúsa