Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1973, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1973, Page 11
Sjá ennfremur á nœstu síðu frásögnin Stafnsrétt Einn sem hættur er að hafa tölu á, hvað oft hann hefur farið á fjall: Guðmundur Jónsson á Kjaransstöðum, kunnur hestamaður. Nú eru ekki lengur fjallskrín- ur með i ferðinni, en í staðinn kominn bíll og ráðskona, sem tekur á móti leitarmönnum i næturstað með heitum mat. o Glatt á hjalla í leitarmanna- bragganum, í Fossrófum, hundarnir hreiðra um sig hjá húsbændum sinum, og sumir eru að klæða sig fyrir nóttina, þvi þarna er engin upphitun önnur en af mannskapnum. c> Einu sinni var sá mælikvarði notaður, að fjallmaður þyrfti að geta komizt hjálparlaust á bak með fullorðinn, lifandi sauð. Trúlega mundu margir falla á þvi prófi, þvi unglingar eru fjölmennir. tið. Hins vegar tiðkast enn sem fyrr að hafa fleyg í hnakktöskunni og taka lagið í næturstað. Hefur svo mikið orð farið af þeirri skemmtun, að heimamenn — og raunar stundum aðkomumenn — aka allar götur i Hvítár- nes til þess að njóta gleð- innar með fjallmönn- um. Talsvert lifir af lausa- vísum, sem tengdar eru fjall- ferðinni og eru þær þá gjarnan rifjaðar upp. Fyrir- sögnin er einmitt niðurlag einnar slíkrar vísu. Öll er hún þannig: „Fjalla bliknar fifill enn,/fýkur lauf af bölum./Tungnakarlar sópa senn/sauðum fram úr dölum." Áður var Hvitá mikill farar- tálmi á Biskupstungnaafrétti; safnið var rekið yfir ána rétt hjá brúnni á bílveginum. En stundum gekk féð ekki í ána, einkum þegar glampaði af sól á vatnsflötinn. Þá gat orðið mikil vosbúð og erfiði, og fyrir kom, að menn urðu að gefast upp; tjalda við ána og bíða næsta dags. Eitt af því, sem ekki breytist, er veður- farið, og úr því kominn er september, má búast við hverju sem er. Þokan á Kili þykir stundum í þéttara lagi, og margur hefur orðið fyrir þvi að tapa áttum. í haust var svartaþoka á Kili, þegar leit- armenn héldu frá Hveravöll- um. Ugglaust hefur orðið tak- markað gagn að leitinni, en allir skiluðu sér í næturstað. Fjallferð á Biskupstungnaaf- rétt tekur sjö daga; farið er fyrsta daginn í Hvitárnes, annan á Hveravelli, þriðja suður yfir Kjöl í Fossrófur, fjórða i Hvítárnes, fimmta fram yfir Hvítá, sjötta í Sultarkrika við Sandá, nokkru innan við Gullfoss, og sjöunda daginn fram i byggð.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.