Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1974, Síða 5
Milli manns og hunds og hests/hangir leyniþráður, sagði
kerlingin. Hundurinn á þessari mynd hefur leyst af sér leyni
þráðinn og er farinn. Að öllu töldu virðist einsætt, að sjaldan
hafi varðað meiru, að beizlistaumar og ístaðsólar væru traust
að allri gerð. En æðruleysi islenzkra bænda hefur löngum
verið viðbrugðið. Maðurinn er ekki hræddur. Hann er að gá að
fé. Hann- fer bara svona að því. Og ekkert fór framhjá þessum
köllum, þegar um kindur var að ræða, enda viti menn: niðri i
gjánni sér hann hvar tófuskratti gerir sig líklega til að snæða
fyrir honum lamb. Hann herpir munninn og fitjar upp á nefið.
Það er farið að síga í hann.
Einbeitingin leynir sér ekki i augum hestsins; enda vinnur
hann gífurlega nákvæmnisvinnu. Hemli hann einum of
snemma fær húsbóndi hans gjárbarminn í andlitið. Verður þá
að gera aðra tilraun. Hemli hann hins vegar feti framar, munu
þeir báðir sjá meira af gjánni en þeim gott þykir. Slík
nákvæmnishross urðu ekki metin til fjár.
EKKERT
SPAUG
AÐ GIFTAST
MÚHAMEDS-
TRÚAR-
LEIÐTOGA
Salima og Aga Khan.
Eins og flestum mun
kunnugt, er jafnrétti
kvenna og karla ekki
meðal þess, sem Mú-
hameðstrúarmenn bera
mest fyrir brjósti. Enda
hafði spámaðurinn sjálfur
gengið svo frá, að eigin-
lega er litið á konuna sem
ambátt og annars flokks
mannveru, sem ekki fær
einu sinni að stíga fæti inn
í bænahús karlmanna.
Það er því að vonum, að
endirinn geti orðið alla-
vega, þegar Múhameðstrú-
arleiðtogi fer að staðfesta
ráð sitt með Evrópukonu.
Það gerði Karim Aga Khan
á dögunum. Hann er and-
legur leiðtogi 20 milljóna
múhameðstrúarmanna,
sem yfirleitt búa við
þröngan kost og heyra til
hinum vanþróaða hluta
heimsins. Sjálfur er leið-
toginn hins vegar vellauð-
ugur maður og heldur sig á
Vesturlandavísu, m.a. á
hann eina veglegustu lysti-
snekkjuna, sem bærist á
öldum Miðjarðarhafsins.
Og í stað þess að hlúa að
sínu fólki austur í löndum,
hefur ieiðtoginn varið
gífurlegum fjárfúlgum í að
byggja upp ferðamanna-
stað á eyjunni Sardiniu í
Miðjarðarhafi og sá staður
á víst ekki að vera i nein-
um almenningsklassa eins
og Mallorca.
Ekki alls fyrir löngu hitti
Karim Aga Khan enska
aðalskonu af brezkind-
verskum uppruna. Sú heit-
ir Salima og það var ást við
fyrstu sýn. Salima var ekki
á neinu nástrái; hún var
mikils metin Ijósmynda-
fyrirsæta með 60 þúsund
sterlingspunda árstekjur
og gerði það, sem henni
sýndist.
Að giftast múhameðs-
trúarleiðtoga fannst Sal-
imtu eins og að hverfa
til miðalda. Til dæm-
is var henni strang-
lega bannað að bjóða
karlmanni á heimili sitt
og skipti engu máli, þótt
það væru bræður hennar
eða faðir. Hún mátti held-
ur ekki taka í höndina á
karlmanni. Ekki hafði hún
leyfi til að fara út af heimili
sínu nema í fylgd eigin-
mannsins eða einhvers á
hans vegum. Hún varð að
taka þátt í löngum og
erfiðum föstum — allt
kynlíf var þá einnig
bannað. Hvorki mátti frúin
snerta tóbak né áfengi og
við ákveðin tækifæri varð
hún að hafa slæðu fyrir
andlitinu.
Salima varð með öðrum
orðum að stokka spilin aII
rækilega upp og nálgast
hlutverk ambáttarinnar.
Það var ekki sú hugmynd
sem hún hafði um hið Ijúfa
líf, hún, sem þráði
kokkteilveizlur og ferða-
lög. Enda gafst Salima upp
í lok síðasta árs og flúði til
London, þar sem hún
krafðist skilnaðar. Kannski
er það satt, sem segir í
danska orðtakinu, að lík
börn leiki sér bezt.
Salima er orðin þreytt á
að vera ambátt.
Takið nú vel eftir. Því þessi alíslenzka aðferð við búferla-
flutninga er kannski ekki eins liðin og sumir halda. Olíukrepp-
an kann að vekja hana upp fyrr en nokkurn varir. Hesturinn er
eitt af þessum frægu þægðar- og stillingarljósum, sem hrein-
ræktuð voru til að fleiri bændur kæmust óbrotnir heim úr
kaupstað en áður. Aðferðin er einföld. Búsgögnunum var
hlaðið á hestinn meðan þau entust, og ekkert var eftir nema
bæjarhúsin. Væri vel hlaðið mátti jafnvel koma einhverjum
þeirra ofan á. En þessi bóndi kann ekki að hlaða og er
áreiðanlega fyrirhyggjulaus maður. Meira að segja hundurinn
reynir að hafa vit fyrir honum og styðja við búslóðina. Konan
er mórauð í framan af loftveiki og haninn er með plástur á
kinninni. Við hlið hans situr ítölsk dverghæna eða akfeit
sólskríkja. Hesturinn stendur eins og búkki og japlar á holta
sóley. Stundum komst svona flutningur á leiðarenda.