Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1974, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1974, Blaðsíða 6
EXPRESS J ONIST AR í SVIÐSLJÓSINU Eftir Braga Asgeirsson. Síðari hluti. Myndir úr þýzkum söfnum, sem nasistar sýndu sérstaklega og nefndu „úrkynjaða list". Þarna má lesa, að fé þýzkra verka- manna hafi verið notað til kaupa á þessum ófögnuði. Oskar Kokoschka: Teikning af Herwarth Walden. HERWARTH Walden var nokkurs konar radar tímanna, hann var ákaflega vakandi fyrir hræringum samtímans. -Arið 1910 stofnaði hann tímaritið ,,Der Sturm“, það kom út í dagblaða- formi í stóru upplagi og á hóflegu verði. Blaðið var hugsað sem bók- menntalegt baráttublað, en fékk fljótlega gagngera þýðingu fyrir þróun myndlistar samtíðarinnar, útbreiðslu hennar og kynningu. Walden hafði kynnst Oskar Kokoschka í Vín árið 1910 og hvatt hann til að koma til Ber- línar. Kokoschka tók að sér að teikna „andlit vikunnar“, og því er strax i fyrsta árangri að finna furðulega röð meistaralegra teikninga, sem á einu sviði grund- völluðu expressjónísku andlits- myndina. í næsta árgangi er Brucke-hópurinn orðinn með- starfandi og í þriðja árgangi bæt- ist við Der Blaue Reiterhópur- inn. Franz Marc skrifar gagnrýni, Kandinsky skrifar fræðikenning- ar um óhlutbundin form. Fútúr- istarnir birta stefnuskrá sina (manifestation), viðtöl birtast við Delaunay og Léger, fyrstu abstrakt teikningar Kandinskys eru þrykktar, og 1913 eru teikn- ingar eftir Klee á forsíðu. Árið 1912 færir Walden út kvíarnar og stofnsetur sýningar- sal, og nú rekur hver viðburður- inn annan, i marz sýna „Der Blaue Reiter“ og Kokoschka, í apríl ítalskir fútúristar, í maí er sýnd frönsk grafík með áherzlu á Pícasso. Síðan koma þýzkir ex- pressjónistar (Kandinsky, Marc, i Jawlensky, Campendonk o.fl.). og næst eru það franskir expressjón- istar (Braque, Derain, Vlaminck, Friez, Laurencin, Herin). Þá heldur röðin áfram: Ensor, Kandinsky, Klee, Marc, Delaunay, Soffici, Severini, Archipenko og samband svissneskra nútíma- listamanna. — Haustið 1913 setur Walden upp „Fyrsta þýska haust- salinn“ með „Salon d’ Automne" i Paris sem fyrirmynd. Með þrjú hundruð verkum fékkst þver- skurður þess, sem uppskorið hafði verið i framúrstefnulist siðustu ára. Marc var sérstaklega ráðinn til aðstoðar, en allir lista- mennirnir veita hjálp með ráðum og dáð. Rúmlega 30 verk eftir Henry Rousseu fengu heiðurs- vegginn, þá komu, „Der Blaue Reiter“, „Die Briicke" ásamt ein- stökum þýskum expressjónistum svo sem Kokoschka, Kúbin, Rohlfs, Nolde, Feininger o.fl., — ítölsku fútúristarnir, frönsku orphistarnir, Delaunay, Lqger, Gleizes, Metzinger, Picabia o.fl., þá listamenn austursins þeir Chagall, Archipenko, Brancusi, Epstein og Larionoff, ennfremur komu frá Mondrian, Max Ernst og Hans Arp. Þessi viðamikla upp- talning sýnir að með furðulegu öryggi átaksins náði Walden að safna saman yfirgripsmiklum kröftum, sem sumir hverjir áttu fyrst síðar að setja svip á nútíma- list að marki. Þetta voru hinir gullnu tímar Sturm-hreyfingarinnar, og þeir héldu áfram allt fram að stríðs- árunum. Eftir stríðið glataði hreyfingin þýðingu sinni, þrátt fyrir mikil umsvif svo sem skóla, leiksvið og bókaverzlun. Að visu hélt blaðið á fram að koma út fram að árinu 1932, en hafði þá Iifað sig. Herwarth Walden hvarf til Rússlands laust fyrir árið 1930 og hefur ekki til hans spurst síðan. — Fyrstu stileinkenni þeirra Briicke-félaga má segja að' hafi markað nokkurn svip á árunum 1907—8, en þá höfðu þeir losað sig við árifin frá Bonnard, Vuillard og Jugendstílnum og fjarlægst deplamynstur neoim- pressjónistanna, til verulegs hags fyrir stærri lýsandi litafleti. Hin beina abstraktsjón náttúruforma leiddi svo til frumlegrar, knappr- ar og tjáningaríkrar grófskriftar þungra útlína, og nú taka við bein áhrif frá fauvistum. List féfag- anna þróast nú á fyrsta stigi til grófrar og umbúðalausrar með- ferðar lita og forma, litirnir voru spenntir til hins ýtrasta svo og tjáningaraflið, þannig að jaðraði við sprengingu. — Skyggnumst svo litillega inn á þjóðfélagslegan bakgrunn þessara tima. Hin nýja heims- mynd, sem bar einkenni ótta, öryggisleysis og innri mótsagna, eignast á þessum tímum rismikla og forvitna forvígismenn í bók- menntum Norður- og Austur- Evrópu. í Rússlandi hina miklu episkú rithöfunda, Tolstoj og Dostojevsky, í Noregi þá Ibsen, Björnson og Hamsun, í Svíþjóð Strindberg, í Danmörk Kirkegaard, og í Þýskalandi Ger- hart Hauptman, sem allir draga upp persónumynd, sem lítur öðru vísi út en hjá nýrómantíkurum og nýklassíkerum hámenningar Frakklands. Þetta er mynd mann- legrar tilveru, sem er haldin ástríðum og illum öndum og er algerlega hjálparvana gefin á vald frumafli náttúrunnar og hinna miskunnarlausu refsilaga þjóðfélagsins. í málverkinu birt- ist þessi tvíræða heimsmynd í mörgum líkingarmyndum. Edward Munch sýnir fórnardýr þessa þjóðfélags, — istöðulitlar ’/erur rifnar upp með rótum, en slíkum hafði hann sjálfur kynnst á æskuárum, ásamt táknmyndum angistarfullra bernskuminninga, þar sem sjúkdómar, afbrýði, sorg og dauði einkenna hið ömurlega lífssvið. En Belgíumaðurinn James Ensor sér heimsmyndina í formi jafn kynlegs sviðs sem af mynduðu og tötrum búnu brúðu- safni í bland með glottandi gjálífisverum i „Karnivals”- fagnaði. Verur þessar hafa ekki eiginleg sjónaugu, heldur tómar starandi augnatóttir, — eru svip- vana vofur, óhæfar til að sjá og þar með einnig óhæfar til að skiíja, en gangandi fram i styrk sínum sem harðsviraður grálynd- ur félagshópur. Þannig kynnir Ensor aldamótaþjóðfélagið.. . — Við getum hugleitt í dag hvernig ráðvöndu, skinhelgu og siðprúðu fólki þessara tima hefur orðið við, er það kom á fyrstu sýningar þeirra Brúcke-félaga og raunar annarra expressjónista, á tímum viðurkenndra náttúrulífs- mynda í samræmdum litum, þegar við þeim horfðu hárrauð tré, últramarínbláir gangstígar og grasgrænir himnar, andlit, sem voru að hálfu sólgul og að hálfu himinblá, eða ábúðarmiklar erótískar fyrirsætur, grænar, rós- rauðar eða bláar, og baksviðið jafnvel messinggult. En Brucke félaga skorti ekki sjálfstraust, þrátt fyrir allt mótlæti, um það ber nafngiftin „Die BrUce“ (Brúin) vitni, því að hér var ekki átt við að þeir hygðust brúa bilið til f jöldans, heldur að vísa honum náðsamlegast veginn til þeirra sjálfra. Hér var á ferð hrá og skynræn innsæisstefna og algjör andhverfa ljósmyndarinnar, litir og form skyldu tjá hugarástand listamannsins þegar hann skóp myndir sinar. Ef lýsa ætti einkennum þessara listamanna, er þeir höfðu hver um sig öðlast auðkennandi stíl, má segja að Kirchner hafi verið hinn tilfinninganæmi og órólegi, Scmidt Rottluff hinn grófi og kröftugi, en Heckel hinn Iyriski. Ég þekki ekki feril Fritz Bleyl, og geri ráðfyriraðhannhafiorðið viðskila við hópinn þvi að hans er að litlu getið í heimildum. Með árunum óx þessi hópur, t.d. var Emil Nolde þar félagi i eitt ár, og bauð hann þá Scmidt Rottluff til sín á eyjuna Alsen og seinna Erich Heckel, þeir urðu þar fyrir miklum áhrifum bæði af um- hverfi og Iist Nolde. Árið 1906 var Max Pechstein tekinn í hópinn, svo og Kees van Dongen, en hann tilheyrir ekki expressjónistum, heldur er dæmigerður fauvisti. Þá gerðist Otto Múller félagi árið 1910. Allt eru þetta víðfræg nöfn, en fleiri töldust til þessa hóps, sem minna eru þekktir i dag. Fyrstu árin, sem þeir félagar höfðust við í skósmíðaverstæðinu, nutu þeir einungis stuðnings frá föður Kirchners, sem var forstjóri pappirsverksmiðju. Hann gaf þeim samanbrotnar pappírsarkir, sem hann annars notaði sem sýnishorn til viðskiptavina sinna. Þetta sýna margar teikningar og grafík-blöð á árunum 1907—’9, en á þeim koma fram brestir eftir þeim endilöngum. Félagarnir áttu í sameiningu aðeins einn „litho- stein“, en þetta var á þeim tímum, er slíkir voru verðmætir. Fékk, því hver einn einungis aðþrykkja þrjú einiök af hverri mynd, áður en hún var slípuð burt, og svo yfirtók sá næsti steininn!. . . Leikurinn barst til höfuðborgar- innar Berlín árið 1911, þar sem þcir Pechstein og Múller bjuggu þegar hér var komið sögu. Þetta sama ár fá þeir boð frá galerie Tietz f Köln um að halda þar stóra sýningu. Gagnrýnin, sem þeir fengu varð yfirþymandi, þeim var jafnvel líkt við mannætur, og slik málaralist var sögð fyrirboði endaloka málverksins. Deilurnar vegna þeirra félaga urðu hat- ramar og stóðu allt fram að stríðs- árunum, en það var einmitt stríð- ið er stöðvaði umræðuna um hin byltingarsinnuðu vandræðabörn, því að þá fékk fólk annað að hugsa. — Hin fléttaða upptalning stíl- bragða í þessari grein sýnir, að menn voru uppteknir af svipuð- um vandamálum, hringinn frá París yfir Norður-Þýskaland, Dresden og til Múnchenborgar, og komust þeir að ýmsum ólikum niðurstöðum vegna ólíkra skap- gerðaréinkenna, umhverfis og aðstæðna, þótt baksviðið væri hin sama grundvallarhugmynd. Striðið batt enda á hið frjóa samstarf félaganna í „Die Blaue Reiter”, en þeir sem lifðu striðið út, hittust nær allir aftur í Bau- haus I Weimar, sem varð starfs- vettvangur þeirra. Það var árið 1913, sem „Brúcke“-hreyfingin tvistraðist. Var tilefnið frekar ómerkilegar deilur út af riti nokkru, „Brúcke Chronik", sem Kirchner skrifaði. En einmitt þetta atvik varð til að innsigla persónuleika hvers eins þeirra, en allir félagarnir halda

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.