Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1975, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1975, Blaðsíða 3
séra Bolli Gústafsson í Laufási „Þessi líka afbragðs kerruhjólasmiður ” Inngangsorð ÞAÐ hefur orðið að ráði, að ég annist þátt í Lesbókinni, er ber nafnið Á prestssetrinu. Þótt prestssetrin séu með dálítið öðru sniði nú en áður var, þegar þau voru höfuðmið- stöðvar byggðarlaganna, þá ber ýmsa gesti þar að garði, sem forvitnilegt er að ræða við og fræðast af. Er ráð fyrir þvf gert, að í þætti þessum muni birtast viðtöl og frá- sagnir af ýmsu tagi eða þá upprifjun minninga. B.G. Þegar aóventa er gengin i garö, reikar hugurinn til liðinna daga f foreldrahúsum, er jólatilhlökkun hafði náð tökum á mér, snáðanum. Þótt heimili mitt væri i kaupstað, þá gætti þar sterkra áhrifa úr sveit. Helzta ástæða til þess var sú, að ömmubróðir minn, Erlingur Friðjónsson kaupfélagsstjóri, var öll bernsku- og unglingsár mín í fæði hjá foreldrum minum. Þótt hann dveldi á Akureyri mestan hluta ævi sinnar eða frá þvf hann kom úr búnaðarskóla Torfa í Ölafsdal skömmu eftir aldamót, þar sem hann lærði m.a. kerru- smíði, þá var hann ávallt sannur sveitamaður. Honum fylgdu jafnan þau sterku alvarlegu áhrif þeirra þing- eysku menningar, er rikti á heimili hans að Sandi i Aðaldai, þar sem alúðar og vöndunar var jafnan gætt í orðræðum. Hann bar með sér andblæ stórheimila- fyrirkomulagsins, sem Halldór Laxness greinir frá í síðustu bók sinniog segir að sé eldra en iðnbyltingin i Evrópu. Skáldið segir það raunar sama fyrirkomulag og var á Bergþórshvoli hjá Njáli; „svo fornt að ekki er einusinni hægt að orða um það með orðalagi né hugsunarhætti, sem nú tíðkast, ellegar út frá því ástandi sem við skiljum." Likt og á Bergþórshvoli forðum, þá uxu upp all fyrirferðarmiklir synir í garði Friðjóns langafa mins á Sandi. Þeir báru þó ekki nafntoguð vopn til til manndrápa heldur beittu brönd- um andans, ýmist á vettvangi skáldskapar eða á velli stjórnmála. Erlingur sá, er hér er að vikið, haslaði sér félagsmálavöll og var harður og einþykkur í verka- lýðsbaráttu og áhugasamur um samvinnuverzlun. Hóf hann rekstur kaupfélags verkamanna i bárujárnsskúr, sem afi minn átti á Oddeyri. Þá sagði Snorri á Þverá, í Laxárdal faðir Áskels tónskálds, og hristi höfuðið raunamæddur: „Ætlar hann Erlingur að fara að af- greiða i búð, þessi líka afbragðs kerruhjólasmiður." En hann kunni aldrei að haga sér eins og fram- kvæmdastjóri, heldur gekk að öllum störfum, er til féllu. Mætti fyrstur á vinnustað á morgnana og yfirgaf hann ekki fyrr en allir starfsmenn voru farnir heim. Hann helgaði líf sitt hugsjónum jafnaðar- og sam- vinnustefnunnar af þeim brennandi áhuga, að hann gaf sér ekki tíma til að kvænast. Lengst af var svefnherbergið hans inn af skrifstofu kaupfélagsins. Erlingur settist aldrei i helgan stein og tók ekkert tillit til laga um hámarksstarfsaldur. Er mér í minni hræðsla móður minnar, þegar hann á nfræðisaldri klifraði upp á kaupfélagsbygginguna, sem er þrjár hæðir, og hamaðist þar við snjómokstur.— Bezt man ég frænda minn í baðstofuskapi heima. Þá kvað hann við raust bæði kvæðaflokka og lausavísur. Svo komu frásagnir austan úr Aðaldal og umhverfi, starfshættir, húsaskipan, umræður og kvöldvökur stóðu mér ijóslif- andi fyrir sjónum. Einu sinni á aðventunni var ég eitthvað óþekkur og hrein út af einhverju ímynduðu mótlæti. Þá var Erlingur þar nærstaddur og spurði mig alvarlegur í bragði, hvort ég hefði ekkert orðið var við Dúðadurt. Ég starði á hann opinmynntur, þegar hann tók að bylja með draugslegri röddu: „Hér er kominn Dúðadurtur digur bæði og hár Bfður hann frammi í bæjardyrum, bröndóttur og grár, Bfður hann frammi f bæjardvrum, bar hann þar fvrir mig. Hann spurði jeg að heiti, hristi hann allan sig. Hann spurði jeg að heiti, þvf hafði ei fyrri sjeð, Skjældi hann sig og skrækti og skrafaði reiði með, Skjældi hann sig og skrækti: Skrfíiiegt bað er Ef mig þekkir ekki alkunnugan hjer. E.f mig þekkir ekki af henni móður mfn Og Leppalúða heitnum, sem laungum kom til þfn. Lcppalúða heitnum lfkur er jeg þó Og Grýiu móður minni, sem margan krakkan f jekk Belginn bar hún gráan og bæja á milii gekk. Belginn bar hún gráan að Bæsá oft til þfn, En aldrei nema illa erindin gengu ffn. Aldrei nema illa við aumingjann þér fór, Þó hrini f hærra lagi hann Eldjárn og hann Jón. Þorsteinn Ifka þótti þó með Ieiðum són, Þorsteinn lfka þótti og þær systur hans, Snjólaug og hún Olöf, sem slæman höfðu dans, Snjólaug og hún Olöf með snöktinu sfn Passlegar vóru f.poka móður mfn. Passlegar vóru pfkurnar þar f, En þú tímdir ekki að eyða pakki þvf. En þú tfmdir ekki af þvf neinu að sjá, Fáum fórst miður þá fátækum lá á. Fáum fórst niiður við foreldrana mfn, Von er á tanganum verði getið þfn, Von er á tanganum verði þitt nafn Ekki sem hvftast, þvf þú ert fáum jafn. Ekki sem hvftast, þó það sje það, Að hingað hljóp jeg áðan, þvf hungraður var. Hingað hljóp jeg áðan og hugsaði margt, Ef hún Rósa ærist og ólmast svo hart. Ef hún Rósa ærist eins og talað er. best er þjer að beina barni þessu mjer. Best er þjer að beina og betra svo þitt ráð, Seint hefur margur að sómanum gáð Seint hefur margur sitt betrað ráð. Gefðu mjer hana Rósu, því girnd mfn er bráð, Gefðu mjer hana Rósu með grátkjökrið sitt, Passleg er pfkan f pokatötrið mitt. Passleg er pfkan f pytluna mfn, Svo verður á jólonum soðningin ffn. Svo verð jeg á jólonum sæll, það jeg veit, Þvf hún er svo þrfstin, þrifleg og feit.“ — Að mér sóttu heldur ófélegar myndir á meðan frændi minn þuldi þenna magnaða tröllaslag séra Hallgríms Eldjárnssonar prests að Bægisá. Nokkuð dró úr ógn hans, þegar á eftir fylgdi mild ræða, er eyddi öllum forneskjuótta, en jafnframt ástæðulaus- um kenjum og óþægð drengsins við kné hans. — Þar eð ég minnist þess ekki að hafa litið þulu þessa á prenti og veit með vissu að til mín barst hún úr munnlegri geymd, þá rifja ég hana upp í þessum fyrsta þætti og sakar ekki að geta þess að höfundur hennar sat í Laufási eitt sumar fyrir rúmum tvö hundruð árum. — Góðar stundir. hvernig mátt það verða, að Otti fengi þar inni? Enn var henni hulin lausn á þeim vanda. Eigi gat hún vænst þess að Egg- ert Briem sýslumaður tæki mjúk lega á, ef opinbert yrði að Otti Sveinsson hefði í felum verið á sjálfum Hólastað er sýslumaður sendi menn sina þeirra erinda á bæi áð leita uppi og sér að færa otta. Hvar mundi þá hið mikla traust, sem héraðsbúar báru til hennar sakir liknandi handa hennar er raunir steðjuðu að. Þótt grunur hefði leynst með fólki um felustað Otta Sveinssonar var það annað en standa opinberlega frammi fyrir því sem staðreynd. Þá varð henni hugsað til madd- ömu Jóhönnu Gunnlaugsdóttur á Hálsi, stjúpmóður sinnar og syst- ur Eggert sýslumanns, eigi gat henni heldur verið sama um bræður sina Tryggva og séra Gunnar eða stjúpson sinn séra Björn í Laufási sem hún mat verð- uglega. Mikið þótti Þóru Gunnarsdóttur við liggja að dauði og felustaður Otta Sveinssonar bærist ekki til þessara venslamenna hennar. En lífið hafði kennt henni að hlaupa ekki að neinu. Þótt hún enga stund iðraðist gerða sinna við frænda sinn Otta, var henni full- komlega ljóst að'dauði hans mátti i engu raska hennar ævi, né láta þar neitt um breytast. Hennar þankagangur nam staðar við tvær manneskjur — þau Signýju Vil- hjálmsdóttur þjónustustúlku hennar og Svein Sigurðsson sem var sterklega grunaður meðsekur Otta Sveinssyni og hún vissi meira um en hún vildi vera láta. Þessum manneskjum einum gat hún treyst af þvi að spil þeirra lágu mörg í hennar hendi. Kaldhæðin voru örlögin er þau komu Þóru Gunnarsdóttur til hjálpar. Nokkru áður hafði barn á einum næstu bæja dáið úr krank- leik ókenndum, nú átti að jarða barn þetta að Hólum næsta dag. í þeirri sömu gröf hugsaði madd- ama Þóra nú Otta Sveinssyni hvilu búna. Og þótt kaldur likami færi kistulaus í moldu hlutu sterkar bænir hennar að flytja hans önd i föðurarma. Sá dagur rann upp með því að skarn var borið á tún á Hólastað. Gerðu það Sveinn Sigurðsson og unglingspiltur, sem til vika þurfti að kalla öðru hverju frá þvf starfi. Sem í tíð Benedikts prófasts raskaði jarðarför eigi almennri vinnu á Hólum. Eigi gerðist það heldur með þá Svein Sigurðsson og vikapiltinn er mokuðu undan grindum í fjárhúsi og báru siðan millum sin á börum á tún út. Eigi toldi skarnið vel á börum i leiðinni og var það ráð tekið að breiða striga yfir börurnar svo ekki hryndi af þeim. Morgunn þenna áður en Sveinn Sigurðsson gekk til verka hafði hann af Signýju Vilhjálms- dóttur verið á eintal kallaður til maddömu Þóru og fór vel á með þeim í þvi tali. Eigi gekk Sveinn Sigurðsson samt glaður til verka þennan morgun. Er leið á dag og dökk ský tóku að hrannast á himni, var vikapiltur kallaður frá en til hjálpar Sveini Sigurðs- syni var send Signý Vilhjálms- dóttir. Það var ekki ótítt að madd- ama Þóra léði stúlku sina um stund til annarra verka á Hóla- stað. Ætla má að þennan dag hafi það verið gert að undirlagi madd- ömunnar. Ef til vill voru það lika hennar ráð að Sveini Sigurðssyni var falið það verk í leið sinni, að moka yfir barnsgröf þá er notuð hafði verið fyrr um daginn. Kvöldið áður hafði maddama Þóra dvalið lengi i Lækjarhóls- húsi. Þar hafði hún búið jarðnesk- ar leifar Otta' Sveinssonar til hinstu ferðar í þessum heimi. Trú og bænrækni fylltu Lækjarhóls- hús frá athöfnum þessarar konu uni kvöldið það. Ekki er óliklegt, að sálmur stjúpsonar hennar séra Björns í Laufási hafi bærst fram af vörum hennar þá stund er hún gerði jarðneskum leifum frænda síns krossmark á enni og brjósti. Kom þú andinn kærlcikans Tak þú sæti í sálu minni Svala mér á blessun þinni Brunnur lífs f brjósti manns Andinn kærleiks helgi hreini Hjálp mér svo ég deyi frá Sjálfum mér og syndameini Sæll i Guði lifi ég þá. Einbeitt og róleg vann madd- ama Þóra sitt prestsverk um kvöldið og eflaust náði sú kær- leiksríka festa yfir gröf og dauða. Það var á huldu annarra manna en þeina þriggja á Hólastað, að þennan dag var Otti Sveinsson Eramhald á bls. 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.