Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1975, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1975, Blaðsíða 7
— Þú hefur ekki orðið var við ðtta við að taka afstöðu? — Ekki held ég það. Mér fannst þetta fólk laust við tortryggni og sá, að menn voru nú miklu fúsari að ræða við Vesturlandafólk en hér áður fyrr. Satt að segja varð ég undrandi að sjá, hvílíkir her- skarar þarna eru af Bandaríkja- mönnum, Vestur-Þjóðverjum og Japönum, ýmist við tæknistörf eða í kaupsýsluerindum. Það þykir meira að segja gott að vera Bandaríkjamaður í Moskvu nú um stundir. Ég hitti og ræddi við bandarísk hjón, ferðamenn, og tal okkar barst að þessu. Þau sögðu: „I Vestur-Evrópu eru Bandaríkja- menn ekki vinsælir og maður finnur það vel. Hér i Moskvu finn- ur maður ekki þessa andúð; það hefur verið mjög vel tekið á móti okkur og mun betur en í Vestur- Evrópu.“ Mér virtist, að Rússar vildu nú meiri samskipti við Vesturlönd, einkum verður maður var við þá skoðun meðal ,unga fólksins. Moskvubúar hafa greinilega meiri áhuga á þvf sem gerist á Vesturlöndum en við á þvi sem gerist þar austurfrá. — Þróunin stefnir sem sagt í þá átt að taka upp hætti Vestur- iandabúa með öllum þeirra kost- um og göllum, eða hvað? — Jú, ég held að við getum sagt það. Núna sá ég miklu meira af einkabílum á götunum — að sjálf- sögðu rússneskum, — og nú ber miklu minna á þessum pokalega klæðnaði, sem einkenndi Rússa. Maður sér margt fólk, sem klætt er samkvæmt vestrænni tízku; miklu meira en áður. Mér sýnist meiriparturinn af ungu fólki vera í bláum gallabuxum, rétt eins og í borgum Vestur- Evrópu eða vestanhafs. Það er dálítið merkilegt, því Rússar framleiða lítið sem ekki neitt af þesskonar efni. Þó verður maður var við að það er ýmislegt i þjóðfélagskerfum Vesturlanda, sem Rússar kæra sig ekki um og vinna á móti. Við höfum miklu meira frelsi og öllum þykir frelsið dýrmætt. En því miður fylgja því plágur eins og ofbeldisverk og eiturlyf. — Hvað um Moskvu í því sam- bandi; er óhætt að vera einn á ferð eftir að rökkva tekur? — Já, það á að vera óhætt. Þar skortir mjög mikið uppá alls- konar frelsi, en maður getur gengið einsamalll um borgina að næturlagi og enginn talar um, að það sé hættulegt. Og ennþá virðist eiturlyfjabölið ekki hafa náð þangað. Burtséð frá allri pólitík virðist mér að ungt fólk f Moskvu hafi meiri sjálfsaga og ákveðnari hug- myndir um, hvað það vill, hvað það ætlar að læra og hvað það ætlar að verða. — En gagnrýnir það ekki kerfið eins og tftt er um ungt fólk? — Maður hittir oft fólk, sem gagnrýnir ýmis smáatriði í kerfinu. Það eru æði margir ágæt- ir brandarar í gangi meðal manna, sem fela í sér mjög ákveðna gagnrýni. Þetta eru yfir- leitt hnyttnir brandarar, en ekki illkvittnir. — Ekki einu sinni um Kfnverja? — Um Kínverja heyrir maður afskapega fátt og þaðan af síður að blöðin fjalli mikið um þá. Þetta virðist vera viðkvæmt mál. Hættan að austan er söguleg stað- reynd í Rússlandi. Það er svo margt sem verður að skoða í ljósi sögunnar. Þekki maður þá sögu, skilur maður betur að breytingar samkvæmt þessum nýja Helsinki- sáttmála gerast ekki með einu pennastriki. — Var mikið talað um Solzhenitsyn og aðra andófs- menn? — Þeir minntust ekki á Solzhenitsyn fremur en hann væri ekki til. Og ekki heldur á aðra andófsmenn. Mér virðist stundum vera fjallað f vestrænum blöðum um sovézk málefni af verulegri vanþekkingu. Svokall- aðir Kremlfræðingar virðast verulega staðnaðir og greinar þeirra byggjast um of á ágizkun- um. Sumir þeirra hafa ekki komið til Rússlands mjög lengi og þeir skrifa enn eins og þeir skrifuðu fyrir tuttugu árum. Rússar eru -í sífellt auknum mæli að láta af þeirri skoðun að eitt og annað af Vesturlandsupp- runa beri með sér „úrkynjun“ og „borgaralegan hugsunargang". Fyrir aðeins fimm árum var tón- list í rússnesku útvarpi svo nijög á aðra lund en við eigum að venjast, að maður þekkti það undir eins, þótt ekki væri sagt eitt einasta orð. Nú er aftur á móti leikið mikið af popptónlist í útvarpi þar austurfrá, — meira að segja mjög góðri popptónlist. Það sem meira er, þeir eru farnir að kompónera sfna eigin popptónlist og mér Framhald á bls. 16 Á tungumðlanómskeiSi fyrir útlendinga I Moskvu. Mynd: Bragi Ásgeirsson svartur máni ilmur af rósum á hnífseggjum stigamenn verja veg til Cordóba verndari borgar þurrkur ryk og blóð í þorpi kveinar svartklædd kona hvellur og i svörðinn siga spánar bestu Ijóð Guðbrandur Gíslason TIL FREDERICO GARCIA LORCA Á DÁNARDÆGRI FRANCOS en af dauða Hf þínum sem annarra brátt vernda allar borgir braginn sem þinir líkar eiga enn ókveðinn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.