Lesbók Morgunblaðsins - 31.12.1975, Síða 8
MYNDLIST
Bragi
Asgeirsson
VERMEEI
MEISTARINN FRA DelJ
svo örlátt var þetta herrans ár á
mikla frömuði. Árið 1653 giftist
Jan Vermeer stúlku af góðum
ættum frá Gouda, Catherina
Bolnes að nafni, fæddi hún hon-
um ellefu börn og voru átta þeirra
ung að árum í heimahúsum er
hann lést aðeins 43 ára að aldri.
Það sætir furðu að Vermeer
skyldi mála myndir sínar, sem
tærleiki og höfug ró einkennir,
innan um allan barnaskarann í
þröngum húsakynnum og hlið-
stæða þess er Jóhann Sebastian
Bach samdi tónverk sin með
barnahópinn við kné sér svo sem
samtiðarheimildir herma. —
Giftingarárið (1653) fékk Jan
Vermeer inngöngu I málaragildið
(St. Luce) sem meistari í faginu.
Sem dæmi um fjárhag hans er
þess getið að hann borgar þá uppí
skráningargjald hinn 20. desem-
ber eina flórinu og tíu stivers, en
afganginn af alls 6 flórinum ekki
fyrr en 24. júlí 1656!
Fjórtánda desember 1655 fer
fram bálför föður hans Reynier
Vos. A þennan hátt, gegnum
kirkjubækur og opinber skulda-
skil hefur tekizt að rekja æviferil
Vermeers að nokkrUjeinkum hvað
skuldaskil áhrærir, sem öll benda
til þess að líf hans hafi verið basli
háð og hörð barátta fyrir brauði,
enda marga munna að metta, og
vinnuhraðinn markazt af fádæma
rósemi.
Jan Vermeer tók ekki kvaða-
laust við listaverkaverzlun föður
sins, heldur einnig skuldum hans
sem var þung byrði, og varð hann
margsinnis að taka lán á lífsferli
sínum, en þá reyndist tengda-
móðir hans jafnan hollur haukur
á bergi og jafnvel á dánarári sínu
varð Jan Vermeer að taka 100
gyllina lán, sem var mikill
peningur þeirra tima. Heimildir
herma að hann hafi komizt til
metorða í málaragildinu og verið
þar tvisvar varaforseti og að
lokum forseti þess árið 1670.
Kona viS perlukoBjusmiðar mðluS 1665, Louvre, Parfs.
„Menning mannsins felst f
fágun starfandi handar"..
Þvi var vikið að mér fyrir
skömmu, að tilefni væri til að
minnast 300 ára ártíðar hollenzka
meistarans Jan Vermeer frá Delft
á þessu ári til kynningar þessa
einstæða málara. Er mér það
ljúft, enda skammt síðan ég heim-
sótti föðurland þessa málara, sem
ég hefi lengi dáð og notið rikulega
viðkynningar við mörg helztu
verk hans á Ríkislistasafninu í
Amsterdam (Rijksmuseum),
Mauritshuis í Haag og viða um
lönd. Liðin eru 300 ár frá dánar-
dægri hans en 15. desember árið
1675 var hann jarðsettur frá
Oudekerk-kirkju í Delft. Tilefnið
er ærið vegna þess að Islendingar
munu næsta lítið vita um þennan
snilling þótt margir munu kann-
ast við sumar mynda hans, svo
víðkunnar sem þær eru í dag.
— Myndheimur Vermeer er
slíkur að leitun mun að þeim
skoöanda sem ekki lætur hrífast
af þessum yfirlætislausu perlum
málaralistarinnar eða alla vega
viðurkennir óviðjafnanlegt hand-
bragð málarans. Látleysið náði
einnig til stærða mynda hans og
fjölda þeirra því að ekki er vitað
um meira en 36 myndir sem
nokkurn veginn er öruggt að séu
frá hans hendi. Hinir róttækustu
framúrstefnumálarar virðast
jafnhrifnir af Vermeer sem þeir
íhaldsamari, enda ekki finnanleg
nein tegund af væmni i myndum
listamannsins, — þær einkennast
þvert á móti af yfirskilvitlegri
heiðríkju og tærleika ásamt
kristaltærri myndhugsun.
Það er mikil og fjarræn dulúð í
myndum Vermeers þótt mynd-
efnið sæki hann i hversdagslífið
og telst þannig „genere málari",
sem gerir þær um leið svo
nálægar rýnandanum og auð-
veldar honum að meðtaka mynd-
mái listamannsins. Líf Ver-
meers sjálfs er einnig sveipað
dulúð og fátt sem ekkert er vitað
um feril hans, nám, einkalíf og
persónu. Nafn þessa málara var
einnig gleymsku vígt í tvær aldir
og það var franskur listfræðingur
sem vafalaust telst hafa lyft nafni
hans á ný með útgáfu bókar um
verk hans 1866, hinnar fyrstu sem
um getur. Nafn þessa merkilega
listfræðings, sem málaralistin á
svo margt að þakka, var Théopile
Thoré-Biirger og skal þess getið
að eftir að bókin kom út og
myndir Vermeers voru dregnar
fram I dagsljósið komu þær til
með að hafa mikil áhrif á
impressjónistana og jafnvel
kúbistana varðandi óskina um
skynræna miðlun hins tímalausa
augnabliks. Tærleiki myndmáls
Vermeers mun einnig hafa haft
áhrif á skáld likt og Marchel
Proust og Henri Bergson og hann
var andlega skyldur málurum svo
sem Chardin (1699—1779) og
Corot (1797—1875) og verður
ekki um það sagt hvort þeir hafi
verið vitandi um list hans.
Þrátt fyrir mikla og nákvæma
leit í fyrri tíma heimildum eru
einungis kunn nokkur dreifð ævi-
ágrip Vermeers, svo sem að hann
fæddist I Delft árið 1632, sonur
framleiðanda hliðstæðu silkis og
jafnframt vefara, Reynier
Janzson Vos að nafni og konu
hans Dympna Balthasardóttur.
Árið fyrir fæðingu Jan Vermeers
gerðist faðir hans, sem einnig rak
veitingasölu, listaverkakaup-
maður og verður meðlimur St.
Luce, myndlistarmannagildis
staðarins, 13. október það sama
ár.
Jan Vermeer var annað barn
foreldranna, sem eignazt höfðu
dóttur að nafni Geertruyt og mun
upprunalega nafn hans hafa verið
Joannes Vos, en faðir hans breytti
eftirnafni sinu og var árið 1651
orðinn þekktur undir nafninu
Van der Meer eða Vermeer.
Á fæðingarári Jan Vermeers
1632 fæddist einnig í Delft Anton
van Leeuwenhoek er fullkomnaði
smásjána og hann var einnig sá er
skilgreindi eðli og samsetningu
rauðu blóðkornanna á nákvæman
vísindaiegan hátt fyrstur manna.
— Sem fjármálaumsjónarmaður
borgarráðsins í Delft fékk
Leeuwenhoek umsjón með eign-
um málarans Vermeers að honum
látnum og mæltist hann til þess
að ekkjan seldi þá myndasafn
manns síns á uppboði. Sama
fæðingarár og fyrrnefndir átti
einnig heimspekingurinn mikli
Spinoza, fæddur í Amsterdam,
„Liösforingi og brosandi stúlka".
Frick safnið I New York, mðluö
1657.