Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1976, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1976, Blaðsíða 10
BORNIN ERU 6 EN MÖÐIR ÞEIRRA LÉT ÞAÐ EKKIAFRA SÉR FRÁ AÐ LJOKA NÁMIVIÐ TÖNLISTARSKÖLANN Þuríöur J. Árnadöttir rœöir viö Margréti Ölafsdöttur Á ieiðinni í heimsókn til Mar- grétar Ólafsdóttur velti ég því fyrir mér hvaða orsakir verða til þess að kona, sem er sex barna móðir með eiginmann til fyrir- vinnu heimilisins, leggur á sig þriggja ára erfitt nám á því tíma- bili, sem hún á mestum önnum að sinna í heimilishaldi og fjöl- skyldulífi. En einmitt þannig er ástatt um Margréti. Hún hefur nýlokið námi við Tónmenntakennara- deild Tónlistarskólans. Þessa má glöggt sjá merki á heimili hennar að Fellsmúla 13: blóm og heilla- óskir vina og vandamanna prýða stofuna þar sem við sitjum. Annað sem vekur athygli í þess- ari vistlegu stofu er heimiliskött- urinn, sem ásamt tveimur stálp- uðum kettlingum, flatmagar og steinsefur í hægindastól á miðju gólfi. Tvö yngstu börnin eru heima en leika sér úti nema þegar þau eiga erindi inn til mömmu á með- an við spjöllum saman. Ákveðið svar við spurningu minni um hvað hafi ráðið því að hún hóf þetta nám, hefur Margrét ekki. — Sennilega hefur það fyrst og fremst verið fróðleiksþrá, þörf fyrir meiri menntun, segir hún. Upphaflega ætlaði ég í tón- listardeild en tónmenntakennara deildin varð fyrir valinu af hag- sýnisástæðum. Það nám veitir meiri möguleika til vinnu við kennslu og framhjá því verður ekki gengið að slíkt nám er mikil t.rygging ekki sfst fyrir konu með mörg börn. Á hvaða aldri voru börnin þegar þú fórst f nám? — Það yngsta var tveggja ára, næsta fjögra, þá sjö og tólf ára og elstu drengirnir voru þrettán og fjórtán ára. Fannst þér þetta ckki allt að því óframkvæmanlcgt? — Ég hugsaði ekki um það, lét hverjum degi nægja sína þjáning og leiða i Ijós framhaldið. Ég byrj- aði á því að reyna við inntöku- prófið, hélt að þar mundí áætlun- in strax stranda. En svo varð ekki og þá var að halda áfram. Maður- Hér eru þau Margrét og Guðmundur í stofunni heima hjá sér við Fells- múla i Reykjavík. Milli foreldranna sitja Kristin 14 ára Ólafur, 17 ára og sá yngsti: Hjalti, 5 ára. Aftan við þau standa Bergþóra, 7 ára og Ámundi, 10 ára. Pálmi, sem er 15 ára, var kominn til sumardvalar I sveit og gat ekki verið með, en hann er hér á myndinni til hægri. Margrét við hljóðfærið. Hún hefur náð takmarki sinu vegna þess að allir á heimilinu hjálpuðust að. inn minn hvatti mig, það hafði mikið að segja. Eldri systir mín hafði þegar lokið þessu sama námi. Hún átti fjögur börn þegar hún hóf námið og það fimmta bættist við á meðan á náminu stóð. Mér fannst að það sem henni reyndist framkvæmanlegt hlyti ég einnig að geta. — Þótt ég hefði í fyrstu enga brennandi löngun til þessa náms, fékk ég strax mikinn áhuga, sér- staklega þegar ég fór að vinna með börnum, heldur Margrét áfram. Einn liður í náminu er að kenna í yngri bekkjum barna- skóla Undir stjórn æfingakenn- ara. Það er skemmtilegt að kenna börnum samkvæmt tilraunanám- skrá, sem nú er farið eftir i fyrstu þrem til fjórum bekkjunum. Þar er börnunum ekki aðeins kennt að syngja, heldur einnig að hlusta á tónlist, hreyfa sig eftir hljóm- falli og skynja takt, ennfremur einföld atriði í hljómfræði, sem þau taka svo próf í. Sfðastliðinn vetur kcnndir þú

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.