Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1976, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1976, Blaðsíða 12
traust og ég öðlast svolitla örygg- iskennd af samneyti við þá. En slíkt dugar skammt. Fólk verður að standa á eigin fótum. Það má ekki verða öðrum háð. Ég hef aldrei brugðist þeim sem virtu mig einhvers. Vinnur fólk nokkurn tíma bug á feimni? Ég held að feimni fylgi manni alla ævi eins og augnlitur- inn. Weatherby: Já hið innra. En fólk lærir að fela hana hið ytra. Gerir þú það ekki? Ekki alltaf. Stundum bókstaf- lega stirðna ég af feimni. Mér hefði getað orðið miklu betur ágengt hefði mig ekki alltaf skort sjálfstraust. Einu sinni hélt ég við blökku- mann. Hann vildi halda sambandi okkar leyndu. Ég vildi það vist líka. Ég held að við höfum bæði verið hrædd. Ég smeygði mér inn i herbergið hans, þegar enginn sá til. Okkur þótti vænt hvoru um annað. Hann skildi mig svo vel. En ævintýrinu lauk fyrr en varði. Þetta var engu likara en að eiga ástasamband við tukthúslim. — öllu lokið um leið og tugthús- hurðin lokast — og vistin innan- dyra verður óþolandi. Eins og frelsisskerðing. Ég veit ekkert, hvað varð um hann. Ég var lengi vel að vona að hann skrifaði mér linu, ef hann sæi mig í kvikmynd. En líklega hefur hann bara viljað gleyma mér. Það er auðvelt að skilja lögmál þrælahaldsins, hafi maður kynnst kvikmyndaheiminum. Ég hef lesið hlutverk Blanche DuBois í leikritinu ,,Girnd“ eftir Tennessy Williams. Það hlutverk mundi ég vilja leika einhvern tima á Broadway. Ég er svo hrifin af siðustu setningunni hennar. Ég man hana ekki orðrétt, en hún er eitthvað á þá leið, að hún hafi alltaf þurft að leggja sitt traust á ókunnuga. Það skil ég vel. Vinir og ættingjar geta brugðist. Ekki sizt ef þeim er sýnt of mikið traust. Samt getur verið varhuga- vert að treysta ókunnugum. Það fékk ég að reyna í æsku. Weatherby: Einhvers staðar las ég að þér hefði verið nauðgað, þegar þú varst barn. Við skulum ekki tala um það. Ég er orðin leið á að tala um það. Mér þykir verst að hafa nokkurn tíma minnst á það. (Hún þurrkaði annars hugar af borðinu með pappírsþurrkunni og brosti um leið með sjálfri sér). Þarna kem- ur húsmóðirin upp í mér. Mér finnst gaman að húsverkum. Þau dreifa huganum. En vel á minnst, Blanche ... á ég að segja þér, hver hefur reynzt mér bezt? Það eru hvorki kunnug- Bókar- kafli eftir J. C. WETHERBY Ég er ekki bara ein manneskja, heldur margar í senn, ogéger stundum hrædd við þær. Einu sinni hélt ég að ég væri að missa vitið, en svo komst ég að því að þessu er eins farið um margt fólk sem ég dái. Arthur (Miller) er að minnsta kosti 700 manns. Ég sit tímunum saman fyrir framan spegil og leita að hrukku í andlitinu á mér eða einhverjum elli- mörkum. Samt þykir mér vænt um gamalt fólk. Það á margt til að bera umfram það sem yngra er. Ég ætla að eldast án þess að láta gera á mér andlitsaðgerð- ir. Mér finnst persónuleik- inn glatast við það. Ég vil ekki hafa nein brögð í frammi. Ég vil vera heiðar- leg gagnvart sjálfri mér og öðrum. Stundum finnst mér reyndar að æskilegast væri að komast aldrei á efri ár ... að deyja ungur. En þá glatast líka mörg tækifæri. Þá vinnst ekki tími til að kynnast sjálfum sér til fulls. Weatherby: Sumir vilja ekki kynnast sjálfum sér. En það vil ég. Samt er ég stund- um hrædd. Lengi vel var ég hrædd um að verða eins og móðir mín, lenda á geðsjúkrahúsi eins og hún. Ég veit ekki enn hvort ég er nógu sterk á svellinu, en ég vona að ég verði það. Stundum spyr ég sjálfa mig, við hvað ég sé eiginlega hrædd. Ég veit að ég hef hæfileika. En ég þarf oft að telja I mig kjark. Svona nú, áfram Marilyn, segi ég. Ég reyni alltaf að vera fólki til geðs ... segi það sem ég veit að það vill heyra. Það er ekki rétt. Allir ættu að fá að lifa óttalausu lífi áður en allt er um seinan. Öttinn er tilgangslaus. Iðrun líka. í mörg ár iðraðist ég þess sáran hve lítið ég stundaöi skóla. Hvaða máli skiptir það núna? Þeir sem flagga skólaskírteinum vildu fegnir vera kvikmyndastjörnur. í mínum huga jafngilti skóla- skírteini öruggri höfn eða heimili, sem ég átti aldrei í æsku. Fram eftir aldri vissi ég ekkert hvað hamingja var. Lengi vel hélt ég að hamingja væri fólgin í því að eiga föður og heimili. Ég hef aldrei átt föður — þeir eru ekki til sölu — en ég hef gifst þrisvar og eignast heimili og hamingjan hefur geng- ið mér úr greipum. Fólk á að njóta hamingjunnar þá stund sem hún gefst. © MARILYN MONROE segir frá sjálfri sér Draumurinn um frægð í kvik- myndaheiminum er miklu skemmtilegri en frægðin, þegar hún er fengin. Ég var að þvi komin að gefa allt á bátinn, þegar tækifærið bauðst loksins. En þegar ég var hætt að kæra mig um stjörnuhlutverk, þá rigndi tilboðunum yfir mig. Svona getur þetta verið á fleiri sviðum. Vonbiðlarnir flykkjast að mér, þegar ég hef engan áhuga á þeim. Stundum getur smekkur minn fyrir karlmönnum verið vægast sagt skrítinn. Um eitt skeið varð ég upptendruð um leið og karl- maður sýndi mér minnsta áhuga. Sama hver var. Ég var alltaf reiðubúin að sýna viðkomandi fullt traust. Það breyttist ekkert, þótt ég yrði fyrir vonbrigðum þótt þeir reyndust ekki traustsins verðir. Ég hlýt að hafa verið skelf- ing einföld. Þó er ekki óhugsandi að ég falli einhvern tíma í sömu gröf. Ég mundi þó gerá ofurlítið meiri kröfur en áður til hins útvalda. ÖIl mín glöp hafa komið sjálfri mér i koll. Stundum óðu þeir að mér, glaumgosarnir frá Holly- wood, þar sem ég stóð við hliðina á eiginmanninum I partíi, klöpp- Síðustu tvö árin, sem Marilyn Monroe lifði átti hún að trúnaðarvini brezka blaðamanninn W.J. Weatherby. Þau hittust oft á krá við 8. götu í New York og Marilyn spjallaði margt af einlægni um sjálfa sig. Hún fór „huldu höfði” ef svo mætti segja, með andlit- ið sápuþvegið og skýluklút á höfði, klædd blússu og snjáðum síðbuxum. „Þú getur skrifað bók um samtölin okkar, þegar ég er hætt að leika", sagði hún. Það hefur Weatherby gert og í þessari grein er gripið niður í kafla úr bókinni. uðu á öxlina á mér og brostu kankvist. Það átti að þýða: Þessi var nú auðunnin. Slikt mega fyrrverandi hórur sjálfsagt þola. Þó var ég aldrei hóra I eiginlegri merkingu. Ég sá alltaf fyrir mér sjálf. En ég viður- kenni að um tíma var ég laus á kostunum. Ég svaf hjá Pétri og Páli vegna þess að ég hélt að það mundi koma mér að góðu haldi á leiklistarbrautinni. En aldrei nema hjá þeim, sem mér féll við. Karlmenn hafa svo mikið sjálfs-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.