Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1976, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 01.08.1976, Blaðsíða 14
María Hreinsdóttir KRÍUEGG OG KAM PAVÍN tcfl6 Frá gömlu stóru húsi I Laugarnesinu sést út á Viðeyj- arsundið á milli tveggja risa- stórra bensíntanka. Að ofan er þessum skika af silfurtærum sjó lokað með vinaiegu gras- hólunum í Viðey. i nokkur ár var mér skammt- að þetta útsýniskríli við upp- þvottinn f eidhúsinu 'og varð eíns og heilaþvegin af þessum andstæðum, sem teiknuðu svo skarpar Ifnur á eldhúsglugg- ann minn. Svo var það einu sinni um vetur þegar úfnar gráar öld- urnar grettu sig framan í yfir- þyrmandi þunglyndislegan og litlausan himininn og upp- þvotturinn var með aimesta móti — að ég beit það í mig að í vorbyrjun þegar gerði gott veður, skyldi stofnað til smá- leiðangurs út í eyna. Ég byrj- aði strax að planleggja ferðina og hlakka til.og bollar og disk- ar þustu á sína hvíldarstaði f skápum og hillum. Þetta var ein af þeim hug- dettum, sem ekki var mjög erf- ið í framkvæmd — og þvf var það allnokkrum vikum seinna, þegar vorkvöldið varð svo angurblftt, að fiðrildin fara á kreik í sálinni á ungu fólki á öllum aldri og sumarið er fullt af fyrirheitum — að fenginn hafði verið að láni gamall bát- ur og í honum sátu tvenn hjón og fyrirheitna landið var Við- ey, en þetta var á þeim tfma þegar „sunnudagstúristar" Reykjavíkur fóru enn Þing- vallahringinn og enginn hafði heyrt um áætlunarferðir út í Viðey. Allt var yndislega kyrrt og fallegt — gullinn glampi yfir fjörunni og ýmis konar járna- rusli, sem þar beið þolinmótt eftir síðasta þætti örlaga sinna. Stóri gúanó-strompurinn varð allt f einu svo spaugilegur þar sem hann teygði sig pú- andi langt upp f loftið og virt- ist helst vera að keppa við Esj- una, sem sat makindalega á sínum stað og virti hann ekki viðlits, en breiddi úr skarti sínu í allar áttir. Við tókum land norðan til á eynni — eftir að hafa kfkt í land úr ímynduðum löngum sjónauka og komist að raun um að þar væri best að ráðast til uppgöngu — og byrjuðum fljótlega að svipast um eftir því, sem verið hafði „tilgang- ur“ ferðarinnar, sem sé að tína krfuegg, heimsins mesta hnossgæti. Sem góðir og gildir aðfluttir Reykvíkingar, sem enn væru í tengslum við náttúruna — þóttumst við vita, að einmitt nú væri rétti tíminn — stigum gætilega þúfu af þúfu og tínd- um eitt egg úr hverju hreiðri, veifandi yfir höfðinu priki til að forðast loftárásir eigend- anna og eins til að berja frá okkur samviskubitið af þessu athæfi, sem einhvern veginn ekki vildi samræmast vor- næturævintýrinu... Hópurinn settist í hnapp upp á hæsta klettinn og naut útsýnisins um stund. Eg til- kynnti að heima biði rykfallin kampavfnsflaska, sem reyndar var nú komin inn f fsskáp, og ætti hún að tilheyra krfueggja- veislunni um nóttina. Ekki skyggði þetta á stemninguna og nú var hlaupið í einum spretti, eða eins og eggin leyfðu — í bátinn, enda tekið að kólna dálftið. Esjan var far- in að dragaýsur og andvarpaði köldum gusti yfir til okkar. Þegar allir höfðu fengið að spreyta sig á róðrinum til skiptis nokkrum sinnum, kom- um við f land glorhungruð og gegnköld. Heima var svo sest við dúkað borð með dýrindis kampavfni — og kríueggjum sem öll reyndust stropuð! Það var heldur sneyptur hópur, sem sór þess dýran eið að taka aldrei oftar egg frá þéssum fjörmikla fugli — og við trúðum hvort öðru fyrir því, að f rauninni hafði ekkert okkar langað til að taka eggin, en höfðum ekki þorað að minnast á það af ótta við að hinum þætti það barnalegt. Hökarla- veiðar Framhald af bls. 5 þjósir utan borðs og innan En þá sáum við dálítið nýstárlegt. Upp undir bátinn komu tveir stærðar svolar syndandi. Hafa þeir orðið varir við seilarnar hjá okkur og langaði nú í bita. Þeir komu svo nærri, að þeir strukust jafnvel við bátinn. Kom það nú fyrir sem ekki hafði hent mig fyrr, að ég fékk svo mikinn skjálfta, af tóm- um veiðihug, að ég réð mér varla og nötraði á beinunum. Munu þeir vita, hvað ég á við, sem ein- hvern tíma hafa fengið læra- skjálfta! En ífærurnar voru jafn- skjótt á lofti og þarna náðum við þremur stórum hákörlum. Ég man að Jói varð að halda í fætur mér, þegar ég bar ífæruna í einn. Er mér ekki grunlaust, að kollur- inn á mér hafi blotnað í þeim leik. En þegar blóð fór að lita sjóinn hurfu hákarlarnir, sem undir voru, eins og skotið hefði verið á þá. Sagði nú Stefán, að ekki þyrfti að reyna aftur þetta vorið. En 32 hákarla höfðum við fengið þenn- an tíma. Við vorum lengi í land í þetta sinn, sem hér um ræðir. Höfðum við bæði seilar og'þrjá stóra hákarla á slefi. Þetta varð falleg hrúga, þegar hún var á land komin. Væri sá afli mikils virði nú. En þá var vel verkaður hákarl seldur á 10 — 20 krónur fjórðung- urinn (5 kg.). Þetta var fyrsta búskaparár okkar hjóna. Vorum við að stinga hákarlsbeitum að vinum okkar allaii veturinn eftir. Varð það okkur happadrjúgt. Vin- argjafir borga sig alltaf tvöföldu verði. Ég hefi nú talað langt mál um þessa fyrstu hákarlalegu okkar árið 1927. En 1928 fórum við aftur. Bárum við niður á sömu- slóðum og beittum enn sem fyrr, þefmiklu góðgæti sem við vissum að hákarlinn kynni að meta. Að þessu sinni vorum við fyrr á ferð en áður. Héldum við til veiða snemma í apríl. Við öfluðum heldur vel, fengum 17 hákarla alls og voru margir þeirra vænir. Þó var enginn tunnuhákarl. En það eru þeir stærstu nefndir; fyllir lifrin úr þeim lagartunu (120 lítra). Árið eftir þetta, 1929, fórum við enn í hákarlalegu. Um veturinn áður hafði Stefán útvegað selkóp. Stefán smakkaði aldrei vín en brá nú út af venju og fékk sér rommflösku. Hins vegar drakk hann ekki úr henni. Hann fékk sér slöngubút, þræddj hann niður í maga selsins og hellti úr flösk- unni. Þótti sumum, að veigarnar hefðu farið illa, þar sem þær end- uðu í selsmaga. Selurinn var lát- inn i hlýjan hesthúskofa. Að nokkrum tíma liðnum var orðin þar hin ágætasta lykt. Að minnsta kosti fannst sumum það. En undir vor var farið með selinn vafinn vír og honum sökkt niður með stjóra á möglu hákarlamiðunuih okkar í álnum og fram undan Bæ. Fjórða apríl um vorið fórum við svo I legu á miðin. Var þá nógur hákarl undir og fengum við 25 got í það sinn. Þurfti að sækja til okkar á báti eins og áður. Þessi þrjú vor sem við fórum fengum við 74 hákarla alls. Voru margir þeirra vel vænir. Ýsmar ástæður, svo sem slysfar- ir og sjódauði okkar ágæta formanns, Stefáns, ollu því, að ekki var farið í fleiri hákarlaleg- ur frá Bæ. En ég er ekki í neinum vafa um það, að enn gengur hákarl inn á innfjarðarmið og tekur, einkum ef borið er niður fyrir hann nokkru áður en haldið er til veiða. Fyrir nokkrum árum setti Gunnar Þórðarson á Sauðár- króki niður æti á gömlu hákarla- miðunum okkar. Var hann mjög vel var og fékk t.a.m. þrjá i eitt skiptið. En um hákarlaveiðar segja flestir, sem reynt hafa, að ekki séu aðrar veiðar fremur spennandi. Mér er það líka minn- isstætt, að það var eins og gömlu hákarlagarparnir lifnuðu og yngdust allir er þeir fóru að ræða forna hildarleiki sína við þann gráa, eins og þeir nefndu hákarl- inn jafnan. l’lK.-íandi: II I Ariakur. Ri-vkjavlk Framk\.\lj.: ifaraldur Swinsson Rilsljórar: Wallhías Johanncssen Sl> rmir (iunnarsson Ritslj.f11r.: (• ísli Siuurðsson Atinl.vsinnar: Arni (iaróar Rrislinsson Rilsljórn. Aðalslræli fí. Sími 10100 Fyrstu kynni af Marsbúum Framhald af bls. 4 förum í öllu sólkerfinu. En Mars og Júpiter urðu þó harðast úti, og eydd- ist þá mjög byggðin á Mars. „Ég vona að þetta geti orðið okkur til varnaðar," mælti Sigurður, og tóku hinir undir þau orð hans. „En Mars- búar hafa nú lofað að senda okkur kennara og fræðimenn," lauk hann máii sínu. „Vonandi koma þeir vitinu fyrir okkur." „Já, okkur veitir víst ekki af snjöll- um kennurum," sagði Englendingur- inn glottandi. „Þeir létu sig hafa það að líkja okkur við vanþroska börn!" Einn Ameríkumannanna lagði orð í belg: „En þeir sögðu nú líka að við myndum fullorðnast smám saman. Og þeir vildu mjög gjarnan hjálpa okkur til að verða friðsamari og betri manneskjur." „Þeir eru að minnsta kosti komnir langt framúr okkur, hvað tæknina snertir," mælti einn af Rússunum, íhugandi. „Þar er margt og mikið af þeim að læra. — og þeir segjast hafa gefið gætur að okkur í margar aldir. Fljúgandi diskarnireru þá reyndar veruleiki — geimförfrá Satúrnusi og Mars! Því hefði ég aldrei trúað en nú vitum við bað." Geimfararnir komust til jarðar heilu og höldnu, og frásögn þeirra af ferð- inni vakti gífurlega athygli um heim allan. En það er önnur saga. Kristmann Guðmundsson.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.