Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 26.09.1976, Side 5
Smásaga eftir TOVE DITLEVSEN Strax í nokkurri fjarlægð sá hann, að eitthvað var hún öðruvísi en vant var. Hann sat á litla gilda- skálanum við sama borðið, þar sem þau höfðu hitzt hvern dag síðla um eins árs bil. Hann horfði út á hvita götuna, þar sem fólk barðist áfram móti hríðar- hraglandanum með hönd fyrir augum. Hann áttaði sig að hún kom óvenju seint, og áður en hann sá hana, fylltist hann óró- leika, sem átti sér engar rökrænar rætur. Og um leið og hann leit hana aug- um þyrmdi yfir hann. Eins og venjulega sneiddi hún götuna hinum megin frá í trássi við allar umferða- reglur og hefð. Hún var einnig klædd á venjulegan hátt og allt virtist sem vant var, en samt var allt svo þyngslalegt og óraunveru- legt, eins og mörg ár væru síðan hann hefði setið hérna við gluggann og horft á hana koma og fundið hvernig allur óró- leiki hafði horfið honum aðeins við að sjá hana. Annars var hann alltaf kvíðinn, er hún var ekki hjá honum. Hún fór úr kápunni og tók af sér hattinn og trampaði snjóinn af fótun- um. Kinnar hennar voru rjóðar og sællegar. Hress- andi gustur vetrarins lék um æsku hennar, er hún gekk inn eftir salnum. Hún leit ekki á hann er hún bauð honum góðan dag, og settist gegnt honum öðru vfsi en vant var er hún settist við hlið hans. Hún hló mikið og talaði af ákafa um hversu kalt væri og útiloftið hressandi. Hún ýtti við hárinu og vermdi sér á höndunum á ofninum undir glugganum, en varð aldrei litið á hann. Hjarta hans barðist um þunglega og tilfinningasljótt. Hann var þurr í kverkunum. Honum fannst hann standa og horfa á eftir lest. sem hann hefði endilega þurft að fara með en misst af. Það var um líf og dauða að tefla að komast einmitt með þessari lest, hún var hin síðasta sem fór, sú síð- asta fyrir hann. Hann horfði út í loftið og leyfði henni að vaða elginn. Hann sat og hún glataðist honum smám saman og hann átti þess enga von, að hún yrði hans aftur. Aldrei skyldi hann snerta hana framar, aldrei kyssa hana oftar. Hann gat ekki tekið um hönd hennar og sagt: jæja, gamla mín, lát- um nú misklíð niður falla — hún var óhöndlanleg, fjarlægari en áður en hann kynntist henni. Hún sagði: Hefurðu tek- ið eftir að vorið er i nánd? Nei, sagði hann. Hún hló. Hann sá að hún var mjög óstyrk og mjög hamingju- söm. Einu sinni hafði hann séð hana þannig áður, en þá horfði hún ekki fram hjá honum. Augu hennar voru stór og næstum svört. Honum fannst hún mjög falleg. Af hverju sitjum við f rauninni alltaf hérna, sagði hún hátt, hérna er svo leið- inlegt. Já, má vera, svaraði hann og hugsaði um leið: Ástin er brothætt. Og ein- hvers staðar hamraði i heila hans: Þú sérð hana aldrei framar, þú sérð hana aldrei framar. Hljómsveitin hóf að leika. Þau þögðu bæði. Honum fannst munnur sinn fullur af sagi, jafnvel venjulegustu setningum gat hann ekki komið út úr sér. Hún sat við gluggann og hægur roði færðist yfir andlit hennar, eins og skært Ijós væri tendrað inni i henni. Þetta er gott kaffi, sagði hún lágt. Hann svaraði ekki. Honum datt i hug: ósköp er hún heimsk. Orðin hengu og titruðu i loftinu kringum þau. Gott kaffi, gott kaffi vældi músikin. Gott kaffi, berg- málaði i salnum, eins og hún hefði hrópað það af öllum kröftum. Þessi bjánalegu orð héldu áfram að suða fyrir eyrum þeirra án miskunnar, funi fór um likama hennar þungur og óþægilegur. Hann horfði stöðugt á hana án þess að hreyfa sig eða segja nokk- uð. Allt í einu vatt hún hendur sínar vandræða- lega og augu þeirra mætt- ust. Andlit hennar var nak- ið og sakbitið eins og barns, sem eitthvað hefur gert af sér. Þá sagði hann: Þú ert ástfangin. Og þetta skæra leyndardómsfulla Ijós tendraðist einhvers staðar djúpt i hennar innra. Já, hvislaði hún. Ég gæti dáið, hugsaði hann, en hvers vegna ætti ég að deyja hennar vegna? Hún er kjáni og eftir fimmtiu ár er hún gömul skorpin múmia og hvers er þá að sakna? Augu hennar hvörfluðu um snjóbreiðuna. Já, ég er ástfangin, sagði hún og leit út eins og hún væri að því komin að hlæja og gráta i senn. Hjarta hans barðist eins og gamall slit- inn rokkur, sem engu þjón- aði lengur heldur gengur aðeins af gömlum vana af þvi einhver hafði sett hann igang. Hún stóð upp og rétti fram höndina, hún ætlaði að segja eitthvað hugg- andi, eitthvað á þá leið að þau gætu verið vinir þrátt fyrir allt, en hann sá hana ekki framar og tók ekki í hönd hennar. Eitthvað i átt við sársauka og undrunar- svip fór um andlit hennar, svo sneri hún sér rög og hikandi frá honum og fór. En er hún var komin út á götuna þreif hún af sér hattinn og sneri ásjónu mót storminum. Þannig fór hún frá honum, hröð og létt með ýktum þokka hinnar ungu stúlku. Hann bærði ekki á sér heldur seig saman. Það var að byrja að dimma, storm- inn var að lægja. Þjónninn lagði hönd á öxl hans: Reikningurinn, gerið svo vel! ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.