Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 07.08.1977, Page 2
Sex vikna ferð með lúxusskipinu Kungsholm með við- komu á íslandi, Noregi, Rússlandi og nokkrum Evrópu- höfnum, kostar að meðaltali nærri 1,5 milljónir íslenzkra króna á mann. Meðal- aldur farþeganna er trúlega 60-70 ár og á hverju ári enda nokkrir ævina þar um borð. Er timaskeið skemmtiferða- skipanna liðið? Hafa kröfurnar um hraða á öllum sviðum riðið þessum fljótandi lúxushótelum að fullu? Þessar og aðrar ámóta spurningar hafa heyrzt upp á síðkastið, þegar frézt hefur að heimsfrægum skipum af þessu tagi eins og Queen Elizabeth og Franch hafi verið lagt. Rekstrargrundvöllur var sumsé ekki til fyrir þau lengur; hinir mjög svo efnuðu túristar, sem áður fóru með slíkum skipum yfir Atlantshafið, höfðu að því er virtist tekið framyfir að kom- ast í einum grænum hvelli á fjarlæga áfangastaði með þot- um. Mikill ferðahraði er samt bæði leiðigjarn og slítandi og þegar menn eru orðnir leiðir á langdvölum i Acapulco eða Bermudaeyjum eða frönsku Ríveríunni, kemur aftur upp hugmyndin um fljótandi lúxus- hótel, sem aldrei hreyfist í sjó og þræðir áður ókunna staði. Stressið, sem fylgir flugferðum er víðs fjarri á slíku skipi og sjávarloftið ku hafa heilsusam- leg áhrif. Af þessum ástæðum og ýmsum fleirum er ekki lik- legt að stóru farþegaskipin leggi upp laupana. Cunrad- félagið er með nokkur skip í smíðum og fjöldi þeirra skipa, sem hefur viðkomu á islandi fer heldur vaxandi. Þá er gjarn- an eins dags viðdvöl í Reykja- vík, en farþegum gefinn kostur á ferð austur að Geysi. Að feng- inni reynslu trúa Reykvíkingar því, að þá sé lítil von um upp- styttu, ef von er á skemmti- ferðaskipi. A regngráu árdegi i júlibyrj- un kom einn glæstasti farkost- ur þessarar tegundar, Kungs- holm, út úr þokunni og varpaði akkerum á ytri höfninni. Fastir liðir eins og venjulega: Yfir- byggðir bátar úr davíðum og farþegar hópuðust í land; rútu- bílar til taks að hossast allar götur um Þingvöll að Geysi og ekki gryllti í fjöllin fyrir þoku. Sumir láta sér nægja að líta á búðirnar í miðbænum og þegar © Þessi hjón eru bandarisk og borga 3—4 milljónir ísl. króna fyrir 6 vikna ferS meS Kungsholm. Þau voru nýkomin um borS; höfSu veriS aS lita i búSir i Reykjavik og blöskraSi verSlagiS. Hún er orSin gömul og fór ekki i land í Reykjavík. En hún notaSi næSiS til aS ná i peningana sina úr öryggishótfinu og svo taldi hún og taldi langtimum saman. Á auglýsinga- bæklingunum eru myndir af ungum glæsikonum, en í reyndinni eru þær fremur eins og hér sést, 60—80 ára gamlar. ákaf- lega lifandi og lifsglaSar og svo hlaSnar perlum og gimsteinum. aS þær gætu ver- iS meS húsverS á fingrunum. aftur er komið út í skipið, heyr- ist gjarnan minnst á hrikalega prísa og virðist dýrtíðin það, sem helzt hefur vakið athygli farþeganna. Þeir hafa þó trúlega átt fyrir einni lopapeysu og kannski splæst á sig dýrasta kjúkling í heimi á einhverjum grillstaðn- um. Það eru ekki venjulegir túristar, sem ferðast með svona skipi, heldur einvörðungu ríkt fólk — að minnsta kosti á is- lenzkan mælikvarða. Það er rikt og það er gamalt. Og bless- aðar silfurhærðu kellingarnar eru að því er virðist í talsverð- um meirihluta; kallarnir löngu dauðir af álaginu við að eignast alla þessa peninga. Og hvað get- ur gömul forrik kona gert betra við timann, en lóna með Kungs- holm eða öðru álíka skipi um heimshöfin. Þar er allt sem hugurinn girnist og keypt verð- ur fyrir peninga — og miklu meiri og betri þjónusta en fundin verður á einum stað i landi. Ekki veit ég um meðalaldur farþega, en varla mun hann vera mikið undir 70 árum. I auglýsingabæklingum skips- félaganna eru gjarnan myndir af ungum glæsikonum á dekki, við sundlaugina eða á einhverj- um barnum. En þvi miður sá ég ekki þesskonar stásspiur í hópi farþega. Þær voru gamlar og lífsreyndar á svipinn, en glaðar í bragði — og skartgripirnir, sem þær báru hafa uggiaust verið uppá nokkur húsverð. Fólki á þessum aldri hættir af eðlilegum ástæðum til að verða lasið annað slagið og góð heilbrigðisþjónusta er því meira virði en diskótek og bar- ir. Af þeim ástæðum er starf- ræktur spitali um borð; þar eru læknar og hjúkrunarkonur og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.