Lesbók Morgunblaðsins - 28.08.1977, Blaðsíða 2
Heimur ófrelsisins: Lönd me8 frjáls blö8 eru auSkennd me8 hvítu, skástrikuð
eru þau lönd, sem búa vi8 skert blaSafrelsi a8 einhverju leyti og svört eru
þau lönd, þar sem frjáls blö8 eru ekki til.
Unnendum frjálsra kosninga, lýð-
ræðis og frelsis þótti mikils um vert að
heyra úrslitm i mdversku kosnmgun-
um Ekki endilega fall Indiru Gandhi,
heldur að fá staðfestingu þess, að
næst fjölmennasta ríki heimsins var
þrátt fyrir allt lýðræðisriki þar sem
æðstráðandi embættismaður landsins
var felldur i frjálsum kosnmgum
Þetta var óvænt vegna þess að yfir-
leitt eru fréttir af þróun mála á annan
veg. Lýðræði, frelsi og þar á meðal
frjáls blöð láta i minni pokann fyrir
gerræði, herforingjastjórnum og
kommúmstastjórnum af ýmsu tagi.
í allri Afriku er aðeins eitt land, þar
sem fólkið á þess kost að lesa fréttir,
sem ekki hafa verið ntskoðaðar. Það
er í Botswana. Þessar upplýsingar
koma frá Freedom House, en það er
sjálfstæð stofnun, bandarisk, sem
gert hefur athugamr á frjálsræði
blaða i heiminum siðan 1972.
I öllum öðrum Afrikuríkjum eru
blöðm „að hluta frjáls" eða „ófrjáls".
Og á meðal landa, sem hefta sín blöð
eru lönd, sem eiga að heita lýðræðis-
riki; þar á meðal Filabeinsströndin,
Transkei Rhodesia og Suðvestur Af-
rika emnig nefnd Namibia I Suður
Afriku eru gefin út ritskoðuð blöð og
©
sama er að segja um Marokkó og
Egyptaland.
Þessi þróun i blaðaheiminum er
aðeins spegilmynd af ástandinu í það
heila. Frjálsu fólki í heiminum — og
þá er átt við þá, sem geta kosið sér
leiðtoga í frjálsum kosningum og les-
ið óritskoðuð blöð — hefur fækkað
niður i 790 milljónir og það samsvar-
ar ekki einu sinm tölu Kinverja. Það
fólk, sem enn nýtur frelsis, býr í 42
löndum og 19 hjálendum, sem svo
eru nefndar. Færeyjar eru til dæmis
talin hjálenda frá Danmörku. Samtals
eru taldar vera 1 766 milljónir manna
í „ófrjálsum" löndum, eða lítillega
mnan við 40% af heildarmannfjölda
heimsins, og „að hluta frjáls" eru
36% mannkyns, eða 1 465 milljónir.
í skýringum Freedom House segir,
að stundum séu mörkin óglögg og
erfitt um vik að draga hreinar likur.
Stundum er erfitt að staðreyna, hvort
upplýsingar séu nægar og áreiðanleg-
ar. Sumt orkar tvimælis og venjulega
í þá áttina, að frelsið er eitthvað
minna en af er látið. Til dæmis er
ísrael talið búa við frjáls blöð þó
herinn hafi þar ritskoðun. Vert er
eftirtektar, að stofnunin telur Græn-
land meðal þeirra hjálendna, sem búa
við skert blaðafrelsi.
Frelsi og ófrelsi.
Frjáls lönd — Hvít á kortinu
1. Ástralía, 2. Austurriki, 3. Bahama-
eyjar, 4 Barbadoseyjar, 5. Belgia, 6.
Botswana, 7. Kanada, 8. Colombia,
9. Costa Rica, 10. Danmörk, 11.
Fiji-eyjar, 12. Finnland, 13. Frakk-
land, 14. Gambia, 15 Vestur Þýzka-
land, 16. Grikkland, 17. ísland, 18.
írland, 19. ísrael, 20 ítalia, 21.
Jamaica, 22. Japan, 23. Luxem-
burg, 24. Malta, 25. Mauritius, 26.