Lesbók Morgunblaðsins - 28.05.1978, Qupperneq 7
„Hitt veit ég aö af er fóturinn“
Þeir Kennedyar eru ekki írar fyrir neitt og láta
ekki bugast þótt oftlega hafi blásiö á móti í
þessari frægu ætt. Meöal annarrar ógæfu var
þaö, aö Ted sonur Joan og Ted Kennedy
öldungadeildarþingmanns, fékk krabbamein í fót
á.fermingaraldri og varö aö taka af honum fótinn.
Á þann hátt var lífi hans bjargaö og strákur lætur
þaö ekki á sig fá, þótt af sé fóturinn. Hann er
nú oröinn 18 ára; er stór og myndarlegur og líkur
sínum nánustu. Þeir sem þekkja hann bezt segja,
aö hann sé meiri Kennedy en allir hinir. Margir
mundu halda aö óreyndu, aö skíöasport væri
meöal þess, sem einfættir menn reyndu alls ekki.
En Ted yngri lætur fötlunina ekki aftra sér. Þótt
ótrúlegt megi viröast er hann meira að segja
oröinn góður skíðamaöur og ber sig þannig til,
aö í staö hægri fótarins, sem vantar, hefur hann
hækjuna á skíöinu.
Hvaö munar um 34 ár
Þýzki kvikmyndaleikarinn Kurt
Jiirgens hefur eins og aörir kvik-
myndaleikarar ekki veriö einnar konu
maöur. Hann hefur átt fimm konur og
þykir engum mikiö. Karlar eins og
Júrgens sem sífellt eru aö gifta sig
frameftir ævinni, hneigjast yfirleitt til
þess aö giftast yngri og yngri konum
eftir því sem þeir sjálfir verða eldri
og hefur þaö á kjarngóöri og
óhátíölegri íslenzku veriö kallað aö
vera kominn í lambaketiö. Nýlega
hefur Kurt Júrgens fundiö sér eina
nýja; hún er samlandi hans, heitir
Margie Schmitz og er 28 ára. Sjálfur
er leikarinn og kvennagulliö 62 ára,
en hvaö munar um 34 ár milli vina.
í þetta sinn skrapp Júrgens til
Bahamaeyja til að gifta sig og nú var
allt í hvítu: fötin, orkideurnar,
vagninn sem ekið var í og hesturinn,
sem dró hann. Og svo er veriö að
segja, aö menn veröi órómantískir
með aldrinum.
Einstæöur faöir — en stendur til bóta.
Fyrir ári fórst Alia Jórdaníudrottning í þyrluslysi og syrgöi Hussein konungur hana mjög aö sögn.
Síðan hefur hann lagt áherzlu á að vera börnum sínum í senn faðir og móöir. Reynir hann aö vera
með þeim öllum stundum, þegar annir vegna þjóðhöfðingjaembættisins kalla hann ekki frá. Hussein
hefur á ýmsan hátt reynzt mætur maður og dugandi. Hann er töluvert frábrugöinn öörum leiðtogum
Araba og gætir þess á ýmsan hátt, aö Vesturlandaáhrif eiga ríkari ítök í honum en flestum hinna.
Myndin, sem hér fylgir meö er tímanna tákn og ekki alls fyrir löngu heföi veriö fráleitt, aö konungur
léti mynda sig á svo óformlegan hátt með börnum sínum. Eru gamlar myndir af konungum með
ríkiserfingjum og öðrum börnum ævinlega mjög stífar og uppstilltar og börnin jafnvel færð í
einkennisbúninga. Eins og sagt hefur veriö frá í fréttum er Hussein nú í þann veginn aö ná sér í
nýja drottningu, sem bæöi er ung og amerísk.
Nautabaninn tekur lífinu meö ró
Hann var dáöur maður á sinni tíö, snillingur í sinni grein og frægt fólk sóttist eftir kynnum viö hann.
Þeirra á meöal voru Ava Gardner og Ernest Hemingway, sem varö mikill vinur hans. Maðurinn heitir
Luis Miguel Dominguin og var um skeiö frægasti nautabani Spánar. Nú er hann liðlega fimmtugur
aö aldri og hættur í hringnum fyrir nokkru. Þess í staö tekur hann lífinu meö ró og kveðst nægilega
ríkur til þess aö „lifa skynsamlega" eins og hann segir. Einn á ferð úti í náttúrunni meö hesti sínum
og byssu er hann glaður og ánægöur. Áöur var hann glaumgosi og sótti dýra skemmtistaði, þar sem
hann komst í kynni við allskonar stjörnur, en nú er þaö liöin tíð. Hann býr á búgaröi í nánd viö Madrid
og lifir reglusömu og róiegu lífi.