Lesbók Morgunblaðsins - 17.09.1978, Side 10
Hinn gullni
meöalvegur þrœddur
ö japönsku
Síöan efnahagsundur
Japana hófst, hafa þaö veriö
ær þeirra og kýr aö taka
myndavélar, bíla og annaö
góss frá hinum gamalgrónu
iönaðarlöndum og framleiöa
eftirlíkingar, sem stundum eru
jafnvel betri — og næstum
alltaf ódýrari. Styrkur Japana
felst ekki í frumlegri hugsun og
nýjabrumi en fremur því aö
bæta þaö, sem þegar hefur
veriö fundiö upp.
i japönskum bílaiönaöi hefur
eindregiö veriö tekiö mið af
amerískum bílum, enda gekk
greiðlega að vinna þann mark-
aö í Bandaríkjunum, sem vel
hefur dugaö síöan. Toyota er
þó ef til vill amerískastur af
þeim japönsku. Sá sem hér um
ræöir, Toyota Cressida, er í
milliflokki hvaö stærö snertir
og næstum í einu og öllu í
meöallagi. Þaö er eins og allir
bílar heimsins hafi veriö
bræddir saman og árangurinn
veröur bíll, sem stendur aö því
er viröist í miöju, þegar dæmiö
hefur veriö gert upp, allt frá
Trabant uppí Cadillac.
Á þessari stundu er ógerlegt
aö tilgreina verðiö nákvæm-
lega, en þeir síðustu sem
seldust fyrir gengisfellingu
voru á 3,6 milljónir (fjögurra
dyra) og 3,8 milljónir tveggja
dyra eins og sá sem hér um
ræðir. Líklega er þaö einnig
nálægt því aö vera meöalverð.
Sem sagt: margir eru betri
og margir eru verri. Sé hinn
gullni meöalvegur þræddur
uppá japönsku, fær maöur
þokkalegan fjölskyldubíl, sem
er óaöfinnanlegur í frágangi
(og betri en í meðallagi aö því
leyti), hefur þokkalega snarpa
vinnslu, fjöörun, sem ekki er
ástæöa 1il aö kvarta yfir,
bærileg sæti, góöa hemla,
sparneytni og útlit, sem margir
BÍLAR
geta fellt sig viö og er lausleg
stæling á Chevrolet Monte
Carlo. Mælaborðið er á-
améríska vísu, en samt ívið
betra en gengur og gerist í
amerískum bílum; bæöi er
niöurrööun góö og helgidagar
sjást ekki í frágangi. Stjórn-
tækin liggja vel viö og vinna
eölilega aö mestu leyti.
Árgerö 1978 þykir mér
betur teiknuð en áöur, en
línurnar eru aö öllu leyti
kunnar úr öörum bílum og ekki
snefill til af frumlegri hugsun
þar í. En Toyota hefur annaö,
sem kannski er betra en
frumlegheit. í bandaríska
blaöinu Consumers Report,
fær Toyota sérlega góöa
einkunn, þegar litið er á
rannsóknir, sem þar í landi
hafa farið fram á endingu bíla
síöastliöin fimm ár. Athugunin
náöi til 18 atriða og öll
reyndust þau annaöhvort í
meöallagi, eöa betri en í
meöallagi, þar sem Tyota Mark
II átti í hlut og Cressida er í
raun sami bíllinn.
Bæöi vegna góörar endingar
og eins hins, aö útlitiö fellur aö
hinum almenna smekk, er
Toyota góöur í endursölu og
einnig þaö er umtalsveröur
kostur.
í akstri er Toyota Cressida
lipur og léttur, þó án þess aö
vera nokkursstaöar framúr-
skarandi. Fjöðrunin er góö, en
það þreytir og spillir
ánægjunni af akstrinum hvaö
stýriö er losaralegt. Hér hafa
höfundar bílsins stælt þaö sem
síst skyldi; nefnilega stýrisein-
kenni amerískra bíla yfirleitt.
Toyota Cressida er sem sé
eins og aörir slíkir; sífellt
flöktandi til og frá, alltaf veröur
aö hafa athyglina vakandi
vegna stýrisins og bíllinn liggur
illa á vegi fyrir bragöiö. Hér er
um aö ræöa tannstangarstýri,
sem er gott aö því leyti, aö
enginn titringur berst uppí
þaö, ellegar högg frá holum.
En þaö er aö öllu samanlögöu
veikasti hlekkurinn í þessum
bíl.
Fimm gírar eru áfram og þaö
er ekki bara hégómi og stælar
heldur hefur það raunverulegt
gildi í þá veru aö spara bensín.
Ekki verður þeim sparnaði þó
við komið nema í þjóðvega-
akstri. Þegar ekiö er á
miðlungs feröahraöa 80—90
km á klst, gengur vélin á 3000
snúningum á mínútu í 4. gír. Þá
er hægt aö skipta í 5. og við
það fellur snúningshraði vélar-
innar niöur i liölega 2000
snúninga og eyöslan fer þá
niöur í 9 lítra á hundraöiö.
Fimmti gírinn er framaf bakk-
gírnum og er skiptingin frekar
stirö, en kemur ekki svo mjög
aö sök, því hann er ekki þaö
oft notaður.
Vélin er fjögurra strokka,
vatnskæld, og 89 DIN-hestöfl
viö 5000 snúninga á mínútu.
Svissneska bílabókin telur
hámarkshraöann 155—165
km á klst, en tölur um
viðbragöshraöa er hvergi aö
finna. Viöbragöiö er þó allgott,
sennilega nálægt 12 sek í
hundraðið. Lengdin er 4,53 m
og breiddin 1,68 m og
óhlaöinn vegur hann 1095 kg.
í tveggja dyra geröinni, sem
hér um ræöir, er farangurs-
kista mikil aö flatarmáli, en
nýtist illa vegna þess hve
grunn hún er. Fáanlegur er
hann sjálfskiptur. Lakkiö var
um árabil mjög slæmt á
Toyotunni, en taliö aö eitthvaö
hafi veriö bætt úr því. Á
öryggissviðinu eru ýmsir Ijósir
punktar: Lagskipt framrúöa
stýrisstöng, sem gengur
saman viö árekstur, sætisbelti
aö aftan jafnt sem framan,
upphituö afturrúöa, varinn
bensíntankur „mjúkur" fram-
og afturendi.
í dönskum auglýsinga-
bæklingi, sem umboöiö útbýt-
ir, stendur aö „smukkere kan
det ikke göres“. Undir þaö er
ég ekki alveg tilbúinn til aö
skrifa, en Toyota Cressida á
vissulega skiliö viöurkenningu
fyrir smekklega hönnun, vand-
aöa smíöi og sparneytni. Allt
bendir og til þess, aö endingin
veröi góö sem fyrr.
Gísli Sigurðsson.