Lesbók Morgunblaðsins - 01.10.1978, Side 9
dborg á sandi ofan viö baðströndina
en til hægri gefur að líta urmul af
»i á Costa del Sol.
25 milljónir manna þyrptust
á sólarstrendur Suður Evr-
ópu í sumar — þar var eins
og mauraþúfa og ekki einu
sinni tjaldstæði að fá og
vandræðin hófust hjá mörg-
um fyrir alvöru, þegar átti að
komast heim.
Ljúfa lífið verður sífellt Ijúfara. Nú er spænska stjórnin búin
að leggja blessun sína á spilavíti á helztu ferðamannastöð-
unum, en alger nekt er hinsvegar bönnuð á baðströndum.
Þessi lög eru brotin eins og önnur og bönd látin duga til
málamynda.
iURS
á feröamannastraumi til Spánar
og var hann þó nokkur fyrir. í
árslok ætla ferðamálayfirvöld
þar í landi aö 36 milljónir
feröamanna hafi gist Spán, —
þaö samsvarar íbúatölu lands-
ins. Spánverjar hafa aöra stefnu
en Islendingar gagnvart erlendu
fjármagni og hafa þeir reynt að
laða erlent fjármagn til að taka
þátt í uppbyggingunni, hótelum
og öðru.
Því haföi lengi verið spáð, að
allt færi í bál og brand og óeirðir
eftir dauða Francos, en sú spá
hefur sem betur fer ekki ræzt.
Stjórnin skilur vel þýðingu
ferðamannastraumsins og hefur
nú ákveðið að gefa leyfi fyrir
fjárhættuspilum á 18 ferða-
mannastöðum. Fjögur spilavíti
hafa þegar verið opnuð.
Leiguflugvéiar hafa komið í
stríðum straumum til Grikk-
lands og Islendingar hafa verið
þar á meðal. Um það bil hálf
önnur milljón ferðamanna gisti
Grikkland í sumar. Þar er boðið
uppá skemmtisiglingar 'milli
nafnkunnra eyja, sem áður voru
lítt byggðar öðrum en fiski-
mönnum. Nú er risin upp þar
einskonar stóriðja: Þjónusta við
erlenda ferðamenn og allir ætla
að græða. Mengunin er nokkur í
hafinu austur þar, en minni en
vestar. Frægir sögustaðir svo
sem Akropolishæðin í Aþenu og
Delfi, sem eitt sinn var kallaður
nafli heimsins, eru innan seil-
ingar og hvergi í nálægum
löndum er sólskinið öruggara en
í Grikklandi.
Hversu lengi standa þessi
ósköp yfir? Þótt hlýtt sé og gott
og bjart við Miðjarðarhafið á
okkar mælikvarða allan septem-
ber og jafnvel út október, telst
vertíðin búin eftir fyrstu helgina
í september. Þá eru menn
einfaldlega bunir að eyða sumar-
leyfisdögunum sínum og geta
ekki verið lengur þótt þeir fegnir
vildu. Ýmsar tilraunir hafa verið
gerðar til þess að lengja ferða-
mannavertíðina á sólarströnd-
um og dreifa þessum mikla
mannfjölda á fleiri mánuði, en
ekki hafa þær borið árangur.
Þegar öllu er á botninn hvolft,
lítur helzt út fyrir að Evrópubú-
ar hafi síður en svo á móti því að
lifa og hrærast innanum mikinn
mannfjölda — einnig í sumar-
leyfinu. Bent hefur verið á til
dæmis, að í franska ferða-
mannabænum Saint-Tropez eru
25 kaffihús á ströndinni, en
aðeins á tveimur þeirra er alltaf
troðfullt. Fólk fer þangað sem
fólk er fyrir í stað þess að
sækjast eftir næði. I skoðana-
könnun, sem franska blaðið Le
Figaro gekkst fyrir, kom fram að
verkamenn þar í landi vildu
heldur meira frí en samsvarandi
hærra kaup. Evrópubúar meta
ákaflega mikils að losna undan
klafanum. Talið er að þróunin
verði sú, að sumarleyfi manna
lengist i iðnaðarlöndunum eftir
þvi sem hagsæld vex. Þarf
raunar ekki að líta langt yfir
skammt: Hér á landi þ.vkir
nánast viðmiðunaratriði í sam-
bandi við lífskjör að geta farið í
sólarlandaferð einu sinni á ári.
Svo það er alls ekki líklegt að
kroppum fari fækkandi á hinum
hvítu ströndum Miðjarðarhafs-
ins á næstunni, né heldur að
linni ýmsum þeim óþægindum
sem verða í mikilli örtröð.
í sumar hófust vandræðin
fyrir alvöru, þegar átti að leggja
í‘ann heim. Flugumferðarstjórar
í Frakklandi áttu i launadeilu og
létu það óspart bitna á saklaus-
um ferðalöngum við Miðjarðar-
hafið. Verulegur hluti af flugum-
ferðinni þaðan liggur yfir
Frakkland og um tíma levfðu
Fransmenn aðeins örfáum flug-
vélum á dag að fljúga yfir
franska stjórnsvæðið. Urmull
ferðalanga, sem búinn var með
sumarleyfið sitt, lenti í algerum
vandræðum. Fólk varð að láta
fyrir berast í flugstöðvarbygg-
ingum og jafnvel úti undir
berum himni, þar sem hægt var
að hola sér niður. Það hefur
vissulega verið dapurlegur endir
á sumarleyfinu og ekkert hægt
að gera annað en bíða uppá von
og óvon.
Þannig var sumarið ‘78. Fleiri
íslendingar fóru til sólarlanda
en nokkru sinni áður og hófu
nýtt landnárri ef svo mætti segja
á Florida og Bahamaeyjum.
Samt var sumarið ‘78 gott á
Islandi og margfalt betra á
Suðurlandi en undanfarin þrjú
snmur. Venjulega er þá vætu-
samt sunnan við okkur og svo
var nú. Sumarið var með því
versta í Bretlandi og í norðan-
verðri Evrópu eins og áður er frá
greint. Líklegt má telja í fram-
haldi af því, að gífurleg eftir-
spurn verði eftir ferðum og
hótelherbergjum á hinum suð-
lægu slóðum að sumri. G.S.-
Byggt á Time. Der Spiegel.
Stern og Observer.
álíka vinnustöðum, vilja helzt af öllu komast á baöströnd í sumarleyfinu, Þar
sem kraðakið er eins og myndin sýnir. Þannig var umhorfs einn dag í ágúst í
sumar á ströndinni milli Saint Tropez og Sainte-Maxime á Frönsku
Riveriunni.
Meöan á hægagangi stóö hjá frönskum flugumferðarstjórum, áttu margir
langa og leiöa bið á flugstöðvunum, pegar heim átti að halda úr
sumarleyfinu. Sumir reyndu að sofa á bekkjum og gólfum og jafnvel úti undir
beru lofti.
©