Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.1979, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 26.05.1979, Blaðsíða 10
Hér á landi hefur þaö lengi veriö siöur aö skrifa dóma um bækur, sem prentaðar hafa verið á hverjum tíma. Þessir dómar, sem skrifaöir hafa veríö í blöö og tímarit eru æöi misjafnir, eftir því hverjir hafa skrifað. Sumir eru sanngjarnir og mildir í dómum, en aðrir dæma bækur ofan fyrir allar hellur meö miklu orðbragöi. Ung skáld og rithöf- undar hafa oft fengiö aö kenna á höröum dómum um byrjendaverk sín, þegar þeir þurfa á vinsamlegum leiö- beiningum aö halda. Hversvegna er veriö aö troða niður hneigð til skáld- skapar hjá ungu fóllki, sem er af guöi gefin? Þeir sem skrifa dóma um bækur nú eru fjöldamargir, heil stétt, sem er einn þráöur í því, sem kallað er kerfi. Þessi stétt mun innan tíöar veröa prýstihóp- ur eins og þegar lægö myndast yfir Reykjanesi. Þessi samtök gætu orðið aö gagni, ekki aöeins varöandi launa- kröfur, heldur gætu þau sett reglur um, hversu mikinn ótuktarskap, mætti brúka í dómum um bækur A fyrsta og öörum tug þessarar aldar voru fá blöö og tímarit gefin út. Áriö 1907 byrjuðu Nýjar-Kvöldvökur aö koma út á Akureyri, mánaöarrit fyrir sögur kvæöi bókmenntir og fleira. í Kvöldvökunum birtust margir ritdómar um bækur. Flesta þeirra skrifaöi merk- isklerkurinn séra Jónas á Hrafnagili. Hann skrifaöi meö mikilli virðingu um bækur skáldbræöra sinna, Einars Kvarans og Jóns Trausta, en fann þó að sumu einkum hjá Jóni Trausta. Klerkur þessi skrifaöi líka um Ijóöa- bækur eftir ýmsa höfunda sem honum þótti ekki mikill skáldskapur. Ekki ráölagöi hann þessum mönnum aö hætta Ijóðagerð, en áminnti þá í föðurlegum tón, aö vanda sig og gera betur. Þegar öldin var bálf, haföi bókadóm- urum fjölgaö mikiö og er síöan hefur þeim enn fjölgað og eru misgóöir eins og áður er bent á. Kristján frá Djúpalæk og Andrés Kristjánsson eru sanngjarnir og mildir í dómum, en þaö veröur ekki sagt um alla. Ólafur Jónsson skrifaöi í Alþýöubl- aðiö slæma dóma um bækur, en sú áþján hefur nú liöiö hja^ Alþýöublaöiö hefur minnkaö og Ólafur farinn eitt- hvaö annaö. Erlendur Jónsson þótti mér slæmur áöur fyrr, en hann hefur mikiö batnaö og „batnandi manni er bezt aö lifa". Ljótasti ritdómur, sem ég hef lesiö er eftir Guömund G. Hagalín um Sæluviku eftir Indriða G. Þorsteinsson, sem kom út 1951. Sæluvika er fyrsta bók Indriöa, smásögur. Hagalín líkir höfundinum viö svín, sem veltir sér upp úr skólpræsi. Aö vísu er sagan Selkolla Ijót. Hún er saga af draug, aö öörum þræöi, en einhver var aö velta því fyrir sér, hvort þaö væri ekki bezta sagan í bókinni. í Sæluviku er líka verölauna- sagan Blástör, sem mér finnst vera meö beztu sögum Indriöa og mætti Hagalín vel við una að hafa skrifað þá sögu. Svo liðu fjögur ár og þá kom næsta bók Indriöa „Sjötíu og níu af stööinni". Um þá bók skrifaði Hagalín mikiö lof. Þá hugsaði ég: Hvernig getur maöurinn skrifaö svo mikiö lof á eftir hinum fyrri ritdómi um bók eftir sama höfund. Guðmundur Hagalín var snöggur í geöi á fyrri tíö. Ég held aö hann hafi verið reiöur þegar hann skrifaöi ritdóminn Ijóta. Menn mega ekki skrifa dóma í þungu skapi. Ekki þarf aö kynna Helga Sæmundsson. Hann er alinn upp á brimströnd fyrir austan fjall. Þar rís brimaldan stundum hátt og hefur sett svip sinn á sálarfley Helga, því hann er stórkostlegur í frásögnum. Skagfirzk Ijóö komu út áriö 1957. í þessari bók eru kvæði og stökur eftir 68 höfunda. Helgi Sæmundsson skrif- aöi dóm um bókina, sem er stórkost- legur og ætla ég aö rlfja upp nokkur atriöi úr honum „Feöginin Emma Fr. Hansen og Friörik Hansen eru mér hinsvegar aufúsugestir, og sama er aö segja um Helga Konráösson og Pétur Hannes- son. Þau yrkja öll af hjartans þörf og gera lesandanum kynningarstundina bærilega. Vísurnar í bókinni valda sárustu vonbrigöum, ef stökur þriggja manna eru undanskildar. Þar á ég viö Harald Hjálmarsson, ísleif Gíslason og Stefán Stefánsson. Þeir hljóta, aö dæmast í hópi slyngra hagyröinga, þótt mistækir séu. Ennfremur kemur staka eftir Guölaugu Guönadóttur og önnur eftir Sigurö J. Gíslason skapgóðum lesanda eftirminnilega á óvart. Þetta mun samt lítil uppskera af jafn stórum akri. Raunar má vel vera aö systkinin Hallgrímur Jónasson og Ólína Jónas- dóttir njóti gamallar frægöar hjá sum- um, en vísur þeirra í bókinni sæta litlum tíöindum. Skagfirðingar hafa talið íslendingum trú um einstaka hagmælsku fólksins par noröur frá. Viö hvaö er þá átt? Kannski eru hagyrðingarnir í Skagafirði fljótir aö kasta fram stökum — talandi skáld? En góðu vísurnar þeirra hafa lent utan viö þessa bók“. Meistari Helgi nefnir nöfn eilefu höfunda í Skagfirzkum Ijóöum og eru sumir þeirra mistækir eöa sæta litlum tíöindum. Ljóö 57 höfunda eru ekki umtalsverö og gagnslaus, aö því er virðist. Svo er þessi dæmalausa staö- hæfing aö Skagfiröingar hafi taliö íslendingum trú um. — Voru það allir Skagfiröingar, eöa hverjir þá, sem gáfu íslendingum trúna? Ekki veit ég hvort Helgi Sæmunds- son er „endurskoðunarsinni“, en ætla má aö hann hafi komist til nokkurs þroska síöan hann var ritstjóri Alþýðu- blaösins fyrir tuttugu árum og þess- vegna gæti hann endurskoðaö dóminn um Skagfirzk Ijóö. Geri Helgi þaö vil ég ráöleggja honum aö lesa aftur, Ijóö eftir Albert Sölvason sjómann og smið á Sauðárkróki og Andrés Björnsson útvarpsstjóra. Á Ijóöagerö þessara höfunda eru enginn vettlingatök. Þegar Helgi Sæmundsson er búinn að endurskoöa og milda dóminn um Skagfirzk Ijóö kemst hann í samræmi viö umhverfi sitt á fyrri tíö. Þá hefur brimaldan falliö á fjörusand. Seint á árinu 1978 kom út bók eftir Guömund Halldórsson frá Bergsstöö- um „Þar sem bændurnir brugga í friöi“. Þar segir frá því þegar áfengi var bruggaö í sveitum, selt og drukkiö og leitun lögreglumanna að bruggi. Þessi bók er skáldsaga fræöandi um þetta tímabil. Ég sem þetta rita er kominn þaö til aldurs, aö ég man vel bruggöld- ina, sem var frá 1930 og fram undir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.