Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.1979, Side 2

Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.1979, Side 2
 áTrjf^p.rrx^ wrrrrpT'TH rrrrrrrr rrrrrrrr t teíilftWWgtíffiiTfBcrn 'ít' ?TTtt^ rttrrfr. l:"d' í ’Ttn r i-v' TIi? 1 1 r = - • % = i - imr-qmi'Brmwiiz C . "‘-Ú Kisastór veggskreyting eftir Richard Haas á Architectural Center í Boston. Steinsteypu- og vélaöldin hefur búið hundruðum milljóna manna umhverfi, sem sýnist beinlínis mannfjandsamlegt. Dæmi um það má finna um allan heim, en mest í stórborgunum. Jafnvel hér í fámenn- inu og landrýminu, hafa verið byggð svo ljót íbúðahverfi, að þau hafa komizt í kennslubækur og sem dæmi um það sem helzt ætti að forðast. Hér á landi er erfitt að koma við einhverri upplífgun eða skreyting- um, sem byggist á lit í formi málningar, því rigningin er búin að stórskadda allt slíkt eftir svo sem tvö ár, enda endist máining á húsum að jafnaði ekki mikið lengur. Utan- hússskreytingar hér verða að byggj- ast á notkun varanlegra efna, ef ekki á að tjalda til einnar nætur og slík efni, mósaík, grjót eða málmar, — eru seinunnin og gera verkin dýr. Máiaðar skreytingar geta enzt vel og lengi í þurrari og heitari löndum. Uppá síðkastið hafa Banda- ríkjamenn átt frumkvæði í þessum efnum og þar í landi getur að líta dæmi um frábærar nútíma skreyt- ingar, þar sem hugmyndaflug og verktækni haldast í hendur. Þetta er einkum gert ,þar sem verða stórar og órofnar húshliðar líkt og gaflinn á Háskólabíói til dæmis. Þessar bandarísku skreytingar eru beint afkvæmi af skiltagerðinni, sem sjá má með fram vegum og víðar og mörgum þykir nóg um, enda eru það beinar auglýsingar. Skiltagerðin var móðir popplistarinnar á sínum tíma og sumir af frumkvöðlum hennar Veggskreyting í Columbus í Indiana. Hér oplist. skýrt fram áhrif DJARFAR OG NVSTÁRLEGAR SKREYTINGAR eins og Larry Rivers til dæmis, voru áður skiltamálarar. Nútíma veggskreytingar í Bandríkjunum eru í senn skyldar risaskiltunum og popplistinni eins og meðfylgjandi dæmi ættu að sýna. Enda þótt við búm við einhvern versta arkitektúr í heimi, eru ís- lenzkir arkitektar mjög alvarlegir listamenn og mundi sízt af öllu koma til hugar að láta útbía hugverk sín með skreytingum myndlistarmanna. Bandarískir kollegar þeirra eru víst ekki alveg svona alvarlega þenkj- andi, ef marka má af Architectural Center í Boston, þar sem Richard Haas vann risastóra skreytingu. (sjá mynd) Þessi skreyting sker ekki í augu í þá veru, að þar sé hver liturinn um annan þveran. Hér er allt í grátónum, en vekur geysiiega athygli aungvu að síður og sýnist vel við hæfi á stofnun, sem kennir sig við arkitektúr. Aðrir hafa beinlínis lagt áherzlu á áhrif litanna og þar eru auðsæust áhrifin frá popplist og oplist. G»S. Hraðbraut var lögð yflr opið svæði í Dan Diego og þótti það ntörgum miður, en staðarlista- menn tóku sig til og skreyttu steinsteypusúlurnar, sem bera veginn uppi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.