Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.1979, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.1979, Page 7
GLÆSILEGUR ÁRANGUR og tilboð uppá lífstíð frá Þjóðbanka Danmerku: Um Stefán B. Stefánsson gullsmið, sem lokið hefur ff\ i Danmörku með glæsibrag og hlotið eftirsótt verðlaui Spurst hefur út hlngaö, aö ungur íslenzkur gullsmiöur hafi staöiö sig meö mikilli prýöi í framhaldsnámi í Kaup- mannahöfn og vakiö athygli fyrir góöa hæfileika á sínu sviöi. Sá sem hér um ræöir heitir Stefán B. Stefánsson og er hann sonur hjónanna Stefáns Stefáns- sonar rennismíöameistara, sem einnig kennir viö lönskólann, og Bjargar Boga- dóttur. Hún er frá Akureyri, en Stefán eldri er ættaöur frá Neskaupstaö. Þau hafa búiö í Reykjavík og Stefán sonur þeirra fæddist 1955 og ólst upp á Seltjarnarnesi. Hann nam gullsmíöi hjá Sigmari Ó. Maríussyni og lauk sveinsprófi voriö 1977. Hélt hann aö vörmu spori utan til Kaupmannahafnar og innritaöist í framhaldsnám í „Designskole for guld- og sölvformgivning“ í Valby. Venjulega er þessi stofnun þó kölluö Gullsmíöahá- skólinn , — þar komast þeir aö sem lokið hafa venjulegu gullsmíöanámi. Þessi skóli hefur orö á sér fyrir aö vera sérstæöur og eru hliöstæöur vandfundn- ar, nema ef vera kynni skóli af sama tagi í Hollandi og er hann þó ööruvísi. Má ugglaust rekja til skólans í Valby, hverjum árangri danskir listhönnuöir í gull- og silfursmíöi hafa náö; þar hafa Danir hlotiö alþjóölega viöurkenningu og þykja smíö- isgripir eftir suma danska hönnuöi mjög eftirsóknarverðir. Ekki dugar þó aö hafa sveinspróf frá íslandi uppá vasann. Væntanlegir nem- endur veröa aö þreyta inntökupróf, — og þaö er aöeins gert annaö hvert ár. Þar viö bætist aö aöeins komast 12 í gegnum sigtiö í hvert sinn. Sjálft námiö tekur síöan tvö ár og er aö mestu leyti verklegt. Því má skipta í fjóra aöalþætti: 1) Almen formlære 2) Faglig form og teknik 3) Faglig ökonomi og jura 4) Samfunds- og kulturforhold. Fyrir fáum áratugum heföi mátt kalia sjálfgefiö, aö ekki þyrfti aö þýöa ámóta orö úr dönsku. En meö bættri menntun og stúdent á hverju heimili er nú svo komiö, aö almennt skilur fólk ekki dönsku og því er vissara aö taka fram, aö fyrsti liðurinn er almenn formfræöi, síöan tækni og form í sambandi viö námsgrein- ina, þá hagfræðileg og lagaleg hliö greinarinnar og loks um samfélag og menningu. Fyrsti liöurinn spannar ýmsar ólíkar greinar, sem tengdar eru gull- og silfur- smíöi á einn eöa annan hátt. Þar má nefna emaleringu, hömrun, eöalsteina- festingar, leturgröft, módeleringu, steina- slípun, málmsteypu, þrykk, efnisfræöi, málmfræöi, eöalsteinafræöi, efnafræöi, galvanótækni, málmlitun, mælingár og vinnuteikningar. Nemendur hanna ýmiskonar muni úr gulli og silfri, svo sem boröbúnaö og skartgripi. Þeir eru bæöi látnir vinna ákvöröuö og sjálfstæö verkefni undir handleiösiu kennara meö sérþekkingu í ymsum efnum. Undir þriöja liönum, sem fjallar um faglega hagfræöi og lögfræöi, er reifaö, hvernig hefja skuli rekstur og hvernig reka skuli verkstæöi eöa fyrirtæki. Nám undir fjóröa liönum felur m.a. í sér, aö heimsótt eru söfn og verkstæði, fjallaö um lista- og menningarsögu. Þannig er rammi námsins í stórum dráttum. En auk þessa vinna nemendur svo aö lokaverk- efni seinni part síöari vetrar eins og síöar veröur vikiö að. í janúar, febrúar og mars eru haldin sérstök námskeið á vegum skólans og þar gefst gullsmiöum almennt kostur á aö auka þekkingu sína. Þessi námskeiö standa í tvær vikur í senn og eru í nokkrum „þrepum“ svo sami nemandi getur komiö ár eftir ár og haldiö áfram þar sem frá var horfiö. Veröur þaö ugglaust til þess aö lyfta gullsmiöakúnst- inni almennt á hærra stig, en kemur ekki námi Stefáns viö og verður ekki fariö nánar út í þaö hér. í stuttu samtali sem Hulda Guömunds- dótti við Stefán í Khöfn, kom fram aö honum fannst timinn hafa verið fljótur aö líöa; allt í einu rann upp sú stund, aö skólastjórinn tilkynnti, aö nú væri loka- verkefniö í nánd. Þá stóö Stefán frammi fyrir því aö velja sér verkefni, hugsa þöö og teikna, — og koma því síöan í endanlegan búning. Viö þetta átak var starf skólans í hálft annað ár miðaö. f þetta sinn voru þaö aöeinsfimm nemend- ur, sem bjuggu sig undir lokaverkefni og öll voru þau sitt frá hverju landinu. Þau unnu hvert á sinn máta glæsilega gripi, sem einhverntíma heföu ugglaust veriö kallaðir konungsgersemi. Til dæmis um þaö má nefna, aö Linnes Blakens gull- smiöur frá Svíþjóð smíðaði sjö belti og beltisspennur úr silfri og haföi segulstál í læsingum, sem mun vera nýjung. Hún notaöi táknin jöröu, sól. vatn og vind á mismunandi hátt sem skreytingu á beltis- sylgjurnar. David A. Calder silfursmiður frá Eng- landi smíöaöi skrifborðssett úr silfri og palisander. Þar í er bakki fyrir pappír, standur fyrir skriffæri, askja undir smá- dót og kassi yfir reiknitölvu. Lotte Seir frá Danmörku smíöaöi höfuödjásn úr silfri, skreytt perlum og túrskissteinum eins og tíökaöist aö nota hér fyrr meir. Hún smíöaöi einnig háls- men úr gulli og silfri, skreytt samskonar steinum og höfuödjásniö; þar aö auki smíöaöi hún silfurbelti. Okkar maöur í gullsmíöaháskólanum, Stefán B. Stefánsson, tók sér hins vegar fyrir hendur aö smíöa ílát undir vínföng, nánar tiltekið sherry-sett, sem svo er nefnt, eöa samstæöu, og eru í henni bakki, átta glös og vínkanna. Hún er blásin í kristal eftir vinnulýsingu Stefáns hjá Holmegárds Glaværk. Bæöi bakkinn, glösin og tappinn í flöskunni eru hinsveg- ar úr silfri, en skreytt meö dökkbláum náttúrusteinum, sem heita Lapis Lasali. Aö innan er húöaö meö gulli. Eins og sjá má af þessari ófullkomnu lýsingu, er hér um mikið gersemi aö ræöa og verður aö telja þessa samstæöu fullkomlega í anda þeirra hluta, sem Danir hafa orðið víö- frægir fyrir og byggja á einfaldleik framar öðru. Þetta er ákaflega nútímalegt verk, fjarri því aö vera rómantískt samkvæmt þeim skilningi, sem viö höfum venjulega lagt í þaö orö, en sýnir tilfinningu fyrir efninu og samspili ólíkra fagurefna. Nemendum úr Gullsmíöaháskólanum er ásamt fleira listiönarfólki boöiö ár hvert að senda griþi til mats hjá nefnd, sem síðan veitir verölaun úr sjóöi og heitir sá „Kunsthándværkerprisen fra 1879“. Sem sagt; verölaunin voru nú veitt í hundraðasta sinn. Sú verölaunaafhend- ing fór fram í sjálfu ráöhúsi Kaupmanna- hafnar 29. maí sl., að Margréti drottningu viöstaddri svo og fleira framáfólki. Þarna voru veittir sjö heiöurspeningar úr silfri og sjö úr bronsi. Okkar maöur í Gullsmíöaháskólanum, Stefán B. Stefánsson, hlaut silfur, einn manna úr þeim skóla, en aörir silfurhafar voru úr Skolen for brugskunst. Annar íslendingur komst raunar á pall; þaö var Sigrún Einarsdóttir úr Skolen for brugs- kunst og hefur hún lokiö ná.ni í glergerö- arlist, „glasformgivning" og fleiri listgrein- um. Hún hlaut bronsverölaun. En sjálfir verðlaunagripirnir voru síöan til sýnis á þeim kunna og glæsilega sýningarstaö viö Vesterbrogade, Den permanente, dagana 20.—30. júní. Áöur höföu verðlaunamunir Stefáns raunar veriö á sýningu, sem haldin var í Gallery smykkeform í Lynby síðla maímánaöar og vakiö veröskuldaöa athygli. Svo sem flestir íslenzkir námsmenn, haföi Stefán hugsaö sér aö hverfa heim til íslands aö námi loknu og flytja dýrmæta kunnáttu heim með sér. Þaö er þó kannski ekki beinlínis af einskærri um- hyggju fyrir fósturjöröinni, þegar -náms- menn stefna aö búsetu á ísiandi, heldur geta aörir þættir komiö tii skjalanna og haft áhrif; þættir eins og fjölskylda, atvinnuleysi í útlandinu og fleira. En stundum gerist þaö, að íslendingur, sem búinn er aö Ijúka námi sínu erlendis, fær óvænt tilboö, sem setur hann í nokkurn vanda. Einmitt þaö hefur átt sér staö nú; okkar maöur úr Gullsmíöaháskólanum hefur sumsé tilboö uppá vasann og þaö ekki af verri endanum. Sökum augsýni- legra listrænna hæfileika og færni, hefur Þjóöbanki Danmerkur boöiö Stefáni lífstíöarstarfs sem „gravör“ fyrir bank- ann. Starfiö er fólgiö í gerö móta fyrir seöla- og geningaútgáfu bankans og kjörin eru hin álitlegustu. Skiljanlega er freistandi aö taka slíku boöi, en auk þess hefur Stefáni verið boðin kennarastaða viö Gullsmíöaháskólann og fagskólann á sama staö. Ekki liggur fyrir, hvaö Stefán velur, en svo gæti fariö, aö næstu áratugina veröi danskir þeningar hannaö- ir af íslenzkum listamanni, — eöa hluti þeirra aö minnsta kosti. Viö segjum aö sjálfsögöu íslenzkum listamanni, hvaö sem Stefán gerir, því viö lítum alltaf á landann sem áframhaldandi íslending, hvar sem hann ílendist. •Þaö sem hér hefur veriö sagt, er aö næstum öllu leyti byggt á skrifuöum punktum, sem blaöiö fékk frá Huldu Guömundsdóttur í Kaupmannahöfn, en hún hitti Stefán aö máli á þessum merku tímamótum í lífi hans. Hulda segir í lok pistilsins: „Ég lít þannig á, aö hvort sem Stefán sneri til íslands til frambúöardvalar til aö ástunda listræna iöju meöal landa sinna, eöa hann ynni sem íslenzkur listrænn hönnuöur á erlendri grund, þá ynni hann landi sínu gagn í báöum tilfellum. Og þrátt fyrir glæsileg tilboð, lét Stefán þau orö falla í mín eyru, aö ekki væri síöur veröugt verkefni aö vinna aö listrænni sköpun á þessu sviöi heima á íslandi". G.S.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.