Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.1979, Qupperneq 9

Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.1979, Qupperneq 9
 62HX LÆKJARÆTT Myndaröðin vinstra megin, talið að ofan: Kristinn Hallsson leiðir almennan söng í Gunnarsholti, en nokkrir liðtækir sön«- menn mynduðu kjarna næst Kristni. Næst- efst: Ingvar Vilhjálmsson útgerðarmaður heilsar aldursforseta ættarmótsins, Hafliða Guðmundssyni í Búð í Þykkvabæ, sem er 93 ára. Lengst til vinstri er kynnir mótsins, Páll Lýðsson í Litlu Sandvfk. Næstneðst:- Ingóifur Jónsson alþingismaður flytur ávarp. Neðst: Gengið um milli trjánna í Gunnarsholti. Hér eru þau fyrir miðju Sigríður Erlendsdóttir og Hjalti Geir Kristjánsson húsgagnaarkitekt. Myndirnar hægra megin, taiið að ofan: Guðrún P. Helgadóttir flytur kveðju kven- þjóðarinnar. I miðju: Það cr næstum ótrúlegt að þcssi mynd skuli tekin á (slandi, en hún er iýsandi fyrir blíðviðrið, sem þarna var og trjágróðurinn f Gunnarsholti. Neðst: í kirkjugarðinum á Keldum, þar sem forfaðir og formóðir ættarinnar voru lögð til hinztu hvflu 1756 og 1757, hjónin Bjarni Halldórsson og Guörfður Eyjólfsdóttir á Víkingslæk. Hægra megin við miðju stendur Ólafur Ilalldórsson handritafræð- ingur og aftan við hann er Sigrfður Thordarsen úr Hafnarfirði. Ilér að neðan: Skyldi Guðríður á Víkings- læk hafa vcrið lík þessum afkomanda sfnum, Helgu Laufeyju Finnbogadóttur úr Hafnarfirði? og í Gunnarsholti / vor var minnst hér í Lesbók hjónanna á Víkings- læk á Rangárvöllum, Bjarna Halldórssonar og Guðríðar Eyjólfsdóttur, sem hófu búskap á Víkingslæk á Rangárvöllum 1709. Áfok og upp- blástur eyddu þessari jörð eins og mörgum fleirum á Rangárvöllum og er nú ekkert eftir af Víkings- lækjarbæ utan rústir í blásnu hrauni. En út af þeim Bjarna og Guðríði hefur komið mikill ættbogi, sem löngum er kenndur við Víkingslæk. Hafa niðjar þeirra sýnt þá ræktarsemi að koma saman til þess að minnast uppruna síns og myndirnar sem hér má sjá, eru teknar á líku niðjamóti, sem fram fór 24. júní sl.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.