Lesbók Morgunblaðsins - 11.08.1979, Page 14
Bætt heilsa
betra líf
Sumir
eru
jafnari
en aðrir
i 8Ó8ÍatistaparadÍ8um eíga allir að vera
jafnir (pað er par sem fólkiö rœður).
Flokksbroddar og valdamenn eru þó
dálítið jafnari en almúginn og jafnastur
allra í Sovótríkjunum er sjálfur Brésnef.
Hvort sem paö er nú vegna pess aö
Rússum er sjálfum fyrirmunaö aö búa til
almennilegar blikkbeljur, pá hefur fé-
lagi Brésnef tekiö sérstöku ástfóstri viö
pessi kapítalísku samgöngutól, — ekki
pó til pess aö komast leiöar sinnar,
heldur til pess aö safna peim eins og
auðkýfingar. Nú reyna aliir aö gefa
Brésnef bíl og má hér til hœgri sjá Tító
skenkja honum eitt stykki Zastava, sem
á aö vera paö bezta frá Júgóslavíu. Tito
brosir breitt, en Brésnef viröist ekki
eins hrifinn. Aö neöan er svo hiö
Rolls-Royce Silver Shadow
Matra-Simca Bagheera
Nokkir
kjörgripir
úr bíla-
safni
Brésnefs
Cadillac Fleetwood Eldorado Coupé
Lincoht Continental limousine
Chevrolet Monte Carlo Matra Rancho
Mercedes-Benz 450 SLC Cottpc Citroén-Maserati SM
Alkóhól-
ismi í
móður-
kviði
Eftir
dr. Michael Ilalberstam.
Menn hefur grunað þaö allt frá því í
fornöld, þótt ekki hafi veriö færöar á
það sönnur fyrr en nýlega, aö áfengi
gæti skaddað fóstur í móðurlífi og
gæti barn fæöst andvana ellegar
vanskapað ef móðirin drykki vín um
meðgöngutímann, þótt ekki væri
nema lítið.
í Karþagó og Spörtu til forna var
þetta taliö svo víst, aö brúðhjónum
var stranglega bannaö að drekka vín
á brúökaupsnóttina svo að þau gætu
ekki barn ölvuð. Þóttust andstæðing-
ar barngetnaðar undir áhrifum
áfengis hafa næg dæmi staðfest máli
sínu til stuönings, t.a.m. dæmið af
rómverska goöinu Vúlkan, eldsmiö
þeirra rómargoöa, hann var getinn í
ölaeði og fæddist enda bæklaður.
Á árunum 1880—1890 tóku athug-
ulir læknar eftir því og sömdu um það
skýrslu, að þaö virtist nokkurn veginn
reglulegt að óvenjumargir fávitar
fæddust hér um bil níu mánuðum
eftir vínuppskeruhátíðir og jafnframt
fæddust þá færri eölileg börn en ella.
En þessi athugun, og fleiri áþekkar
sem til eru frá síðustu öld, er ekki
hlutlæg, heldur huglæg, og stenzt
ekki þær vísindalegar rannsóknar-
kröfur sem geröar eru nú á dögum.
Auk þess gætir ósjaldan í gömlum
athugunum skoöana og fordóma
sprottinna af trúar- og bindindishug-
sjónum og eru þau yfirleitt ekki til
þess fallin að gera athuganirnar
trúveröugri en ella. Það var sem sé
oft ætlunin aö sýna enn einu sinni
fram á það hvert eitur áfengiö væri,
— drykkja foreldranna kæmi niöur á
börnunum. (Þaö hefur enn ekki veriö
sýnt fram á þaö aö fóstur bíði tjón af
drykkju föður).
Um aldamótin síðustu voru menn
búnir að komast að því aö áfengi sem
kona drekkur um meögöngutímann
berst gegnum legkökuna og inn í
fóstrið í svipuöu hlutfalli og þaö
dreifist um líkama móöurinnar. Hins
vegar var eftir sem áður ósannað aö
þaö skaðaði fóstriö. Það var ekki fyrr
en áriö 1973 aö vísindamenn komust
að raun um það svo óyggjandi var,
að áfengi gat valdið ákveönum sjúk-
legum einkennum í fóstri í móðurlífi,
„alkóhólisma í móðurlífi". Tveir vís-
indamenn við læknadeild
Washingtonháskóla höföu rannsakaö
41 barn, allt börn mæöra sem töldust
ólæknandi alkóhólistar og höföu
enda drukkið stíft um meögöngutím-
ann, og reyndust börn þessi öll
vansköpuö að einhverju leyti. Fæð-