Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1979, Qupperneq 2
Mengun og umhverfísvernd
eru meðal vígoröa nútímans,
hvort tveggja alvörumál en því
miður gróflega misnotað af
lýðskrumurum og pólitískum
spekúlöntum. Hérlendis er
mengun frá iðnaði hreint smá-
ræði hjá þeirri hrikalegu gróður-
eyðingu sem ár og síð herjar
fyrir augum okkar. Ef landiö
heföi verið jafngróðursnautt á
söguöld eins og það er nú hefði
alþing aldrei verið háð — þeir
sem heima áttu fyrir norðan og
austan hefðu ekki komist til
þings vegna hagleysis á hálend-
inu. Og meir en svo; líkast til
hefði landið aldrei byggst efþað
hefði ekki boðiö upp á betri
kosti en það býður upp á nú.
Þegar fyrstu landnámsmennirn-
ir komu hingað var landið viði
vaxið milli fjalls og fjöru —
ástæðulaust að rengja þá stað-
hæfingu Ara fróða. En svo var
ekki lengur þegar Ari skrifaði
íslendingabók sína tveim og
hálfri öld síöar; svo viökvæmur
reyndist gróðurinn, svo
snemma hófst landeyöingin.
Enn eru aö eyðast þær fáu
skógarleifar sem eftir standa.
Sá sem ekki trúir ætti að skoða
sig um hvort heldur er uppi í
Borgarfiröi eða austur í Árnes-
sýslu. í báðum þessum héruð-
um hefur risið urmull sumar-
búða, mest í eigu félagasam-
taka i höfuðborginni. Lofsvert er
það framtak og skyldu margir
vegar örlar ekki á smæstu
sprotum hvaö þá meir utan
Merkurinnar. Hvers vegna?
Vegna þess aö Mörkin er girt.
Utan hennar er beitiland. Ég hef
aðeins einu sinni staðið sauð-
kind að því að gæða sér á birki.
Eigi að síður þykir mér allt
benda til aö hún sé skaðvaldur-
inn. Sé svo verða skógræktar-
menn og sauðfjárvinir að halda
sér við eitt og sama heilræðið:
aö hvor hafi sitt; að skógrækt-
armenn og sumarhúsafólk haldi
sínu kjarri en sauöfjárbændur
sínu fé. Girðingar eru það eina
sem dugir. Séu kjarrleifar girtar
— sama hvað þær eru orðnar
rytjulegar — þarf ekki að hafa
meiri áhyggjur af því, náttúran
sér um endurlífgunina. Fyrr en
varir öðlast skógurinn sitt fyrra
lífsmagn. En hafi maður nokk-
urn metnað fyrir landiö má
auðvitað hjálpa til, gera betur.
Birkiö varð að lifa hér af milljón
ára ísöld og ber þess merki,
verður aldrei hátt. Vilji maður fá
hávaxnari skóg veröur aö planta
hér öðrum trjátegundum. Og
það hefur greinilega sýnt sig að
margar erlendar trjátegundir
dafna hér jafn vel og birkið en
verða þó miklu hávaxnari. Ég
nefni sérstaklega sitkagreni
sem þýtur hér upp úr öllu valdi
og veitir betra skjól en flest tré
önnur. Auðveldara er að koma
upp slíkum trjám þar sem fyrir
er kjarr — til að skýla nýgræð-
ingnum. En nagað og hálfdautt
birkikjarr er ekkert augnayndi,
þvert á móti, það er hörmung.
Einhver sagði ekki alls fyrir
löngu aö Reykjavík væri orðin
stærsti skógur landsins. Fram-
an af öldinni var því haldið fram
að tró þrifust ekki hér um slóðir.
Sú ótrú blasir við augum þar
sem gengið er um elstu hverfi
Reykjavíkur. Þeir, sem á annaö
borð lögðu íþað aö planta trjám
við hús sín í gamla daga, völdu
þeim gjarnan stað sunnan undir
húsunum og þá í svo sem
fímmtíu sentimetra fjarlægö frá
veggl Þar sem þessi tré standa
enn ná þau víða upp fyrir burstir
og eru hvorki til prýði né
ánægju. En eitt er víst: þeir sem
upphaflega gróðursettu þau
hafa ekki séð þau fyrir sér í
núverandi fyrirferð, öðru nær.
Trjáræktaráhugi íslendinga
hefur gengið í bylgjum. Hann
vaknaði upp úr aldamótunum
síöustu, dofnaði milli heims-
styrjaldanna tveggja, lifnaöi aft-
ur viö upp úr ’44 — ísland hins
unga lýðveldis skyldi klæða
nýjum skógi — dofnaöi svo
aftur og fékk sinn versta skell í
páskahretinu fræga ’63 sem
lagöi að velli flestar Alaskaasp-
irnar hér suðvestanlands en
þær voru þá orðnar aðalstolt
skógræktarmanna. Bráðum
byrjar nýr áratugur. Ég mæli um
og legg á að hann verði trjá-
ræktartíminn mikli.
Erlendur Jónsson
Skjól
eða
ber-
angur
njóta. Athyglisvert er aö þess-
um sumarbústöðum hefur svo
til alls staöar verið valinn staður
þar sem nokkurt skógarkjarr er
fyrir. En ánægjan af því verður
blandin þegar í Ijós kemur að
þaö er víða að veslast upp
vegna ofbeitar og átroðnings.
Hver er sökudólgurinn? Um það
hefur löngum verið deilt. Skóg-
ræktarmenn hafa bent á sauð-
kindina sem andstæðing númer
eitt. Sauðfjárvinir hafa þar á
móti varið skjólstæöing sinn,
segja að kindurnar beri á landið
og gefi þannig jafnmikið og þær
taki. Kýr og hestar hafa ekki,
svo ég muni, verið ásökuö um
að níðast á skógunum. Fáeinir
málsmetandi menn hafa haldiö
því fram að loftslag sé hér alltof
kalt til að skógrækt svari hér
kostnaði yfirhöfuð, trjárækt
verði hér aldrei annað en kák og
tímaeyðsla.
Nú er liöiö eitt kaldasta sumar
aldarinnar. Samt blasir við hér í
Reykjavík og nágrenni — og
kannski víðar um land — að tré
hafa dafnað vel og bætt við hæð
síðan jafnmiklu sem endranær.
Tré setja æ meiri svip á þéttbýli.
í Heiðmörk hefur víða verið
plantað barrskógi sem er að ná
góðum þroska. Þar hafa hundr-
uð manna lagt hönd að verki. Þó
hafa þeir ekki haft við sjálfri
náttúrunni. Birkið breiðist svo
ört út að undrum sætir. Hins
©