Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1979, Qupperneq 4
Aö verða læknir af guðsnáð er að
öllum líkindum eitthvað, sem ekki
verður lært, hvorki af bókum né
öðruvísi. Kunnátta í fræöigreininni
og vitneskja um allt það nýjasta á
því sviöi, hrekkur ekki til, ef þann
rétta neista vantar. Það minnir á
orð Páls postula um kærleikann; til
einskis er barizt, sé hann ekki með.
Læknar hafa — kannski í ein-
hverskonar nauðvörn — gripið til
þess að sveipa sig dularhjúpi og
oröiö óaðgengilegir. Það á ekki
einungis viö, þegar blaðamenn eru
annars vegar, en einnig gagnvart
fólki almennt. Almennt umkvörtun-
arefni sjúklinga er, að erfitt sé að
komast í samband við lækna, eða
„fá eitthvað uppúr þeim“ eins og
það er kallað. Sumir læknar aðhyll-
ast þá stefnu, aö sjúklingi beri að
segja allt af létta um sjúkdóm hans,
— en til eru þeir sem ennþá hallast
aö því aö segja sem minnst. Bæði
þetta, heilbrigöisþjónusta almennt
og ýmislegt annað, sem snertir
dagleg vandamál læknis, bar á
góma þegar ég ræddi við Gauta
fullyrt, að við skömmtum stærri
sneiö af þjóðarkökunni til heil-
brigöismála en annarsstaðar þekk-
ist. islenzkir læknar hafa verið
mjög ginnkeyptir fyrir vinnu í
Svíþjóð, meöal annars vegna að-
stöðumunar að því sagt er. En
hvernig var þá, að koma úr þessari
dýrð og taka við embætti yfirlæknis
á Akureyri?
Gauti: „Umskiptin voru ekki eins
óskapleg og kannski mætti halda.
Ég var búinn aö starfa á Akureyri
sem læknastúdent í þrjá mánuöi;
þekkti vel Guömund Karl yfirlækni,
fólkiö og staöinn. Mér þótti þessi
umskipti fyrst og fremst spennandi
og ánægjuleg og fannst alls ekki, aö
sjúkrahúsiö væri illa búiö eöa frum-
stætt á móti því sem ég haföi kynnst
í Svíþjóö. Ég tel, aö heilbrigðisþjón-
usta sé betri hér en víöast annars-
staðar; meira tillit tekiö til félags-
legra aðstæöna í sambandi viö
innlögn og útskrift sjúklinga, —
hægara að ná í lækni, aö minnsta
kosti hér á Akureyri og yfirleitt úti á
landi. Ástandiö aö þessu leyti er aö
Gísli Sigurðsson
ræðir við
Gauta
Arnþórsson
yfirlækni
a
Akureyri
vegna er nú svo komiö, aö hér á
Akureyri eru margir erlendir læknar í
lykilstööum. Samt höfum viö staðið í
að gera íslenzkum læknum í Svíþjóö
gylliboð, ef þeir koma hingaö og
ingalæknis, Girish Hirlekar, sem hér
hefur starfaö sem svæfingayfirlæknir
í 2Vz ár. Hann er guðdómlegur læknir
og hef ég von um, aö hann veröi hér
eitthvaö áfram. Sem stendur höfum
viö tvo aöra útlenda sérfræöinga í
störfum á deildinni og er annar
skurölæknir en hinn sérfræöingur í
meltingarsjúkdómum. Ég er nú
búinn aö vera hér í hálft níunda ár og
allan þann tíma hefur okkur aöeins
tekizt að fá heim frá Svíþjóö einn
lækni, sem haföi verið þar ytra í 20
ár. Og enn er þaö svo, aö mikill
skortur er á læknum í sumum
sérgreinum."
„Mér hefur skilizt á sumum
læknum, aö þaö geti verið erfitt aö
fá að vera í friöi heima hjá sér og að
þeir veröi stundum að iðka eins
konar feluleik til þess að eiga
frístundir. Er ekki sú hætta fyrir
hendi í bæ á stærð viö Akureyri, aö
læknirinn sé étinn með húö og hári
ef svo mætti segja?“
„Ekki get ég kvartað yfir því og tel
þaö ekki meö vandamálum. Ég fæ
þaö næöi, sem ég þarf á aö halda og
Gauti Arnþórsson yfirlæknir á Akureyri.
Fjórðungssjúkrahúsiö á Akureyri.
Arnþórsson yfirlækni sjúkrahúss-
ins á Akureyri. Hann ræðir um
þessi mál opinskátt og af þeirri
einlægni, sem mér finnst endilega
aö eigi að ríkja á þessu sviði og sé
til fyrirmyndar. Gauti er skurðlækn-
ir og hefur framkvæmt á Akureyri
sundurleitustu skurðaðgerðir meö
mikilli prýöi. Ekki þarf heldur lengi
við hann aö ræöa til þess að skynja
einlæga samúð hans meö því fólki,
sem kemur undir hans umsjá á
spítalann, jafnframt áhuga á að
kynna sér nýjungar. Hann er fædd-
ur og uppalinn á Eskifirði, en var
búinn að starfa sem læknir á
sjúkrahúsum í Svíþjóö hátt í tólf ár;
einkum í Sunsvall og Uppsölum. í
kvörtunarkórnum mikla, sem tekur
til allra greina þjóölífsins, heyrast
raddir um bagalegan tækjaskort á
sjúkrahúsum hér. Samt hefur verið
vísu ekki gott í Reykjavík, einkum aö
því er tekur til smærri kvilla. En þar
eins og annarsstaöar fá menn inn-
lögn á sjúkrahús í hvelli, sé eitthvað
alvarlegt á feröinni. Eins gengur
mjög greiðlega aö koma sjúklingum
utan af landi á sjúkrahús í Reykjavík,
sé þörf á því eins og stundum getur
orðið, þegar allt er fullt og ekki hægt
að bæta viö erfiðum sjúklingum eöa
þá aö þeir þurfa sérstaka meöferö.
En þaö eru landlæg vandræöi aö
fá starfslið á sjúkrahús úti á lands-
byggöinni og bæöi mikill skortur á
hjúkrunarfræöingum og sérmennt-
uðum læknum. Eg hef sagt þaö áður
og segi þaö enn, aö mér finnst
nokkur manndómsskortur fólginn í
því aö gutla í meöalmennsku á
stofnunum erlendis, í stað þess aö
taka þeirri áskorun að koma til starfa
hér, þar sem þörfin er brýn. Þess-
vinna í sérgreinum sínum. Það er
afskaplega lýsandi fyrir ástandið, aö
viö hefðum ekki getað rekiö hand-
lækningar síöastliöin tvö og hálft ár,
ef ekki heföi notið indversks svæf-
er ekki ónáðaður aö óþörfu. En þaö
er ýmislegt annaö, sem ég kysi aö
væri ööruvísi, — til dæmis sjálft
sjúkrahúsið, sem var teiknaö og
byggt á árunum um og fyrir 1950. Ég
Mesta
kúnst
læknisins
sjúklinginn
er að tala við
©