Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1979, Side 9
í hatta staö
Imeríku eru að rísa. Og jafnvel í afskekkt-
Nýja-Mexíkó og Texas. Á árunum milli
1884 og 1911, seldi einnig þáverandi
forseti, Porfirío Díaz, fyrir lítiö verð um
fjórðung þess lands, sem eftir var, af því
að hann vantaði peninga f ríkiskassann.
Kaupendurnir voru bandarísk námufélög
eða samtök þeirra, sem þegar tóku aö
leita að olíu og málmum og fundu
hvorttveggja. En Mexíkóbúar gátu ekki
gert annað en að horfa á og gnísta
tönnum.
Árið 1921 var Mexíkó annað stærsta
olíuútflutningsland í heimi — en hafði
ekki annaö upp úr því en hiö dapurlega
orð að vera „móöir útlendinga, en
stjúpmóöir eigin barna“. Olíulindirnar
voru nýttar, þangaö til þær voru upp-
urnar, og 1930 var Mexíkó orðin nær
þýöingarlaus sem olíuframleiöandi.
Eignaupptaka Cárdenas forseta,
breytti litlu í í þessu efni og þá ekki
heldur, þótt hann ræki öll helztu olíufélög
og fleiri erlend fyrirtæki úr landinu átta
árum síöar. Aö vísu hylltu „Petroleros",
sem áöur höfðu lagt niöur vinnu
árangurslaust til aö knýja fram hærri laun
og bætt vinnuskilyrði, Cardenas sem
„libertador", frelsara sinn. En hann gat
ekki veitt þeim annaö en stolt yfir því aö
vera nú lausir viö arörán útlendinganna.
Ríkiseinkafyrirtækiö Pemex skyldi
þaöan í frá finna, vinna og selja olíu og
gas í þágu landsmanna sjálfra einvörö-
ungu. En tvenns konar mexíkanskar
ódyggðir háöu brátt rekstri Pemex:
óstjórn og spilling. Þegar stjórnmála-
menn vildu hygla góöum vinum, var alltaf
laust sæti í Pemex eöa þá, aö nýtt
embætti var stofnaö þar. Hversu langt
óstjórnin gekk, má ráöa af samanburöi
Vid múrinn byrjar nýi heimurinn
Kúreki rekur nautgripahjörö sína í haga — leifar hins hreina sveitalífs, sem áður
var í suðurhéruðum Mexíkó. Þar sem pálmar stóðu í gær, standa í dag reykháfar
risastórra efnaverksmiðja.
viö Venezuela, sem flutti út tvöfalt meira
magn af olíu en Mexíkó 1973. Þá voru
25000 starfsmenn við olíuvinnsluna í
Venezuela, en í Mexíkó voru 93000 á
launaskrá viö sambærileg störf. Þannig
fór í skrifstofuhald og bitlingagreiöslur
það fe, sem nauösynlegt heföi verið til
tæknilegrar endurnýjunar. Pemex gat
ekki einu sinni fullnægt innanlandsþörf-
um. Fyrir fimm árum flutti Mexíkó inn
64000 tunnur af olíu daglega.
Áriö 1976 skipaöi hinn nýi forseti
landsins, José Lopez Portillo, nýjan
yfirmann Pemex, og fyrir valinu varö
æskuvinur hans, Diaz Serrano. Menn áttu
ekki von á miklum breytingum með
hinum nýja forstjóra, en hann tók til
óspilltra málanna og kom flestum á óvart.
Hundruð borturna voru reist víösvegar
um landiö og boraö milli 4 og 5 þúsund
metra djúpt. Yfir 60 af hundraöi boranna
komu niöu á olíu og jarögas.
Framleiösla Mexíkó nemur 1.5 milljón
tunna núna, og þar af koma þrír fjóröu
hlutar frá Tabasco og Chipas. Lífiö í
þessum hérööum, sem fyrir svo skömmu
voru víösfjarri siömenningunni, minnir
helzt á mauraþúfu. Gamalt fólk stendur á
milli hænsna, svína og hunda undir
pálmablaöaþökum kofa sinna og horfir
ráöþrota á tæknivædda veröld, sem þaö
botnar ekkert í. Börn leika sér viö læki og
tjarnir, þar sem áöur var tært vatn, en nú
glitra í öllum regnbogans litum vegna
olíumengunar.
Það sem nú er aö gerast í Tabasco og
Chipas, líkist herför Spánverja fyrir 400
árum. Frá Pemex koma menn í leit aö
fjársjóöum, jaröfræöingar, landmælinga-
menn, verkfræöingar og bormenn og
leggja undir sig ný og ný friðsæl lönd.
Meö sama miskunnarleysi og hin
blómlega menning Azteka var lögö í rúst
á sínum tíma undir tákni krossins er nú
frjósamur og heilbrigöur heimur eyöi-
lagöur undir merki tæknilegra framfara.
í Cactus í Chiapas héraöi er stærsta
olíuhreinsunarstöö í Suöur-Ameríku. Og
nú er verið aö reisa aöra slíka enn stærri í
Tabasco — hina stærstu í heimi. Ákafinn
viö að tileinka sér hin skyndilegu auöævi í
mynd olíu og gass er svo mikill, aö enginn
tími gefst til umræöna, hvaö þá aðgeröa
varöandi umhverfisvernd. Milljónir rúm-
metra af gasi, sem ekki næst aö vinna,
blandaö olíu, sem ekki er hægt aö skilja
fullkomlega frá gasinu, brennur í ægilog-
um undir berum himni. Svört og eitruö,
græn ský skyggja oft á sólu, og djöful-
legur brennisteinsþefur fyllir loftiö dag og
nótt á stórum svæöum.
Hin félagslegu vandamál, sem fylgja
olíuvímunni og þá sérstaklega í höfuö-
borg Tabascahéraös, Villahermosa, eru
ekki síöur uggvænleg en mengun um-
hverfisins. Því aö meö olíuæöinu kemur
ekki aöeins fólk, sem táknar vinnu og
tekjur fyrir borgina. Fjöldi verkamanna
kemur þangaö hvaðanæva af landinu
meö allt sitt hafurtask og oft alla fjöl-
skylduna. Þær vonir, sem mexíkanska
ríkiö bindur viö olíu og gas, eru aö
sjálfsögöu einnig vonir þúsunda fjöl-
skyldufeðra, sem telja, aö þeirra bíöi
vinna fyrir sunnan. Þeir eiga bágt meö að
skilja, aö aöeins einn af hverjum sjö
umsækjendum fái vinnu. Og aö þaö muni
ekki breytast í náinni framtíð. Þeir skilja
þaö heldur ekki, aö til dæmis í Cactus,
þar sem 11000 verkamenn vinna viö
byggingu stórrar verksmiöju, muni ekki
þurfa síöar meir nema 1500 manns til aö
halda henni gangandi.
Þeir sem vinna fá þarna fá 2500 til
5000 pesos í reiöufé hálfsmánaöarlega,
og þaö er margfalt á viö þaö, sem menn
fá fyrir störf í öörum heföbundnum
greinum. Og margir kunna ekki meö
peningana aö fara. Þeir sem drekka á
næturkiúbbunum í Villahermosa eru eins
og ógnvekjandi tákn: Velmegunin, sem
olían hefur fært olíuköllunum, merkir fyrir
alltof marga þeirra aöeins leiöindi og
lifrarveiki.
En þessi neikvæðu atriöi breyta engu
um þá staðreynd, aö Mexíkó hefur í fyrsta
skipti í sögu sinni fengið tækifæri til aö
sigrast á fátækt og basli og umfram allt
aö öölast aöra stööu sem nágranni
Bandaríkjanna en hins lítilsvirta og
auömýkta vesalings. Aö vísu eru þær
tölur og staöreyndir, sem gefa til kynna
stöðu Mexíkó, síöur en svo uppörvandi:
íbúafjöldinn, sem nú er um 60 milljónir,
mun hafa tvöfaldast um aldamótin. Nær
helmingurinn er innan viö 15 ára aldur, en
þaö er hlutfall, sem aðeins er óhagstæö-
ara í Bagladesh. Annar hver maöur hefur
ekki nóg aö borða. Um 40 af hundraöi
vinnufærra manna eru atvinnulausir.
Ríkisskuldir hafa aukizt gífurlega, og
viöskiptahallinn viö Bandaríkin ein nam
tveim milljöröum dollara á s.l. ári.
Og nú syndir þessi öreigi allt í einu í
hafi af olíu og gasi, og þaö einmitt á sama
tíma og nágranni hans, mesti olíubruölari
allra tíma, lokar benzínstöövum á
helgum. Þaö var því von, aö hann legði
viö eyrun, er Portillo, forseti Mexíkó, birti
upplýsingar sínar um hina miklu olíufundi.
En brátt dró úr bjartsýni Bandaríkja-
manna, því aö Portillo sagöi einnig
skömmu síðar: „Maðurinn getur ekki
boröað meira en hann getur melt, því að
ella veröur hann veikur. Og þannig er þaö
einnig meö þjóðarbúskap okkar". í þess-
um efnum ætla Mexíkómenn að fara að
öllum meö gát, foröast rányrkju og
byggja upp. Framleiðsluafköstin eru
nú 1.5 milljón tunna á dag, og þau á
ekki aö auka nema upp í 2.2 míiljnnir
tunna í árslok 1980. Og eitt er víst: Þeir
hafa lítinn sem engan áhuga á því í
Mexíkó aö leysa olíuvandamál hins
volduga granna síns í noröri. Fremur láta
þeir olíuna hverfa í reyk, þangaö til þeir
geta sjálfir hreinsaö hana og nýtt.
Svá — úr Stern.