Lesbók Morgunblaðsins - 27.10.1979, Page 13
eina sem hann kæri sig um sé að fá hana
óspillta til baka.
Bob og Suze tóku saman aftur eftir að
hann kom heim úr Evrópuferöinni. Sam-
komulagið var heldur stirrt. Suze kvartaði
yfir því við vini sína að hún fengi ekki að
lifa neinu lífi fyrir sjálfa sig. Hún fékk sér
vinnu á vetingahúsi bara til aö hafa
eitthvaö að gera.
„Þú þarft ekki að gera þetta. Ég á nóg
af peningum. Ég vil ekki að þú vinnir,“
sagði Bob þá og hann vildi heldur ekki aö
hún færi á námskeið í málaralist. Vinir
þeirra héldu því fram að Bob yfirgnæfði
Suze algjörlega. Yfirleitt var Bob mjög
kaldur á yfirboröinu en þegar hann var í
nálægö Suze þá lét hann tilfinningar sínar
óspart í Ijós. Hann átti það til að öskra,
grenja og gráta stöðugt í lengri tíma.
Helst vildi hann hafa hana hjá sér öllum
stundum. „Það er aðeins ég og þú gegn
öllum heiminum," sagði hann.
Hugur Dylan’s gerðist smám saman
fráhverfur ádeilukveðskapnum. Morðið á
Kennedy forseta í nóvember árið 1963
undirstrikaði þá hættu sem var því
samfara að vera mikið í sviðsljósinu og
gagnrýna ýmsa vankanta á hinu banda-
ríska þjóöskipulagi.
Bob Dylan söng á hljómleikum í
miðríkjunum, á laugardeginum eftir
morðið.
„Ég varð að fara upp á sviöið því
hljómleikunum var ekki hægt aö fresta.
Andrúmsloftið var þrungið spennu og
sársauka. Mér til ánægju sá ég að hvert
sæti var skipað í hljómleikahöllinni.
Opnunarlagið var „The Times They Are
A-Changin“ og ég bjóst við því að fólkið
kastaði steinum í mig. Þetta lag var
einum of mikið eftir morðið en mér fannst
ég verða að syngja það því það var
ómissandi í hljómleikaprógramm mitt."
Another side of Bob Dylan. (ágúst
1964): Á þessari hljómplötu er ekki að
finna eitt einasta ádeilulag. Dylan var
búinn að fá nóg af að semja um þjáningar
annarra og nú var komið að þjáningum
hans sjálfs. Suze Rotolo ákvað að segja
endanlega skilið við Bob og besta leiðin
fyrir hann til að bera smyrsl á særðar
tilfinningar var að semja Ijóð þar sem
hann reyndi að ná sér niður á Suze. Einn
partur af hefnd hans gagnvart henni var
aö afneita trú hennar á baráttu fyrir betra
þjóðskipulagi.
Mannleg samskipti eru í brennidepli á
þessari þlötu og Dylan tekst að þjapþa
saman helstu hlutum sem skipta máli í
sambandi við samskipti kynjanna.
Hefnd hans er fullkomnuð þegar hann
lýsir orsökum skilnaðarins við Suze.
Hann skellir allri sökinni á afbrýðisemi
systur Suze sem átti að hafa veriö völd að
því að spilla um fyrir þeim. Carla systir
Suze var nefnd allskyns ónöfnum svo
sem sníkjudýr, leiðindaskjóöa og skass.
Bringin’ it all back home. (Mars
1965.): Bítlarnir höfðu mikil áhrif á Dylan
og tónlist þeirra endurvakti áhuga Dyl-
an’s á því að veröa rokkstjarna. Hann
kom sér upþ rokkhljómsveit og fyrsta
hljómplata hans með rafmagnaðri tónlist
varö fyrsta platan með honum sem
seldist í yfir milljón eintökum.
Lagið „Mr. Tambourine Man” lýsir vel
þeirri stefnubreytingu sem tónlist og
textagerð Dylan’s höfðu tekið. Margir
aðdáendur Dylan’s halda því fram að
lagiö fjalli um reynslu af eiturlyfjanotkun.
Fylgifiskar frægðarinnar höfðu þau áhrif á
líf Dylan’s að hann gat aldrei um frjálst
höfuð strokið. Hann var á sífelldum
hjómleikaferðum og þreyta sú og streita
sem fylgdi þeim varð til þess aö hann tók
að neyta eiturlyfja. Ein pilla til að vekja
hann upp og önnur til að róa hann niður.
Bob Dylan lýsti stefnu sinni eða
stefnuleysi í samtali við vin sinn: „Ég
hætti að hugsa um þjóðfélag sem slíkt.
Ég er ekki hluti af neinu þjóðfélagi. Allra
síst „þeirra” þjóðfélagi. Þú sérö að
enginn sem fer með völdin þarf að hafa
áhyggjur af einhverjum sem stendur fyrir
utan þjóöfélagið og myndast við að
gagnrýna það. Það þýðir ekkert fyrir þig
að gagnrýna þjóðfélag sem þú ert ekki
hluti af og að vonast til að geta
betrumbætt það. Ég ætla allavega ekki
að eyða mínum tíma í það. Eg yröi
örugglega myrtur ef ég reyndi það.”
Highway 61 Revisited (Ágúst 1965).:
Meö þessari plötu hætti Dylan endanlega
að vera reiður þjóðlagasöngvari og
geröist rokkstjarna þess í stað. Um þessa
stefnubreytingu sína sagði hann „Ég spila
á hljómleikum og spyr sjálfan mig“:
„Myndir þú koma og sjá mig í kvöld?” og
sannlega myndi ég svara: „Nei ég myndi
ekki koma. Ég myndi frekar gera eitthvað
annað. Og þetta annað er rokk. Ég myndi
frekar vilja sjá mig spila rokk. Þannig er
það frá mínum bæjardyrum séð. Ljóð
mín eru myndir og rokkið mun hjálpa mér
til að mála myndirnar með fallegum
litum.”
Dylan sló hressilega í gegn með lagi
sínu „Like a Rolling Stone”. Lagið komst
í efsta sæti bandaríska vinsældalistans
og nú náði Dylan til miklu stærri hóps
fólks.
„Ég samdi það eftir að ég kom heim frá
Englandi,” sagði hann í viðtali við Jules
Siegel. „Það var tíu síður. Það fjallaöi um
hatur mitt á vissum hlutum. Að lokum
hætti það að vera hatur og þaö varð
hefnd. Það sagði einhverjum eitthvaö
sem hann ekki vissi og það var heppið.
Ég haföi aldrei hugsað mér það sem söng
fyrr en einn dag þegar ég settist við
þíanóið og sá hvítan pappír nótnabókar-
innar sem mér fannst syngja: „How does
it feel?” á hæggerðan hátt. Það var eins
og aö synda í hrauni. Hanga í greinum
birkitrés. Renna til, sparka í tréð og hitta
nagla með fæti þínum. Sjá einhvern þjást
án þess að geta komið í veg fyrir það.“
Blonde on Blonde. (Maí 1966.): Dylan
var búinn að vera giftur Söru Lowndes í
nokkra mánuði þegar Blonde on Blonde
kom út.
„Bob þarfnaðist Söru ákaflega," sagði
náinn vinur hjónanna. „Höfuð hans var
snarruglaö vegna allrar pressunnar sem
hvíldi á honum, allra brjálæðislegu hlut-
anna sem gengu á umhverfis hann og
hún kom honum niður á fasta jörð."
Hún var dulræn, áhugasöm um Zen
Búddisma og hafði ótal svör við gátum
sem Bob hafði velt fyrir sér. Húh var mjög
þægileg í umgengni og óeigingjörn. Hún
reyndi ekki aö kafa ofaní höfuð Dylans á
þann hátt sem margir gerðu vegna þess
að það skipti hana engu máli. Og Bob
þarfnaðist konu sem reyndi ekki að ógna
honum. Hún virtist vera fær um að gefa
sjálfa sig honum á vald og sinna
sérþörfum hans. Þar fyrir utan var hún
mjög falleg og mjög viðkvæm.”
Strax eftir brúðkaupið fór Dylan í
erfiöa hljómleikaferð. Rithöfundurinn
Siegel slóst í för meö Dylan í Kanada til
að viða að sér efnivið í tímaritsgrein.
Siegel var sleginn þegar hann varð vitni
að atburði í Vancouver sem varpaði Ijósi
á þörf Dylans fyrir einkalíf og samúðar-
fullan skilning Söru konu hans. Hún
heimsótti Bob í Vancouver til að geta
verið viðstödd hljómleika hans. Þau voru
inni í búningsherbergi rétt fyrir sýningu
og Bob var alveg miður sín vegna þess
aö tveir kanadískir rithöfundar ætluöu að
taka viðtal við hann og honum fannst
hann verða að fela Söru fyrir þeim. Dylan
fór að stórum skáp og opnaði dyrnar.
„Sara,“ sagði hann. „Þegar þeir koma þá
vil óg aö þú farir hérna inn.” Sara leit
stríönislega á hann án þess að mótmæla.
Þá byrjaði Dylan að hlægja að fáránleika
þessarar athafnar.
„Blonde on Blonde” fjallar að nokkru
leyti um heimsspeki Zen Búddismans.
Manninn skortir í rauninni ekki neitt;
maðurinn er heill, fullkominn hringur sem
ekki er hægt að draga frá eða leggja við.
En manninum er kennt að halda að líkami
hans og hugur séu aðskildir frá öðru lífi
og hann tekur að burðast með hugmynd-
ina um „Egóið” eða sjálfið. Þessháttar
óreiða leiðir til hugmynda á borð við
„þetta er mitt og þetta er þitt”. En
maðurinn getur ekki vitað meininguna
með lífinu með því að stjórna ytri
aðstæðum, með því aö skiþuleggja
stofnanir, skrifa lög eða siðferöisreglur.
Maðurinn verður að snúa sér að sínu
innra sjálfi, hinu yfirnáttúrulega guðlega
eðli eða tilgangi jarðlífsins. Búddistar
kalla það uþpljómun.
John Wesley Harding. (Janúar 1968.):
Þetta var fyrsta platan sem kom frá Dylan
eftir að hann hafði slasast alvarlega í
mótorhjólaslysi nálægt heimili sínu í
Woodstock í New York fylki. Hann hélt
kyrru fyrir á heimili sínu í níu mánuði eftir
slysið og sá orðrómur gekk fjöllunum
hærra að hann væri allur.
Hjómplatan „John Wesley Harding”
afsannaði þó þann oröróm. Ljóð Dylans
voru nú full af trú á Guð, ásamt
sjálfskönnun og samúðarkennd. Þau
voru útlegging Dylans á Biblíunni. Söngv-
ar skrifaðir eins og dæmisögur um fall og
endurfæðingu eins manns — Bob Dyl-
ans.
Dylan segir svo frá sjálfur: „Áður en ég
gaf John Wesley Harding út uppgötvaði
ég dálítið um alla söngva sem ég hef
samið áður. Ég komst að því að í hvert
skipti sem ég notaði orö eins og „hann”
og „það” og „þeir” og ég talaði um annað
en fólk, þá var ég í rauninni að tala um
engan annan en sjálfan mig. Ég hafði þá
vitneskju í höfðinu þegar ég hljóðritaði
John Wesley Harding. Þú sérð, ég haföi í
rauninni aldrei gert mér grein fyrir því að
ég var að skrifa um sjálfan mig í öllum
þessum lögum.
Líf Bob Dylans frá 1969—
Allt frá mótorhjólaslysinu hefur Bob
Dylan gengið í gegnum nokkuð sem
nokkrir hafa kallað hamskipti. Til að
greiða úr óreiðunni sem frægðin olli í lífi
hans snerist hann til trúar forfeðra sinna,
gyðingatrúarinnar sem hann hafði fram
aö þeim tíma afneitað.
Hann hefur lagt stund á hebresku og
heimsótt ísrael margsinnis. Dylan hefur
alltaf fundið fyrir því að hann er útlend-
ingur í vélamenningu nútímans. í gegnum
tíðina hefur hann reynt að svara spurn-
ingum á borð við: „Hver er ég? Hvað er
tilveran?” Dylan hefur verið og er enn að
leita að persónulegu hjálpræði. Sú leit
hefur leitt Dylan til trúarbragða. Ekki
trúarbragöa kirkjustofnana, heldur trúar-
bragða hins innra sjálfs sem býr með
okkur öllum.
Einkalíf Dylans hefur verið heldur
stormasamt undanfarin ár. Sara kona
hans hefur tvívegis skiliö við hann. í fyrra
skiptið tók hún hann í sátt eftir aö hann
hafði samið gullfallegt lag til hennar þar
sem hann kveðst ekki vera hennar verður
en samt megi hún aldrei yfirgefa hann.
Það er lokalagið á einni bestu plötu
Dylans hin síðari árin, plötinni „Desire.”
Dylan hlýðir engum mannlegum sið-
venjum og það sannaðist best á því
hvernig hann hefur komið fram við konu
sína og börn.
Hann bauð konu nokkurri næturgist-
ingu í höll sinni í Los Angeles og hélt þar
fram hjá eiginkonu sinni sem svaf undir
sama þaki. Morguninn eftir settist Dylan
og næturgagnið að morgunverðarborði
en það sátu einnig eiginkona hans og
börn. Það kom til hjónasennu sem endaði
með því að Dylan kastaði eiginkonu sinni
á dyr.
í laginu „Is your love in vain" af
plötunni Street Legal, talar Dylan um það
að hann þarfnist einveru og hún hafi
engan rétt til að trufla hann þegar hann
liggur í myrkruðu herbergi og kannar
völundardjúþ sálar sinnar. Getur þú skilið
þjáningar mínar? Eða er ást þín aðeins
hégómi.
Byggt á ævisögu Bob Dylan
eftir Anthony Scaduto.
Bob Dylan og Suze Rotolo sambýl-
iskona hans. Myndin var notuö á
plötuumslag „Free Wheelin’ Bob Dylan“
sem kom út 1963.
Dylan aö skemmta á Isle of Wight
Festival fyrir um þaö bil 200,000
áhorfendur. (1969).
THE WmEWMEELm’