Lesbók Morgunblaðsins - 03.11.1979, Síða 2
„Glataði sonuriniT er senniiega umdeildasta mynd, sem sýnd hefur verið i
Sovétrikjunum siðan eftir byltinguna 1917. Eiga svínin kannski að tákna ákveðnar, en
ónefndar persónur?
ILYA GLAZUNOV er einn þekktasti
málari Sovétríkjanna. Hann hefur mál-
aÖ Brésnef Fellini, Sviakóng og Ginu
Lollobrigidu — en er andófsmaöur og
hefur leyft sér aÖ mála valdhafana sem
svin, öslandi i blóöi — og komizt upp
meÖ þaÖ. Eftir Richard Beeston.
Hann
ögrar
þeim í
Kreml
Glazunov leitar fyrirmynda á götum
Moskvu.
I vinnustofu sinni, á efstu hœð í
QMbýlishúsi í gömlu hverfi í Moskvu,
hefur llya Glazunov endurskapað ímynd
heilags Rússlands, mynd sem synir
byltingarinnar vildu helzt fá fólk til að
gleyma. Afarstórt mélverk af Alexander
III. zar í Rússlandi, þekur meö öllu einn
veginn í vinnustofunni. Þessu málverki
var bjargað frá eyðileggingu úr kjallara
Eremitasjesafnsins í Leningrad. Hinir
veggirnir eru þaktir stórfenglegum
íkónamyndum (= sérst. teg. helgi-
mynda, aðallega af Maríu mey og
ýmsum dýrlingum. Alg. hjá grísk-kat-
ólskum í Rússlandi.), krossfestingar-
myndum og myndum frá keisaratímum
Rússlands.
Glazunov er rússneskur þjóðernis-
sinni og er auk þess sá málari rússn-
eskur, sem mest er umdeildur og lengst
hefur náö með list sinni nú á tímum.
„Fortíö okkar er hluti af heimsmenning-
unni,“ segir hann. „Fólk hefur logið til
um gamla Rússland, en mig langar til að
segja sannleikann.“ Þetta er þaö, sem
hann segist vilja gera meö síöasta og
mesta verki sínu, veggmynd, sem hann
er að mála fyrir höfuðstöðvar UNESCO í
París. Hún er um það bil 3 sinnum 9
metrar að stœrð og á að vera fullgerö á
næsta ári. Hún á að túlka skerf Rúss-
lands til heimsmenningarinnar og er
æði ólfk hinu svokallaöa „sósíalraun-
sæi“, sem bregður upp glansmyndum
af hamingjusömum verkamönnum,
samyrkjubændum og ökumönnum
dráttarvóla, sem þeir í Kreml og rússn-
eska listamannasambandið hafa svo
mikið dálæti á.
Hvernig kemst hann upp meö allt
þetta, þessi málari kvikmyndastjarna og
konunga, erlendra þjóöhöföingja og hef-
ur meira aö segja veriö ráöinn til aö mála
Bréznev.
Þessi listamaður, sem fær ekki aö sýna
myndir sínar í neinu listasafni í Sovétríkj-
unum, en hélt einkasýningu í Moskvu,
sem dró aö sér hálfa milljón gesta á liönu
ári.
„Þegar ég ferðast erlendis," segir
hann, „álítur fólk, aö ég sé fulltrúi
opinberu hugmyndafræöinnar, maöur í
þeirri aöstööu aö fá aö mála Bréznev,
KGB-starfsmaöur og — lélegur málari.
Heima fyrir er ég kallaöur íhaldsseggur,
sem máli dularfullar trúarlífsmyndir,
borgaralegur málari sem eigi frægð sína
aö þakka þaö aö hafa málað útlendinga."
Mynd af Indiru Gandhi eftir Glazunov.