Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1979, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.1979, Blaðsíða 6
Þw vtnkonurnar Nini og Anna Oddadóttir fóru aaman ríöandi auatur aö Laugarvatni aumariö 1832 og var þaaai mynd takin af þaim þá. Faöginin Nini og Jón Stafánaaon á Þingvöllum 1931. málaöi. Guömundur Sveinbjörnsson var ákaflega barngóöur. Hann klæddist „sjakkett" á hverjum degi og gekk meö gráan Hamborgar-hatt og staf til vinnu sinnar í stjórnarráö- inu. Á ieiöinni þurfti hann stanslaust að vera aö taka ofan fyrir fólki, sem hann mætti, því þá þekktust allir. Hann vildi þó spara hattinn og snerti bara kantinn þegar um unglinga var aö ræöa. Á heimleiðinni keypti hann í matinn hjá Silla og Valda og kökur meö kaffinu í Björnsbakaríi og svo lék hann viö okkur krakkana, spilaöi á píanóiö og kenndi okkur latnesk orö. Ég gekk i Landakotsskóla og þar viö sat um mína skólagöngu á þeim árum. Þegar húsiö okkar var full- byggt viö Bergstaðastræti og við pabbi flutt þangaö, tók ég að mér húshaldiö og lét ekki í Ijós neinar óskir um frekara nám. Ég var hins vegar tíöur gestur á Landsbókasafninu þar sem ég var líklega á sérstökum samningum viö prófessor Árna Pálsson og fékk aö fara heim meö bókastaflana aö eigin vali. Reyndar sótti óg líka tíma í ensku og frönsku og bókband læröi ég hjá Rósu systur Jóns Þorleifsson- ar. Árin 1927 og 1928 fórum viö pabbi tvö ein ríðandi noröur meö trússhest og tvo til reiöar. Ég man aö fyrra áriö vorum viö 5 daga á leiðinni noröur aö Þingeyrum, — gistum fyrst aö Saur- bæ á Kjalarnesi, síöan á Þyrli í Hvalfiröi, næsta dag fórum við bara aö Geitabergi í Svínadal því ég var oröin svo aum í sitjandanum. Næsti áfangastaöur minnir mig aö væri Fornihvammur og loks Þingeyrar þar sem viö vorum í góöu yfirlæti hjá Huldu Stefánsdóttur og Jóni Pálma- syni. Síöan héldum viö áfram aö Reynistað í Skagafiröi og vorum þar hjá frændfólki allt sumarið. Þá var torfbær á Reynistað líkt og er í Glaumbæ. Okkur var afar vel tekiö þar sem viö gistum á leiðinni. Ég man aö Jón Magnússon, sem var forsæt- isráðherra þá, hafði oröið bráö- kvaddur austur á Noröfirði og fréttir af því borist til Reykjavíkur rétt áöur en viö lögðum af staö. Þá var hvorki útvarp, blöö eöa sími hérlendis og pabbi varð aö segja fréttir þar sem viö komum á bæi. Eg var oröin leið á frásögninni þegar hann var aö þylja hana á fimmta bænum. En móttökur voru alltaf meö af- brigöum hlýjar. Samtaliö hófst meö því aö spurt var þegar viö riöum í hlaö „og hvaöan er maðurinn?“ og svo var boðiö upp á góöan mat og gistingu. Ég man að húsfreyjan á einum bænum kom út á hlað þegar viö vorum aö leggja aftur af staö og gaf mér rósaleppa í íslenzku skóna sem mér höföu veriö gefnir á öörum bæ, og klippti blóm af pottaplöntu og gaf mér í hnappagatiö. Um haustiö fórum viö um Kaldadal heim. Mér fannst þessi feröalög okkar meira skemmtileg en erfið. Pabbi þurfti aö stoppa víöa til að teikna og gera litaskissur og ég passaöi hestana á meðan. Um vinnubrögö hans heima er þaö aö segja aö hann vann eins og berserkur á hverjum einasta degi. Mest í vinnustofunni upp á lofti en málaöi lítið úti. Þaö skiptust svo sem á skin og skúrir aö hans dómi viö vinnuna. Þegar illa gekk heyröist hann bölva hressilega uppi, svo var penslum fleygt í gólfiö og skömmu síöar kom hann þungstígur niöur Framhaldá bls. 14. Syaturnar Nini og Bryndía Jónadntur. „OG HVAÐAN ER MAÐURINN“ Jón, Nini og danski liatfrnöingurinn Poul Uttenreiter. Hann var mikill aödóandi Jóns og skrifaði um hann bók sem kom út f Danmörku árið 1936. Elsia fyrir utan sumarhús í Nnstved í Danmörku sem Jóni og fjölskyldu hans var lánað.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.